Alpina wrote:
en að fara í verkfall ef menn vilja sama eða meira fyrir minni vinnu

Ég vil bara benda á að við erum ekki í verkfalli. Það EINA sem við erum að gera er að vinna ekki í frítíma okkar. Við eigum 9 frídaga í mánuði, það er lööööngu búið að benda fyrirtækinu á að ráða fleiri menn fyrir sumarið (í vetur) en þeir vilja það ekki. Við mönnum allar vaktir sem við erum settir upp á, ásamt varavaktir (sem við erum venjulega settir upp á til að mæta ófyrisjáanlegum atvikum). Félagið hefur hunsað það og kýs að stóla að það að menn komi og vinni í frítíma sínum þrátt fyrir allt.
Þetta heitir ekki verkfall
En hitt er annað mál að hver vill ekki hærri laun og minni vinnu

Er ekki eitthvað að hjá fyrirtæki sem halar inn milljarða og vill ekkert gefa til starfsmanna?
Flugvirkjar fóru í verkfall
Flugmenn eru í aðgerðum
Flugfreyjur hafa vísað sínu til sátta....
Er þetta ekki frekar augljóst mál?
Sjáið t.d. Elkem. Þar er nýbúið að semja, fyrirtæki sem gengur vel hjá. Það greiðir út bónus til starfsmanna, hækkar laun og bætir við 13 mánuðinum til starfsmanna!
Eru fyrirtæki til þess að moka inn peningum fyrir eigendur á kostnað alls annars? Eða eru þau til að gagnast þjóðfélaginu, eigendum og þeim sem vinna hjá þeim? Kannski er það úrelt og gamaldags hugsun?
Nýja Ísland hvað
