Það gekk ekki að hafa bílinn sjálfskiptan lengur, ég keypti allt nýtt í þá breytingu nema petalasett, gírkassa, flywheel og kúplinu
Árni S. hér á kraftinum á miklar þakkir skilið frá mér fyrir hjálpina með þessa framkvæmd! einnig átti hann til gírkassann, flywheel og kúplingu uppí hillu handa mér!
Notuðum M20 rennt Flywheel, M20 kúplingu, M20 Startara, Getrag 240 gírkassa.
Flest allir hlutirnir sem ég keypti eru orginal fyrir utan, kúplingsþræl, master og olíusíu á vél
(fer ekki að kaupa orginal olíusíu fyrir m40... þessi vél fer vonandi á haugana eftir sumarið)



Bartek græjaði petala sett fyrir mig notað úr BSK bíl

Sandblés petalana, málaði þá og setti ný gúmmí á þá


drifskaftið í bílnum var allt of stutt fyrir gírkassann svo ég reddaði öðru sem var of langt og lét stytta það í rétta lengd

Skipti búnaður klár

master, þræll og lagnir komnar í ásamt öllum þéttingum í hvalbak ofl

Flywheel og kúpling á sínum stað

Gírkassinn kominn í, skiptibúnaður, bakkljósa rafkerfi, nýr bakkljósa rofi ofl

Pedalasett alveg frágengið, með nýjum bremsuljósa rofa, kúplings stoppara í gólfið og allt 100% einsog þetta á að vera orginal

Gírhnúður, gírstangar poki og og gúmmí þétting komið í ásamt e60 545i skiptistöng

Nóg af geggjuðum tækjum í þessum skúr
Rauða e36 blæjan er í eigu Árna og er með M54B25 og supercharger, heilmálaður í Imola rot litnum
Hinn e36 bíllinn er í eigu Vignis og er með widebody kit, 17" Staggered OZ futura felgur og OM605 Benz mótor með risa túrbínu
svo er það auðvitað hondan rauða sem ég og árni smíðuðum, (hann á bílinn alveg í dag) hún er með K24 turbo og er einsog er að skila 585 hestöflum út í hjól og á slatta meira inni
Snar bilað tæki og bara 1000kg...




Allt klárt og ekkert sem hægt er að setja útá nema kanski drifið,, það er með 4.44 hlutfall
núna er hann í 3600rpm í 5gír á 100kmh, en ég lifi með því þangað til ég skipti um vél vonandi næsta vetur
ég á 188mm 3.46 læst drif sem fer í hann þá,, held það sé full þungt hlutfall á meðan M40 er í húddinu.
Svo þarf ég að koma öllu þessu sjálfskiptis gramsi á haugana..
