bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70173 |
Page 1 of 4 |
Author: | Kristofer [ Tue 04. Feb 2020 14:32 ] |
Post subject: | BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Ætla að vera með í endurkomu kraftsins. E30 Cabrio Mig var búinn að dreyma um að eignast E30 síðan ég var krakki. Sá draumur varð loksins að veruleika í ársbyrjun 2019 þegar ég keypti þennan. Þetta er semsagt 318i Cabrio BSK (ekki láta númerið rugla ykkur ), fluttur inn 2016. Hann var ekinn 171 þús þegar ég eignast hann og virtist vera alveg upprunalegur fyrir utan útvarp, framljós og felgur (15" basketweave í staðinn fyrir 14" bottlecaps) Frá því að ég eignaðist hann er búið að gera hitt og þetta fyrir hann. M42 swap, fjöðrun og eitthvað af smáhlutum, skelli inn myndum af því öllu í réttri röð þegar ég er búinn að safna því saman. Góðar stundir. |
Author: | Mazi! [ Tue 04. Feb 2020 15:24 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þessi er hrikalega flottur! |
Author: | Kristofer [ Tue 04. Feb 2020 16:08 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Hérna er bílinn rétt eftir að ég eignaðist hann. Hann var með ónýta vatnsdælu þegar ég fékk hann þannig ég gat því miður ekki keyrt hann heim. Hérna er hann svo kominn heim inní skúr, og auðvitað var strax farið að skrúfa í honum. Verslaði nýjar reimar, mottur, dökk plastcover fyrir stefnuljósin og OEM vatnsdælu (ef einhverjum vantar lítið notaða dælu í M40 þá fæst hún fyrir lítið þar sem ég hef engin not fyrir hana lengur). |
Author: | Kristofer [ Tue 04. Feb 2020 16:08 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Mazi! wrote: Þessi er hrikalega flottur! Þakka þér fyrir |
Author: | Kristofer [ Tue 04. Feb 2020 16:16 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Innréttingin í öllu sínu veldi. Tók hana svo í gegn, þreif teppið, vínylinn, leðrið og bar á það næringu og gerði stýrið fínt. Á því miður ekki mynd af framsætunum eftir á. |
Author: | Kristofer [ Wed 05. Feb 2020 14:00 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Fyrsti almennilegi pakkinn KW V1 coilover Verslaði líka nýtt útvarp í hann, Clarion M508 varð fyrir valinu, fannst það lúkka nokkuð period correct og kostaði ekki augun úr eins og sum önnur. Á enga mynd af því sjálfur, en fann þessa á netinu. Eftir að hafa safnað ryki inní skúr í einhvern tíma þá skellti ég honum út og þreif hann almennilega |
Author: | bimmer [ Wed 05. Feb 2020 16:44 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þessi lofar góðu - hver eru plönin með hann? |
Author: | Kristofer [ Wed 05. Feb 2020 18:48 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
bimmer wrote: Þessi lofar góðu - hver eru plönin með hann? Takk fyrir það Næst á dagskrá er að smíða nýtt pústkerfi undir hann Taka drifið í gegn eða reyna að redda 4.10 LSD úr 318iS, á eftir að sjá til Hátalarar í allan bílinn (held að hver einasti sé sprunginn núna) Endurnýja fóðringar ef tími gefst til og mögulega fara í subframe camber og toe correction kit eins og þetta: https://www.garagistic.com/products/com ... eq=uniform Síðan bara litlar bætingar hér og þar. Draumaplönin eins og er eru: Individual throttle body Standalone með þeim Alpina miðstöðvarmæli (rep) https://e30.de/fotostory/f02335/f02335. ... HVnhEC8dQs Get því miður ekkert unnið í honum núna því hann er í geymslu, þannig það verður nóg að gera í sumar. |
Author: | rockstone [ Wed 05. Feb 2020 20:30 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Vel gert, flottur! |
Author: | Kristofer [ Wed 05. Feb 2020 21:08 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
rockstone wrote: Vel gert, flottur! Takk fyrir það |
Author: | Kristofer [ Wed 05. Feb 2020 21:29 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Skelli inn nokkrum myndum frá byrjun sumars Fórum síðan nokkrir vinir á þingvelli og hvalfjörðinn |
Author: | Kristofer [ Wed 05. Feb 2020 21:37 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Síðan gaf ég mér loksins tíma í að skella KW kerfinu undir hann, rétt fyrir bíladaga. Frekar slöpp mynd að framan, gleymdi auðvitað að taka mynd áður en ég gekk frá öllu Keypti líka nýja diska og málaði bremsudælurnar og rykhlífarnar Og skellti honum síðan á sýninguna |
Author: | Logi [ Thu 06. Feb 2020 12:48 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Glæsilegur bíll Sent from my SM-G950F using Tapatalk |
Author: | Mazi! [ Thu 06. Feb 2020 19:53 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Ánægður með þig að fara í alvöru fjöðrun einsog KW, það eru alltof margir að vera wannabes og kaupandi sér eitthvað drasl frá kína! |
Author: | Danni [ Thu 06. Feb 2020 20:43 ] |
Post subject: | Re: BMW E30 318i"S" Cabrio [SS-K26] |
Þetta er sérstaklega smekklegur cabrio! |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |