saemi wrote:
gardara wrote:
Ekkert að því að birta þetta, verður vonandi víti til varnaðar.
Óhöpp gerast hvað sem gert er. Það er hægt að setja reglur um allt og ekkert, banna allt og á endanum verður lífið eins og þurrt franskbrauð, snautt af öllu því sem kryddar og gefur ánægju.
Viltu þá meina að það eigi að birta myndir af bílslysum í þeim tilgangi að það sé öðrum víti til varnaðar?
Það er hægt að banna einkabáta, þar hafa gerst hörmuleg slys. Það ætti að banna akstursíþróttir, fallhlífarstökk, köfun, einkaflug, jeppamennsku, fjallaklifur, .. hvar á að enda? Þetta voru einfaldlega skelfileg mistök. Sá sem gerði þetta fór vissulega út fyrir ramma þann sem honum var sniðinn samkvæmt reglum. Hann lét lífið í kjölfarið og þar með dó allt tal um öll ábyrgð sömuleiðis fyrir mér. Það vita allir sem þekkja eitthvað til þessa hvernig í pottinn liggur og ég sé ekki nokkurn einasta göfugan tilgang í því að rifja þetta upp.
Ég er persónluega ekkert á móti því að þetta myndband sé sýnt. En birting þess mun ekki gera heiminn að betri stað í mínum huga. Það er bara sorglegt að horfa á það og það mun ekki bæta neitt.
Það má ekki gleyma að þarna var um atvinnuflug að ræða.
Það eru birtar myndir af bílslysum og meira að segja er flökum komið fyrir við þjóðveginn til að vekja fólk til umhugsunar.
Ekki sambærilegt við það sem þú ert að bera þetta saman við. Leigubílstjóri í kappakstri .. eða strætóbílsjóri? Held að það myndi vekja töluverða athygli sömuleiðis.
Umræðan á ekkert að deyja með þeim sem olli slysinu - ef svo er þá dóu tveir og "við" lærðum ekkert á dauða þeirra. Það á miklu frekar að fara yfir það sem má laga og í kjölfarið að þetta var birt kom viðtal við lækni sem hafði áður starfað við sama sjúkraflug og ef hans frásögn er rétt þá þarf heldur betur að yfirfara þetta fyrirtæki.
Ég vill jafn fram benda á að ég styð alls ekki lög og reglur sem banna fólki að gera það sem þeim finnst gera lífið skemtilegt - ég aftur á móti styð það þegar kemur að atvinnu sömu einstaklinga.