bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

RNGTOY á SPA
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=22856
Page 1 of 1

Author:  bimmer [ Tue 26. Jun 2007 16:06 ]
Post subject:  RNGTOY á SPA

Hér eru nokkrir hringir á SPA, mest frá því snemma um morguninn
þegar allt var frekar blautt. Fór því frekar varlega á semislikkunum sem
voru líka alveg að klárast.

Og btw þessi E30 bíll sem strumpast út beina kaflann er víst 700hp :shock:

http://www.onno.is/thordur/almennt/Eurotour2007_2/SPA_230607.wmv

Author:  jens [ Tue 26. Jun 2007 16:34 ]
Post subject: 

Maður getur lifað spennandi lífi í gegnum þig Þórður 8) . Skemmtilegt að horfa á þetta, keyrði þessa braut í svo mikið í F1 PS að ég vissi nákvæmlega hvað kæmi næst. Greinilega hækt að hafa mikið gagn af þessum leikjum.
Langar að spurja þig, nú hefur þú keyrt bæði ONNO og RNGTOY á pro brautum hver er munurinn á bílunum svona yfir allt.

Author:  iar [ Tue 26. Jun 2007 23:54 ]
Post subject: 

Úff hvað þessi braut hlýtur að vera skemmtileg!

Og litla hvað E30 strumpurinn strumpast út í strumpinn!! :lol:

Author:  fart [ Wed 27. Jun 2007 08:10 ]
Post subject: 

Magnað, hrikalega góð gæði úr þessari litlu bulletcam.

Bíllinn er svo hávær að mic-inn crappar út í midrangeinu. 8) :lol:

Author:  bimmer [ Wed 27. Jun 2007 11:47 ]
Post subject: 

jens wrote:
Maður getur lifað spennandi lífi í gegnum þig Þórður 8) . Skemmtilegt að horfa á þetta, keyrði þessa braut í svo mikið í F1 PS að ég vissi nákvæmlega hvað kæmi næst. Greinilega hækt að hafa mikið gagn af þessum leikjum.
Langar að spurja þig, nú hefur þú keyrt bæði ONNO og RNGTOY á pro brautum hver er munurinn á bílunum svona yfir allt.


Þetta eru mjög ólíkir bílar og svo skekkir það líka myndina að þeir
eru ekki á eins dekkjum.

RNGTOY er miklu hraðari í beygjuköflunum og maður er miklu öruggari
með hann þar. Maður veit alveg hvað hann er að fara að gera og
gripið er svakalegt þegar dekkin eru í standi.

ONNO er miklu hraðari á beinu köflunum en svo versnar málið þegar
kemur að beygjum - hann vill helst halda áfram út í skóg. Væri hins
vegar áhugavert að prufa hann líka á non staggered semi slick dekkjum
eins og RNGTOY er á.

Málið er bara að það þarf svo svakaleg átök til að koma svona þungum
bíl eins og ONNO hratt á braut - allt slitnar hratt og maður þarf að taka
meiri sénsa.

Author:  jens [ Wed 27. Jun 2007 16:42 ]
Post subject: 

Þetta er svipað og ég var að ímynda mér, þarf að fara að koma mér á leikdaga í sumar.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/