Þórður Helgason wrote:Viltu ekki bara seljann, dauðan, þá þarftu ekki að hugsa meira um þetta?
Ég var nú fyrst að sjá að ummæli mín um hann dauðan hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum, og þykir mér það miður. Ég átti einfaldlega við að ég væri kannski til í að kaupa hann bilaðan.
Ég á tvo bræður hans, einn lífs, annan nær liðinn og sé eftir því að hafa ekki náð mér í svona vagna fyrr.
Ekki hvarflaði það að mér að henda ætti bílnum né gefast upp á honum, nema etv, núv. eigandi væri þreyttur og vildi selja fyrir hóflegt verð, enda um bilaðan bíl að ræða.
Ég biðst afsökunar á þessu orðalagi mínu í upphafi þráðarins.
Með kveðju.