Jæja, er búinn að spreða í eitt stykki 1,5 lítra brúsa af BMW Kühler-Gefrier-und Korrosionsschutzmittel í B&L og kostaði hann 884 kr.
Finnst reyndar pínulítið vond lykt uppúr húddinu þegar bíllinn er orðinn heitur.
Ég fann það hvergi hjá mér í neinni bók hvaða antifreezer ég átti að nota.
Og svo fór ég að lesa á netinu einhverjar hrillingssögur af fólki sem átti ameríkutýpurnar af eldri bílum með M30 vélinni sem voru að nota einhverjar ódýrari tegundir af antifreeze og það skemmdi pakkningar.
En mér skyldist að það hefði líka verið vegna lélegra pakkninga í fyrstu M30 vélunum eða eitthvað álíka.

