Vandamál með læsingu í E30

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Vandamál með læsingu í E30

Postby Geirinn » Mon 23. Jan 2006 01:44

Sælir.

Ég er með vandamál varðandi lásinn á bílstjórahurðinni hjá mér.

Þarf alltaf að læsa sjálfur með því að fara inn um farþegahurðina hjá mér.. þangað til þetta hrökk allt í einu í gang og virkaði að læsa með lykli um daginn en er bilað aftur núna. Semsagt, bíllinn læsir sér ekki alltaf með lykli en það virkar alltaf að opna hann.

Var að lesa núna FAQ sem mér sýnist vera möguleg lausn á vandamálinu:

http://www.unofficialbmw.com/e30/interior/door_locks/e30_central_lock_faq.html

BMW has something called "Door Lock w/key repair kit" or something like that, BMW part number 51211924903 or maybe 51-21-9-061-343. Both have been reported as correct so who knows? Anyway, it should cost around $30 (us) from a dealer. It comes with a new lock cylinder, and all possible tumbler combinations so you can key it to your existing key. I have included the translated german instructions at the end of the FAQ.

Sem bendir á þessa síðu hér þegar ég leita að þessum varahlutum í RealOEM: http://www.realoem.com/bmw/showparts.do?model=1111&mospid=47263&btnr=41_0560&hg=41&fg=40&hl=19.

Sem sagt, það sem highlightast í leitinni er þetta hér:

09 CATCH WITH KEY LEFT 1 51211924903 $93.74


Ég prófaði að rífa hurðarspjaldið af um daginn og mér sýnist við fyrstu sýn að það sé alveg hundleiðinlegt að komast að þessu öllu saman.

Ef ég reyni að læsa hurðinni þegar hún er opin og ætla svo að skella þá virðist hún vera orðinn það læst að hún lokist ekki nema maður taki pinnann aftur upp. Svo virðist pinninn líka vera dáldið skakkur eða beyglaður.

Þegar maður stingur lyklinum í og snýr eins og maður ætli að læsa þá gerist ekki neitt (nema í þessi örfáu skipti sem það hefur virkað).

Eins virkar stundum samlæsingin, þ.e. ef ég læsi sjálfur í gegnum farþegahurðina þá læsast stundum báðar hurðirnar saman en í þessi skipti sem lykillinn hefur virkað þá hefur bæði alltaf læsts.

Svo ég spyr: Er lausnin að fá eitthvað BMW repair-kit fyrir þetta eða haldiði að það sé nóg að fara með þetta til lásasmiðs eða jafnvel á verkstæði eða get ég gert þetta sjálfur ?

Þegar ég komst í svona umræðu hérna um daginn þá virtust fleiri hafa lent í því sama.. hefur einhver náð að laga þetta hjá sér eða eru allir með þetta vandamál ennþá ? :lol:

Einhvernveginn held ég að þetta endi á verkstæði :wink:
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby jens » Mon 23. Jan 2006 06:36

Mér sýnist ekkert annað að gera fyrir þig en að smyrja læsingar unitið, sambandi við samlæsingarnar þá lenti ég í því stuttu eftir að ég keypti minn að hurðin hægramegin læsti sér ekki. Ég víxlaði samlæsingarmótornum í skottinu og hurðinni en ekkert virkaði í hurðinni svo ég tók tengið sem tengir vírana á milli hurðar og stafs, hreynsaði það upp og allt fór að virka. Það getur verið það stíft að læsa með lykli ef samlæsingarmótorinn fær ekki straum að þér finnist allt fast. myndi byrja á samlæsingunum.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Geirinn » Mon 23. Jan 2006 15:06

Takk. Kíki á þetta. Annars hef ég mestar áhyggjur af því að komast ekkert að þessu.

Fannst þér það ekki mikið mál ?

Þegar hurðarspjaldið er komið af þá virðist maður bara geta komið að þessu í gegnum eitt gat ? Eða kemst maður lengra með því að rífa meira ?
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby jens » Mon 23. Jan 2006 16:30

Hurðaspjaldið er það eina sem þú getur rifið og svo skera plastið sem er límt inn í hurðina.
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter
User avatar
jens
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Location: Akranes

Postby Geirinn » Mon 23. Jan 2006 21:44

Já ég ætla að kíkja á þetta sem fyrst, takk fyrir svörin.

Ég ætla að reyna að laga þetta og ég reyni að koma með lausn fyrir hina sem vantar að laga þetta hjá sér.

Endilega sendið samt inn reynslusögur af þessu ef þið eigið :)
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 23 guests