bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

SL55 AMG vs Carlsson CK55 RS R230 SL55 AMG V8
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=5224
Page 1 of 2

Author:  fart [ Sun 28. Mar 2004 19:55 ]
Post subject:  SL55 AMG vs Carlsson CK55 RS R230 SL55 AMG V8

Part 1http://video.sport1.de/pub/Video/msmedia//de/Motorvision/Motorvision/mv55-vergleich1_wmt_adsl.asf

Part 2http://video.sport1.de/pub/Video/msmedia//de/Motorvision/Motorvision/mv55-vergleich2_wmt_adsl.asf

Vá hvað þetta virkar!

Author:  fart [ Sun 28. Mar 2004 20:06 ]
Post subject: 

Spáið aðeins í statistics yfir þennan bíl sem er hérna heima:

RS útgáfa:
580 hestöfl við 6100
880NM við 2600
4.1 í 100

Er einhver götubíll hérna heima sem getur tekið þetta kvikindi? 0-100 eða 0-200, eða 1/4mílu?

Author:  Jss [ Sun 28. Mar 2004 20:16 ]
Post subject: 

Þetta er alveg þrælmagnað ótrúlegt tæki. :shock:

Author:  Svezel [ Sun 28. Mar 2004 20:20 ]
Post subject: 

Djöfull virkar þetta dót, gersamlega sprautast úr spörunum :shock:

Ég myndi nú halda að 555 prezan myndi nú taka hann í 0-100km/klsst og 1/4 mílunni. Sérstaklega ef þeir eru búnir að fara út í þær breytingar sem eru á döfinni

Author:  fart [ Sun 28. Mar 2004 20:24 ]
Post subject: 

Seriously?

ég er ekki einu sinni viss um að Rallútgáfan af Imprezunni sem Peter Solberg keyrir daglega gæti tekið þennan bíl.

kanksi 0-100 útaf 4x4.


N.B. þessi heldur áfram upp í 320km hraða.

Author:  Alpina [ Sun 28. Mar 2004 20:25 ]
Post subject: 

:x :x það gerist ekkert hjá mér.......fæ eingöngu hvítan ramma með þessum slóðum :x :x

Author:  Svezel [ Sun 28. Mar 2004 20:28 ]
Post subject: 

fart wrote:
Seriously?

ég er ekki einu sinni viss um að Rallútgáfan af Imprezunni sem Peter Solberg keyrir daglega gæti tekið þennan bíl.

kanksi 0-100 útaf 4x4.


N.B. þessi heldur áfram upp í 320km hraða.


Það er ekkert skrítið því rallybíllinn er limiteraður við 300hö (eru víst stór 300hö :lol: ) og er að taka 1/4 mílu á svona 12.5sek. Svo eru þeir aldrei gíraðir hærra en að þeir slá út í rúmlega 200km/klst.

555 bíllinn myndi náttúrlega ekki hafa hann í topspeed því Carlson fer í 330km/klst en prezan kannski í 260-70km/klst. En í fyrra fór hún 1/4 míluna á 11.9sek og er undir 4sek í 100km/klst myndi ég halda.

Author:  fart [ Sun 28. Mar 2004 20:39 ]
Post subject: 

Hvað ætli þessi Carlsson sé út 1/4.. ég var að giska á 11.5-12.5 en það er kanski of bjartsýnt.

Mér skillst að þessi 300 hestöfl í rallbílnum séu mest funky 300 sem til eru.. en togið í þessum rallbílum er ekki takmarkað ;)

Edit: ég átti einhverstaðar video þar sem S600 sedan bens twin turbo fer 1/4mílu á 11.68 secs. finn það bara ekki.

Author:  Benzari [ Sun 28. Mar 2004 21:11 ]
Post subject: 

fart wrote:
Edit: ég átti einhverstaðar video þar sem S600 sedan bens twin turbo fer 1/4mílu á 11.68 secs. finn það bara ekki.


Það á að vera í videosafninu hérna

S600 Renntech vs Supra??? 2xspyrnur

Author:  Svezel [ Sun 28. Mar 2004 21:13 ]
Post subject: 

Ég myndi halda að Carlsson væri svona 12sek miðað við það að sl55 er að fara niður í 12.6sek. Reyndar ætti hann að vera að fara svona 12.4 miðað við þyngd og afl skv. reikningum.

Já þessi rallyhestöfl eru mjög dularfull og þessi almenni 300hö í rallinu eru líklega nær 400 miðað við hestöfl götubíla. Togið er alveg upp úr öllu valdi á þessu bílum og ekki óalgengt að það sé nálægt 600Nm.

Author:  arnib [ Mon 29. Mar 2004 21:10 ]
Post subject: 

Hvað eigiði eiginlega við með þessi "rallíhestöfl" ?
Eru rallíbílarnir limitaðir við 300 hö í hjól þá eða hvað?

Ástæðan fyrir því að þeir virka svona svakalega er vegna þess að þeir eru með svo ofboðslega mikið tog.

Keppnin milli framleiðendanna snýst ekkert um hver getur náð mestu hestöflunum (því þeir mega einungis ná 300 og ná því allir létt ef þeir vilja), heldur hversu neðarlega á snúningssviðinu þeir geta náð 300 hestöflum og hver getur haldið því yfir mest snúningssvið.

Author:  fart [ Mon 29. Mar 2004 21:17 ]
Post subject: 

amm.. funny shit að takmarka hestöfl en ekki tog.. það er það sem við vorum að meina.

Author:  arnib [ Mon 29. Mar 2004 21:26 ]
Post subject: 

fart wrote:
amm.. funny shit að takmarka hestöfl en ekki tog.. það er það sem við vorum að meina.


Jú sjáðu til, togið er limitað líka :)

Tog og hestöfl er sami hluturinn!

Með því að hestöfl séu takmörkuð við ákveðinn fasta er tog þar með takmarkað við ákveðna línu, þ.e.a.s. ákveðin takmörkin gilda sem fara eftir því á hvaða snúning er verið að ræða.

Author:  Svezel [ Mon 29. Mar 2004 21:33 ]
Post subject: 

Ég sá nú einhverntímann grein þar sem svona WRC impreza var sett í dyno og þá var hún að skila töluvert meira en 300hö, var ef ég man rétt yfir 400...

Auðvitað eru tog og hestöfl eiginlega mismunandi nöfn á sama hlutnum því hestöfl eru jú tog x snúningar.

Author:  gstuning [ Tue 30. Mar 2004 09:35 ]
Post subject: 

Málið með Rallýbíla er að þeir eru limitaðir við 300hö

En.
Það segir ekki að þeir meigi ekki vera 300hö frá 3500(612nm)-7000(306nm)

Þessi power kúrva gerir það að völdum að hröðun er alltaf alveg insane
V8 power í 3500 sem helst í I6 power í 700

3500-7000 og meðalhestöfl 300hö það er boost stýrt, þ.e miklu meira boost í 3500 sem fjarar svo út til að viðhalda 300hö limitinu,,

Gotta love regulations :)

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/