bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Óheiðarleg verkstæði
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=6&t=15904
Page 1 of 2

Author:  bimmer [ Tue 06. Jun 2006 23:13 ]
Post subject:  Óheiðarleg verkstæði

Ætli bransinn sé eitthvað svipaður hér heima????

http://www.nbc4.tv/video/9152183/detail.html

Author:  zazou [ Tue 06. Jun 2006 23:24 ]
Post subject: 

Þetta er svakalegt :shock:

Svona á að negla þessa kóna.

Author:  IceDev [ Tue 06. Jun 2006 23:25 ]
Post subject: 

Ég myndi trompast ef að ég kæmist að þessu.


Það er ekki eins og þetta sé ódýrt fyrir en að svindla á manni er bara lowest of the low

Author:  ///Matti [ Tue 06. Jun 2006 23:52 ]
Post subject: 

BUUSTEED :lol:
Þetta er ástæðan fyrir því að ég hef alltaf smurt mína bíla sjálfur..
Vann reyndar líka á smurstöð..

Author:  gstuning [ Tue 06. Jun 2006 23:53 ]
Post subject: 

Gott move, það þarf að gera svona mjög reglulega til að halda þessum companíum í skefjum

Author:  Hrannar [ Wed 07. Jun 2006 00:42 ]
Post subject:  Svindl

Ég veit til þess að menn hafa verið að gera þetta með smáhluti
eins og rúðupiss. Hef þetta frá fyrstu hendi. Mágkona mín lenti í því.
Þetta eru kannski smáaurar en menn eru samt að stunda þetta.

Author:  basten [ Wed 07. Jun 2006 01:08 ]
Post subject: 

Sorglegt!!!
Ótrúlegt hvað menn geta verið ómerkilegir.

Author:  finnbogi [ Wed 07. Jun 2006 02:19 ]
Post subject: 

ekki að ég sé óánægður með mína smur stöð þá meiga þeir aðeins vanda frá gang á hlutunum því þegar ég tjakkaði minn upp í gær og var bara kíkja á
stýrist endana hjá mér, svo tók ég eftir olíubletti á gólfinu og svo sé ég að boltinn í pönnuni var bara á síðasta snúning að detta úr þannig ég tók bara mynd af þessu og vil bara benda þeim á að herða þetta alltaf vel :) því ekki er gaman að vera á leið í vinnu og svo allt í einu er enginn olía á vélinni og allt er ónýtt undir húddinu :roll:

og eru ekki dæmi um að smurstöðvar hafi þurft að borga nýjar vélar ofan í bíla sem svona kemur fyrir og öll olía fer af vélinni ??

Author:  IceDev [ Wed 07. Jun 2006 02:31 ]
Post subject: 

Talandi um smurstöðvar


Ég mæli ekki með smurstöðini á Múlaveg....hef aldrei séð eins slæman umgang á bíl...fór með Land cruiser föður míns og það var gengið um hann eins og þetta væri eitthvað landbúnaðartæki


Hinsvegar mæli ég með smurstöðini rétt hjá stöðini og löður í hfj...


Alltaf vel tekið þar og vandaður frágangur

Author:  ömmudriver [ Wed 07. Jun 2006 04:38 ]
Post subject: 

Váááá :shock: Talandi um smurþjónustu :evil:
Ég á heima í Keflavík og ég fer mjög reglulega með bílinn í smurningu og hef alltaf horft á, ekkert af því :wink: En síðasta sumar þá var ég bara það upptekin í vinnunni að ég gat ekki fylgst með eða beðið eftir bílnum þannig að ég skildi bílinn eftir á verkstæðinu en sagði við eigandann(sem á E39, by the way :wink: ) að bíllinn hafi síðast verið í smurningu hjá B&L(Inspection II) og því þyrfti ekki að skipta um á skiptingunni(tékkaði á henni áður en ég lét þá hafa bílinn og hún var í topplagi þ.e.a.s. oillevel'ið). Þegar ég lét þá hafa bílinn þá var hann ekki kominn í vinnslu hita(bara rétt fyrir ofan bláa strikið) og hann var alveg kaldur þegar ég setti hann í gang eftir olíuskiptinn, enn, þegar ég sæki bílinn og ætla að borga þá segir hann að þeir hafi skipt um á ssk. :shock: Minns var ekki sáttur og endurtók að hann var síðast í B&L og allt í gúddí, en þá sagði hann að það hafi vantað upp á level'ið og því skiptu þeir um. Ég (ekta íslendingur) borgaði því bara en ætlaði ekki aftur með bílinn á þetta verkstæði. Ég kíki aðeins á rúntinn(til þess að leyfa bílnum að ná vinnsluhita) og mæli svo á vél og ssk., guess what :evil: það er nú of mikið á ssk., ég fór daginn eftir og heimta að það sé skipt um á ssk., já ok. en fyrst vildu þeir reyna að sjúga uppúr henni, þeir ná í eitthverskonar dælu með alveg ógeðslega skítugu glæru röri :? . Þeir setta það ofaní ssk. og sögðu að þetta rör væri alveg í lagi, svo eru þeir þarna þrír!! saman að reyna sjúga uppúr ssk. en kunnu ekki rassgat á þetta tæki. Þá kemur eigandinn inn, sér hvað þeir eru að reyna að gera-rekur upp svaka svip og segir þeim að hætta a.s.a.p., því þetta sé notað til þess að "blæða bremsukerfi". Ég útskýrði þetta fyrir honum og hann og minns ákv. í sátt að það sé best að einfaldlega skipta um á ssk. Bíllinn er settur upp á lyftu(ég var nýkominn úr rvk. og var búinn að tilkynna þeim það) og eitthver gaur þarna sagðist ætla að prófa fyrst að losa aðeins tappann undir ssk. og taka bara það sem þarf af henni svo að það þurfi ekki að skipta um á ssk., ég setti upp spurningarsvipinn og spurði hvort að það væri ráðlagt þar sem að vökvinn á ssk. sé líklegast "frekar" heitur þar sem ég var að koma úr rvk., hann= nei, nei, þetta verður í lagi :lol:
Hann losar pönnutappan og það lekur þessi fallega rauði og brennheiti ssk.vökvi yfir berar hendurnar á honum, og dööööh hann sagði að vökvinn væri soldið heitur :shock: .

Author:  Stebbtronic [ Thu 08. Jun 2006 19:02 ]
Post subject: 

Mig grunar að verkstæði geri þetta líka, þeas að svindla á vinnustundum. Það væri gaman að setja svona myndavél í húddið hjá sér og tékka hvort að vinnustundir passi við reikninginn. Bifvélavirkjar eru þeir einu sem tekst að ná 30+ klst út úr einum sólarhring :wink: :)

Author:  Geirinn [ Thu 08. Jun 2006 20:39 ]
Post subject: 

Hmm..

Aldrei pælt í þessu áður en þetta er sjálfsagt einhverstaðar gert. Ég persónulega treysti mínu smurverkstæði.. og þá sérstaklega þar sem ég hef horft á hingað til og ekkert verið að...

Held að þetta sé nú bara svona með öll störf þar sem fólk er orðið leitt á... fólk fer að trassa hluti.

Hins vegar í vídjóinu... þetta er náttúrlega bara mafía.

Ég væri helst til í að vita hvernig maðurinn ræður starfsfólk.. "Þú þarft ekki að kunna að gera við neitt." "Ef það kemur einhver hingað og biður þig um að skipta um vökva eða síur þá sleppirðu því." "Reyndu að bjóða fólki dýrustu vökvana." etc...

Author:  freysi [ Fri 09. Jun 2006 00:30 ]
Post subject: 

hann segir þetta bara beint í myndavélina að þetta sé samsæri hjá fyrirtækinu.

"they caught us on camera"


:evil:

Author:  nitro [ Fri 09. Jun 2006 11:38 ]
Post subject: 

Ef þið hafið gaman af svona BÖSTED momentum þá er þetta snilld:
http://www.msnbc.msn.com/id/10912603/

To Catch a Predator.. verið að bösta barnaperra sem eru að fara hitta 12-14 ára gamlar stelpur og stráka.. mæta bara beint í viðtal við Chris Hansen hjá Dateline.. fyndið.. og sorglegt..

Þetta er hugmyndin sem kompás lánaði/stal en þessir eru ekki jafn góðir og kompás, ekkert blurrað andlit og þeir eru kynntir með fullu nafni og hvað þeir vinna við... og svo beint í jailið hehe

Author:  IceDev [ Fri 09. Jun 2006 14:42 ]
Post subject: 



Þetta er hnyttið...

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/