bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E30 1990 M50B25 - MAZI https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70187 |
Page 5 of 8 |
Author: | Mazi! [ Wed 03. Nov 2021 00:10 ] |
Post subject: | Re: E30 316i 1990 - BSK swap BLS:4 |
Fékk þennan ágæta M50B25 Vanos motor úr 525IX bíl hjá Sæma Eins og sést er alveg smá verk fyrir höndum, það þarf að endurnýja, þrífa og laga allskonar hluti á þessum motor en hann er í góðu lagi. Byrjaði á að redda E30 véla rafkerfis plöggi til að víra upp M50 rafkerfið fyrir e30 Sleit rafkerfið af mótornum, það er innbyggt sjálfskipti loom í þessu og allskonar auka vírar sem ég klippti alla burt E30 pluggið komið á loomið Til að koma M50 ofaní e30 þarf minni brake booster, keypti þennan sem kemur úr Porsche 944 944 booster VS orginal e30 booster Kominn í bílinn Þar sem þetta er IX motor þarf að Skipta um, pönnu, pickup ofl Einnig er tölvan sem fylgdi mótornum EWS læst svo ég keypti þessa RED LABEL sem er laus við EWS Sá að hún hefur einhverntímann verið opnuð svo ég ákvað að opna hana og skoða, þá kom í ljós að búið er að setja eitthvað aftermarket tuning chip í hana,,, það er eflaust bara fínt,, kannski hærra rev og eitthvað Þessi motor er auðvitað gamall og margt komið á tíma keypti því allskonar dót og drasl sem mig fannst ástæða til að endurnýja Ventlalokspakkning Þéttingar um ventlaloks rær Olíutappi Viftureim Olíusíur 3stk Vatnslás Vatnsdæla Pakkning á spjaldhús soggreina pakkningar Sveifaráslega (pilot bearing) Sveifaráspakkdós að fr. Sveifaráspakkdóst að aft. Púst pakkningar neðan á greinar 6stk Kerti Bosch súrefnisskynjari Viftureimastrekkjari Strekkjarahjól Leiðarahjól Pakkning á bakvið olíusíuhús Vatnshæðanemi í forðabúr Viftukúpling Neðri vatnskassahosa Efri vatnskassahosa Smellur í fanshroud Kælivatnshita skynjari pústgreinapakkningar Vatnskassi Pústgreina rær Pústgreina stöddar Trissuhjól á vatnsdælu 6stk ný háspennu kefli 6stk Kertaþráða stykki neðan á háspennukefli Inntakshosa hosa í hægagangsventil efri hosa í hægagangsventil neðri Tappi á kælivatnsforðabúr Kvarðarör Kvarði Flywheel boltar Ireland Engineering pólý mótorpúðar Ireland Engineering pólý gírkassapúðar 6cyl mælaborðs kubbur 4stk lok í plöst á ventlalok Vatnsláshús ventlaloks rær blablabla er sennilega að gleyma helling.... byrjaði á að slíta IX pönnuna af ásamt pickup ofl og setja venjulega e34 pönnu, pickup ofl. Tók ventlalokið af og hreinsaði það með öllum sterkustu efnum sem ég fann og það var vægast sagt samt ógeðslega ljótt svo ég fór með það í pólí húðun Ventlalokið komið á ásamt nýjum kertum, nýjum orginal háspennukeflum, vatnsláshúsi, vatnsdælu, vatnsdælu trissu ofl ofl… Þessar ryðguðu orginal pústgreinar eru ógeð,, ég varð að gera eitthvað í því svo ég keypti þessar Equal length stainless flækjur Sandblés olíusíu húsið, lét snitta fyrir olíuhitaskynjara og málaði það. Nýr viftureimastrekkjari, strekkjarahjól og leiðahjól komið á Næsta skref var að slíta þessa ömurlegu M40 hækju úr Vélarsalurinn var mjög skítugur,, djöflaðist og hamaðist á honum með allskonar hreinsiefnum og þetta er mun betra Mótorinn að bíða, kominn með gírkassa og nánast klár ofaní Aron Jarl smíðaði þessa motor arma fyrir mig, kosturinn við þá er að mótorinn kemst mun aftar en með e36 örmum eins og flestir nota,, einnig notar maður bara venjulega M20 mótorpúða með þessu,, en í mínu tilfelli notast ég við M20 Poly motor og gírkassa púða frá Ireland engineering Nýtt oem fanshroud til að hafa þetta almennilegt Nýtt dipstick og rör frostlögur auðvitað og olía,, ætla að starta upp á þessari olíu og Skipta fljótt aftur, því mótorinn er búinn að standa ógangsettur í nokkur ár Ofaní með draslið Fanshroud, viftukúpling, vatnskassi, hosur allt nýtt og smell passar Bíllinn er hrokkinn í gang og motor malar ljúft, en það er samt nóg eftir að gera! Klára hinn og þennan frágang á rafkerfi, smíða pústkerfi ofl! Það kemur í næsta update seinna. |
Author: | jens [ Thu 04. Nov 2021 08:54 ] |
Post subject: | Re: E30 M50B25 1990 - M50 Swap BLS:5 |
Þetta er metnaður eins og alltaf hjá þér, þetta verður eitthvað |
Author: | Mazi! [ Sat 27. Nov 2021 20:51 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Keypti slöngurnar nýjar fyrir ventlaloks öndunina Svo keypti ég þessa hlíf nýja sem kemur bara í e30 m3 til að hafa vélarsalinn aðeins snyrtilegri Kemur helvíti vel út,, þarf eiginlega að splæsa í hlífina þarna við hliðina á líka nýja núna Þá er allt klárt í vélarsal og vel frágengið, það eina sem er mökk ljótt er þessi rauða loftsía,, (henni verður skipt út seinna) Nú er M50 6cyl svo ég pantaði þennan kubb í mælaborðið sem er fyrir 6cyl mótor og 8000RPM mælaborð til að hafa snúningsmælinn réttan Kubburinn kominn í, olíuhitamælir tengdur og speed signal tengt úr mælaborði yfir í vélartölvu Svo var ég svo heppinn að vinna í Facebook leik hjá Valhalla Design sem tekur að sér alla bílabólstrun, þeir tóku Mtech-1 stýrið mitt í gegn var orðið ansi snjáð og ljótt Tók svo ljóta gúmmí harmonikku handbremsu pokann úr og skipti honum út fyrir leður Svo kom þessi skemmtilegi pakki frá Úkraínu Í honum voru þessi MHW replica afturljós Þreif fölsin vel áður en ég setti þau í Nú bíður bíllinn bara eftir rest af efni til að smíða pústið sem verður ryðfrítt alla leið og tig soðið |
Author: | JOGA [ Sat 27. Nov 2021 21:09 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Virkilega vandað og flott að sjá Sent from my SM-G996B using Tapatalk |
Author: | Kristjan [ Tue 30. Nov 2021 21:21 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Virkilega flott og þetta stýri er ekkert smá vel gert. |
Author: | Mazi! [ Tue 07. Dec 2021 19:16 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Þá er það púst smíði, ákvað að það verði alveg ryðfrítt allaleið og 3" svert sem er vissulega overkill fyrir N/A M50B25 en ég nenni ekki að þurfa henda pústkerfinu í ruslið þegar ég dett á hausinn einn daginn og túrbóa þetta dót Nýjar OEM púst upphengjur Nýr súrefnisskynjari frá Bosch, ryðfrí weld on ró fyrir súrefnisskynjara, boltar í flangs og koparlásrær Ryðfrítt "Y" pipe til að sameina frá flækjum í single 3" Lét laser skera út pústflangsa úr ryðfríu efni Súrefnisskynjarinn, ryðfrí 3" V-band klemma og flangsar 2.25" og 3" rör og beygjur allt ryðfrítt auðvitað Vibrant 1047 endakútur með 3" Inlet og 2x 3.5" outlet ryðfrír Vibrant 1142 miðjukútur 3" inn og út ryðfrír,, beið eftir honum í margar vikur útaf backorder úti því miður náði Nói kisinn minn ekki að skoða hann líka því hann lést úr veikindum í millitíðinni Flott stöff Smíðin byrjuð, mesti hausverkurinn var að smíða þetta "Y" stykki frá flækjum og í 3",, endalaust af beygjum og frekar lítið pláss "Y" stykkið klárt í að verða heilsoðið (tig soðið) "Y" pipe klárt og róin fyrir súrefnisskynjarann líka Þá tók við 3" smíðin Þá er þetta klárt í að verða heilsoðið, verður tig soðið með bakgasi Vignir og Árni félagar mínir eiga allan heiður af þessari frábæru smíði,, gott að eiga góða og klára vini! Næsta update verður ísetning á þessu ásamt soundclip |
Author: | JOGA [ Tue 07. Dec 2021 20:31 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Vel gert! Virkilega flott. Hlakka til að sjá meira Sent from my SM-G996B using Tapatalk |
Author: | Mazi! [ Tue 14. Dec 2021 21:37 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Keypti þessa loftsíu sem er mun skárri útlitslega séð en þessi rauða ricer sía Mun betra! Pústið klárt! Komið undir bílinn Súrefnisskynjari á sínum stað Tók vídeó af hljóðinu, mjög sáttur með soundið, verður gaman að heyra þetta utandyra samt (glimur í öllu þarna inni) Nú má bara fara koma sumar! |
Author: | jens [ Wed 15. Dec 2021 07:45 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Verulegur metnaður |
Author: | bimmer [ Wed 15. Dec 2021 09:05 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Frábært! |
Author: | gulli [ Tue 21. Dec 2021 16:41 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Geggjaður |
Author: | Mazi! [ Tue 04. Jan 2022 23:31 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Tók smá prufurúnt á bílnum um daginn þegar veðrið var þokkalegt og hljóðið er alveg geggjað! hinsvegar ákvað ég að prófa fíflast aðeins í einu hringtorgi og þá bara sveik helvítis læsta drifið alltaf ég gat ekki haft drifið svona lélegt svo ég keypti upptektar sett í læsinguna frá racingdiffs,, fór í Stage 1 breytingu sem breytir læsingu úr 25% í 40% Við Árni slitum drifið strax undan Þreif þetta með alskonar sterkum efnum og djöflaðist á þessu með vírbusta áður en drifið var tekið í sundur Byrjað að tæta Þetta klárt í sandblástur Svo fór læsingin í sundur Hér má sjá afhverju drifið var að svíkja, diskarnir handónýtir Nýju diskarnir sem eru 3stk í staðinn fyrir 2 sem eru orginal Læsingin komin saman næsta skref er að mála húsið til að gera þetta aðeins fínna Lokið og smáhlutir komið úr blæstri Til að lokið haldist fínt ákvað ég að glæra yfir það eftir blásturinn Þá er þetta klárt Drifið fer hinsvegar ekki beint í bílinn heldur upp í hillu, því framundan eru miklar framkvæmdir undir bílnum, er að fara taka subframe og allt undan bílnum að aftan ásamt fjöðrun ofl. (setja alvöru ///hjólabúnað í hann) |
Author: | jens [ Wed 05. Jan 2022 14:14 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Flott vinna á þessu hjá þér eins og venjulega |
Author: | Mazi! [ Sat 15. Jan 2022 01:11 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - M50 Swap BLS:5 |
Þá byrjar en annar kaflinn,, seldi Borbet A felgurnar því framundan er E30 M3 5lug swap $$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$ Bíllinn stendur eins og er á bara einhverju felgu drasli þangað til byrjað verður að rífa allt undan og skipta út,, Þetta er dýrasta og flottasta leiðin til að fara í 5lug swap í e30 (það er ekki spurning) en vegna þess hef ég verið að safna saman dóti sem þarf til að klára þetta í marga mánuði en nú er ég kominn með flest það mikilvægasta í þetta verkefni sem byrjar á E30 M3 KW Variant 1 fjöðrunarkerfi sem KW umboðið á íslandi (Massabón) græjuðu heim fyrir mig á frábæru verði Svo er ég með hér: E30 M3 höbba að aftan b/m E30 M3 Rykhlífar að aftan b/m E30 M3 Bremsukjamma að aftan b/m E30 M3 Klossa og þreifara að aftan eitthvað drasl í handbremsuna ofl Tók svo 95a pólífóðringa kit frá Garagistic í allan bílinn Svona afþví ég var kominn með drifið uppí hillu og þessar fóðringar komnar ákvað ég að installa driffóðringunni til að byrja á þessu aðeins Eins og sjá má er fullt að drasli komið í þetta en mig vantar líka helling af smádóti áður en ég byrja. |
Author: | bimmer [ Sat 15. Jan 2022 14:53 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - E30 M3 5LUG swap BLS:5 |
Geggjað. En af hverju poly? |
Page 5 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |