bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

E38 - BMW 750 IL árg. 1998 !! *Nýjar myndir 25.01.2005*
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=7597
Page 1 of 4

Author:  gudni [ Tue 28. Sep 2004 14:24 ]
Post subject:  E38 - BMW 750 IL árg. 1998 !! *Nýjar myndir 25.01.2005*

( *Nýjar myndir og update þann 25.01.2005 á bls. 3* - Blaðsíða 3 )

Góðan dag BMW félagar!!

Hérna eru nokkrar myndir af bílnum mínum sem ég var að kaupa, en hann er BMW 750 IL árgerð 1998. Bíllinn er alveg lódaður af aukahlutum og er á splunkunýjum Rondell 58 álfelgum (18"x10" að aftan og 18"x8,5" að framan). Hann er nýkominn hingað heim frá Þýskalandi, hann kom á götuna 10. sept. 2004 og Ágúst Magnússon flutti hann inn fyrir mig (Magnusson ehf.) og allt var í topp málum með þetta!! Meiriháttar fallegur og skemmtilegur bíll og ekki skemmir fyrir að hann hefur aldrei verið þveginn með kústi og lakkið er nánast óaðfinnanlegt!!

Svo að ég telji upp einhverja af aukahlutunum: Svart leður, loft-nudd í framsæti, hiti í sætum, topplúga, Xenon ljós, kastarar í framstuðara, glær stefnuljós að framan og aftan, rafmagn í framsætum og í aftursætum, tvöfallt gler (skothelt segja einhverjir..), speglalitaðar hliðarrúður, Topplúga, 6 diska CD magasín, sjónvarp með textavarpi, GPS staðsetningartæki, segulband, raddstýrður GSM sími í mælaborði, driflæsing, spólvörn, skrikvörn (stöðugleikakerfi), hleðslujafnari, rafmagn í rúðum, speglum og stýri, hraðastillir, þjófavörn, fjarstýrðar samlæsingar, ABS hemlar, airbags, loftkæling, rafmagn í skottloki, fótskemill fyrir aftursætisfarþega, flott lesljós fyrir aftursætisfarþega, rafdrifnir höfuðpúðar afturí, rafmagnsgardína í afturrúðu, gardínur í hliðarrúðum afturí, auka sett af álfelgum

En hérna koma myndirnar!!

BMW Kveðja..!! Guðni Þorbjörnsson


Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image


( *Nýjar myndir og update þann 25.01.2005 á bls. 3* - Blaðsíða 3 )

Author:  Kristjan [ Tue 28. Sep 2004 14:27 ]
Post subject: 

Maður lifandi hvað þetta er vígaleg græja. Til hamingju.

Author:  jth [ Tue 28. Sep 2004 14:45 ]
Post subject:  Re: E38 - BMW 750 IL árg. 1998 !!

gudni wrote:
...tvöfallt gler (skothelt segja einhverjir


Bara ein leið til að komast að því :naughty: !

Vígaleg græja - ótrúlega vel búinn. Til lukku!

Author:  davidg [ Tue 28. Sep 2004 15:05 ]
Post subject: 

Glæsilegur bíll, til hamingju.. :D

Author:  gunnar [ Tue 28. Sep 2004 15:11 ]
Post subject: 

Þú skrifar að það séu Xenon ljós í bílnum, ertu viss með það eða er skjárinn bara að plata mig ?

BTW Geðsjúkur bíll!

Author:  hlynurst [ Tue 28. Sep 2004 15:12 ]
Post subject: 

Geggjaður!

Alltaf verið draumurinn að taka einn "rúnt" til Akureyrar á svona bíl. :)

Author:  íbbi_ [ Tue 28. Sep 2004 15:17 ]
Post subject: 

eins flott og það verður.

Author:  Jss [ Tue 28. Sep 2004 15:20 ]
Post subject: 

Glæsilegur bíll, hvað er hann annars ekinn? (Því það sér varla á honum allavega að sjá svona á myndunum.) :shock:

Engin smá lúxuskerra.

Author:  jonthor [ Tue 28. Sep 2004 15:48 ]
Post subject: 

Vá, gott er þetta er ekki bara fallegasti E38 sem ég hef séð á skerinu!

Author:  gudni [ Tue 28. Sep 2004 15:50 ]
Post subject: 

Hann er ekinn 136 þúsund km og er alveg ótrúlega fallegur á lakki og bara á öllu, það sér varla á bílnum. Jú og þetta með ljósin það átti örugglega að vera Xsenon aðalljós en ekki Xenon.

Kv, Guðni Þ.

Author:  Benzari [ Tue 28. Sep 2004 16:36 ]
Post subject: 

"Glæsibær", til hamingju

Author:  Kristjan [ Tue 28. Sep 2004 17:16 ]
Post subject: 

gudni wrote:
Hann er ekinn 136 þúsund km og er alveg ótrúlega fallegur á lakki og bara á öllu, það sér varla á bílnum. Jú og þetta með ljósin það átti örugglega að vera Xsenon aðalljós en ekki Xenon.

Kv, Guðni Þ.


Xsenon? Baking powder?

Author:  Schnitzerinn [ Tue 28. Sep 2004 19:34 ]
Post subject: 

Pshyco pumpin cocaine CRAZY !!! Sérlega fallegur og ruddalega svalur 8)

Til hamingju :clap:

Author:  Alpina [ Tue 28. Sep 2004 19:55 ]
Post subject: 

MIKILL.......og vel búinn vagn

Author:  fart [ Tue 28. Sep 2004 20:18 ]
Post subject: 

THATS A HUGE BITCH!

Svakalegur bíll.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/