bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Íslensk Renault Megane þolprófun https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=52045 |
Page 1 of 1 |
Author: | ömmudriver [ Sat 16. Jul 2011 21:09 ] |
Post subject: | Íslensk Renault Megane þolprófun |
Ég keypti þennan bíl fyrir um ári síðan á 30.000kr. og dugði hann í hálft ár sem ég kalla helvíti gott ![]() Boddýið er ekið 277.000km. og er búið að skipta einu sinni um vél í honum og var þessi ekin um 170.000km. þegar heddpakkningin gaf sig. Þar sem að boddýið var handónýtt vegna ryðs ákvað ég að rífa bílinn og jú athuga hvað tæki langan tíma fyrir vélina að gefa sig á yfirsnúningi, viti menn það tók rúmar 25mín. fyrir helvítis vélina að gefast upp ![]() ATH: Það þurfti að draga bílinn í gang vegna þess að vélin þjappaði ekki nóg til þess að fara í gang með hjálp startarans en við drógum bílinn smá spöl afturábak og við það gaf sig bitinn sem að dráttaraugað er fest við, gekk til um 15cm. og reif gat á bensíntankinn í leiðinni ![]() ![]() Jíiiiihaw: http://www.youtube.com/watch?v=92C5kuT55f4 Mbk, Arnar Már. |
Author: | maggib [ Sun 17. Jul 2011 21:49 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
![]() ótrúlegt hvað draslið snérist lengi! ég hefði samt klárað bílinn öðruvísi, miklu skemmtlegra að ralla í drasl!! |
Author: | Danni [ Mon 18. Jul 2011 02:30 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
Arnar var fastur á því að klára bara vélina en eiga allt annað til að selja, svo þetta var leiðin sem var valin ![]() *Edit: Fékk samt alveg að finna fyrir því.. var svona rétt áður en við tókum felgurnar undan og drusluðum honum í förgun: ![]() ![]() |
Author: | Mazi! [ Wed 20. Jul 2011 12:54 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
vó gaman.. |
Author: | IvanAnders [ Sun 24. Jul 2011 13:40 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
Er í þessum töluðu orðum að skipta um vél í polonum hjá konunni, sjitt hvað mig langaði að klára hina vélina svona! Orðinn mega þreyttur á henni!!! Guggnaði samt á því til að skemma alveg örugglega ekki eitthvað sem ekki má skemmast ![]() |
Author: | ömmudriver [ Sun 24. Jul 2011 18:52 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
IvanAnders wrote: Er í þessum töluðu orðum að skipta um vél í polonum hjá konunni, sjitt hvað mig langaði að klára hina vélina svona! Orðinn mega þreyttur á henni!!! Guggnaði samt á því til að skemma alveg örugglega ekki eitthvað sem ekki má skemmast ![]() Hahaha spurning hvort að VW vélin hefði enst jafnlengi og sú franska ![]() |
Author: | bimmer [ Sun 24. Jul 2011 19:14 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
Einum frönskum bíl færra = ![]() |
Author: | ömmudriver [ Mon 25. Jul 2011 10:04 ] |
Post subject: | Re: Íslensk Renault Megane þolprófun |
bimmer wrote: Einum frönskum bíl færra = ![]() Jessör, win win dæmi fyrir utan það að nú er skúrinn minn fullur af varahlutum úr frönskum bíl ![]() ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |