gulli wrote:
Biðst forláts á því að hafa farið með rangt mál hvað yfirvinnu varðar
En hvað sem því líður þá finnst mér ekki rétt að standa að þessu eins og hefur verið gert þar sem það kostar svo fjölda mörg fyrirtæki í landinu tekjumissir.
ps: það er talað um það í fjölmiðlum að flugmenn séu í verksfalls aðgerðum

Allt í fínu með misskilningin, þú ert ábyggilega ekki einn um að halda að við séum að moka inn seðlum með yfirvinnu.
Ég veit að það er talað um það í fjölmiðlum að við séum í verkfallsaðgerðum, en það ásamt mörg fleiri atriði eru bara ekki rétt. T.d. þegar verið er að tala um laun okkar, þá eru taldar með lífeyrisgreiðslur okkar, pening sem við sjáum aldrei útborgaðan.
Það er frekar erfitt að fá hlutlausa umræðu í fjölmiðlum þegar fyrirtækið sem við eigum í deilum við er einn stærsti kaupandi auglýsinga hjá þeim. Fjölmiðlar þora ekki fyrir fimm aura að rugga bátnum.