bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E30 1990 M50B25 - MAZI https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70187 |
Page 8 of 8 |
Author: | Mazi! [ Sat 25. Nov 2023 21:45 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - Kominn í lag BLS:7 |
Þessi ljós eiga að svipa til MHW ljósa samkvæmt Garagistic en eru að mínu mati ekki nógu lík svo ég ákvað að gera smá tilraun til að láta þau líkjast ekta MHW ljósum betur og held það hafi bara tekist nokkuð vel hjá mér Allt annað að mínu mati,, verður samt kannski aldrei 100% eins og ekta MHW en þetta er alveg nokkuð gott.. góð ekta MHW kosta í dag ruglaða peninga |
Author: | Mazi! [ Fri 09. Feb 2024 20:42 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - Kominn í lag BLS:7 |
Fékk þennan skemmtilega pakka frá Adam Jones á facebook, vel pakkað inn! Í pakkanum var heckblende/númeraplötupanell frá Shakra,, mjög kúl stöff!! Skellti honum á ásamt nýjum töppum fyrir númerplöturammann Mjög sáttur með þessa breytingu svo eitt smáatreði sem vantaði í aftursvuntuna.. sá þetta í ETK og hef ekki séð þetta í neinum e30 þá varð ég að panta þetta Svo langaði mig í klútinn sem á að vera í verkfærasettinu til að fullkomna það,, fann eftirlíkingu af honum á eBay sem ég pantaði næsta mál var að taka teppið úr bílnum og fríska uppá það,, orðið frekar upplitað Byrjaði á því að hella þvottaefni yfir teppið, nudda það vel, háþrýstismúla og djúphreinsa Svo var það látið þorna í viku áður en ég fór að lita það með svörtu hálfnað verk Mikill munur, allt annað! Klárt Splæsti í dashcam kerfi, myndavél að framan og aftan sem tekur líka upp þegar bíllinn er kyrrstæður í bílastæði ef einhver hreyfing á sér stað tók engar myndir af því installi en það virkar mjög vel!. afturhillan komin í með gardínunni uppi,, sést smá í aftari myndavélina þarna á bakvið gardínuna Eins og sést á þessari mynd tók ég allt í sundur að innan,, bæði til að taka teppið úr og installa þessu myndavélakerfi En þetta er allt að detta saman aftur sætin, hátalarahlífar og rest fer saman í næsta update,, er að laga framsætin aðeins áður en þau fara aftur í bílinn. |
Author: | Mazi! [ Sun 10. Mar 2024 22:41 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - Kominn í lag BLS:7 |
Keypti 51472223984 E30 M3 Evolution dead pedal af Adam Jones $$$$$$$$ Þetta er vel rare stuff og kostar ógeðslega mikið fyrir það sem þetta er, kom bara í M3 Evo og M3 Cecotto orginal, var hægt að kaupa sem aukahlut frá BMW á sínum tíma en þetta er löngu ended item. til að setja þetta í bílinn þarf þetta litla bracket 6131370734 að vera undir hátalara hólfinu það eru til orginal leiðbeiningar frá BMW hvernig á að installa þessum pedala í og samkvæmt þeim þá þarf að "trimma" af hátalara hlífinni en það er lítið mál því þær eru með þessari línu á bakvið sem sýnir nákvæmlega hvar maður tekur af hlífinni,, ég notaði band slípi vél til að slípa af henni að línunni Komið í |
Author: | bimmer [ Fri 15. Mar 2024 16:48 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - Kominn í lag BLS:7 |
Allt að gerast! |
Author: | Mazi! [ Sun 12. May 2024 21:52 ] |
Post subject: | Re: E30 1990 M50B25 - Kominn í lag BLS:7 |
Kominn tími á smá update rafgeymirinn var dáinn eftir vetardvalann, svo ég splæsti í stæðsta geyminn sem passar í e30 (100ah Varta) fékk svo þetta fína handbremsu handfang frá Póllandi,, leðrað með ///M saumum í stíl við stýrið sem var tekið í gegn passar vel við stýrið Gamla draslið úr nýja í svo keypti ég M3 Evo Rauð belti notuð á eBay á helling af peningum,,, nema hvað...... eftir að hafa skoðað þau vel er ég pínu hræddur um að hafa verið tekinn pínu ósmurt.. grunar að þetta séu venjuleg e30 belti sem búið er að fiffa eitthvað en ég svosem veit það ekki looka samt vel,,, byrjaði á því að festa þau útdregin og þrífa þau í drasl og silikon sprauta þau svo ógeðslega kúl belti samt, næsta skref er bara að kaupa M3 Evo framsætin og afturbekk einn daginn svo kom upp pirrandi dæmi, bíllinn fór að éta bremsuvökva samt var enginn leki sjáanlegur neinstaðar.. eftir smá rannsókn á bílnum kom í ljós að e32 750 mastercylenderinn var farinn að leka í gegnum sig og bremsuvökvinn sem var horfin fannst inni í brakeboosternum líklegast væri réttast að skipta um boosterinn eftir þetta bremsuvökva bað að innan.. en ég ákvað að sjúga þetta innan úr boosternum og dæla bremsuhreinsi í hann og sjúga meira til að hreinsa hann að innan,, vonandi verður hann í lagi eftir þetta... en ég keypti nýjann ATE mastercyl, frá Fastparts.is (frábær þjónusta hjá þeim.. tók 3 daga) gamli vs nýji.. pínu fyndið að þessi master er "Ended" hjá BMW en er framleiddur af ATE fyrir BMW, það var þó hægt að panta hann frá ATE en þá er búið að fræsa BMW merkið burt komið saman og lét konuna lofttæma með mér sem gekk mjög vel Eins og staðan er núna þá er hann bara klár í sumarið, ætla að fara með hann í skoðun bráðum sem hann ætti að rúlla í gegnum vandræðalaust |
Page 8 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |