Angelic0- wrote:
Mazi! wrote:
Settu bara eitthvað gírolíu sull á þetta
Það er í góðu lagi að setja bara gírolíu á þetta.
Og þá er líka ógeð að keyra bílinn með drifrásina kalda....

Nákvæmlega það sem að Viktor sagði!
Þegar ég keypti E30 bæjuna mína og jú þegar ég notaði hana þá var gírkassinn leiðinlegur í gíra þegar hann var kaldur en erfiður í gíra yfir veturinn. Kom svo í ljós þegar ég skveraði til gírkassa og vél fyrir tæpur tveimur árum að þegar ég tappaði af kassanum lak úr honum gulllitaður vökvi s.s. gírolía!! Alveg mökkþykkur anndskoti og var nánast eins og sýróp. Ég hringdi þá í B&L og talaði þar við hann Hermann sem tjáði mér það að þegar ég lét þá skipta um vökva á kassa og vökvastýri(þegar bíllinn var hjá þeim í viðgerð eftir að ég keyrði ofan í skurð(skipta um olíupönnu og olíudælu)) þá hafði einhver snillingurinn sett gírolíu í stað ATF vökva og blótaði Hermann því að sá snillingur væri ekki lengur að vinna hjá þeim því þá gæti hann ekki skammað hann
