bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
[OT]Smá úps https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=25163 |
Page 1 of 1 |
Author: | Aron Andrew [ Tue 23. Oct 2007 00:19 ] |
Post subject: | [OT]Smá úps |
Frétt af mbl Quote: Margri fyrirsætunni hefur orðið fótaskortur á sýningasviðinu, en fáum jafn hastarlega og Söru Walsh, sem féll niður um gat sem brotnað hafði í sviðið á tískuvikunni í Los Angeles í síðustu viku. Hefur myndband af óhappinu farið mikla sigurför á YouTube síðan.
Bardagalistamaður braut gatið á sviðið í sýningaratriði sínu skömmu áður, og þegar Sara gekk fram starði hún beint fram fyrir sig, því að, eins og hún sagði síðar, fyrirsætur „verða að bera höfuðið hátt.“ Þannig að hún varaði sig ekki á gímaldinu. Myndbandið hafði í dag verið skoðað oftan en milljón sinnum á YouTube og Sara vakið mikla athygli. Hún lætur þetta ekki á sig fá, og segist sjálf hafa gaman af því að horfa á myndbandið. Frekar hart ![]() |
Author: | Angelic0- [ Tue 23. Oct 2007 01:12 ] |
Post subject: | |
svekk ![]() |
Author: | bjahja [ Tue 23. Oct 2007 01:59 ] |
Post subject: | |
Þetta er bara fyndið, greyið stelpan samt ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |