bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
(LD007) - BMW E39 530d https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=70168 |
Page 1 of 2 |
Author: | AFS [ Sun 26. Jan 2020 10:13 ] |
Post subject: | (LD007) - BMW E39 530d |
Jæja, ég ætla að leggja mitt að mörkum við það að lífga aðeins uppá kraftinn aftur. Ég kaupi þennan í ágúst 2019 ![]() Seljandi póstar honum til sölu og ég og Emilk erum mættir til hans hálftíma síðar. Tökum smá prufuhring og enda ég á því að kaupa hann. Smá upplýsingar um bílinn: - 530d - 2000 árgerð - Sjálfskiptur - Ekinn 345.000 - Leður - Topplúga Fæðingarvottorð Vehicle Information VIN WBADL81070GX40722 Prod. Date 2000-05-25 Type 530D (EUR) Series E39 (5 Series) Body Type LIM Steering Left Hand Drive Engine M57 Displacement 3.00 Power 142kw / 193hp Drive Transmission Automatic Colour COSMOSSCHWARZ METALLIC (303) Upholstery STANDARDLEDERSCHWARZ (N6SW) Order option Comfort And Interior Equipment S403A Glass Roof Electrical S428A Warning Triangle And First Aid Kit S441A Smoker Package Multimedia S666A Radio BMW Business CD RDS Driver Assistance And Lightning S540A Cruise Control S520A Fog Lights S548A Kilometercalibrated Speedometer Wheels And Drive S288A BMW Light Alloy Wheel Cross Spoke 29 S202A Steptronic Environment And Safety S815A Poor Road Package ![]() S818A Battery Master Switch S842A Coldclimate Version S853A Language Version English S863A Retailer Directory Europe S880A Onboard Vehicle Literature English S896A Daytime Driving Light Switch Other Equipment S925A VERSANDSCHUTZPAKET S984A Maintenance Interval Encoding Samkvæmt mínum heimildum er þetta fyrsti eða annar 530d sem BogL flytur inn (væri gaman ef ehv gæti staðfest það) Byrjaði lífið sem leigubíll og er hann keyrður 345þ á mæli en samkvæmt fyrri eiganda var skipt um vél hjá BogL í 150þ því olíuöndun stíflaðist á meðan bíllinn var á verkstæði í þjónustuviðgerð. (Það væri líka gaman að fá það staðfest) Hérna eru sölumyndirnar af honum ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Frekar rough að sjá en með mikið potential! ![]() Ég þvílíkt ánægður með nýju kaupin og Emilk með ![]() Fór svo beint í smá ferðalag ![]() ![]() To do listi sem ég bjó til: Ný afturljós Ný framljós Nýjar númeraplötur og rammar Nýja stóla (bílstjórasætið fast í óþæginlegri stöðu) Felgur Taka upphækkunarklossana úr Bletta í ryð Og svo bara halda þessu við og njóta ![]() |
Author: | AFS [ Sun 26. Jan 2020 10:14 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Fyrsta sem ég gerði var að sækja afturljós með hvítum stefnuljósum hjá Skúla ![]() ![]() ![]() Þvílíkur munur! ![]() Og svo nýjar númeraplötur og ramma! ![]() Svo skipti ég þessum hræðilegu framljósum sem voru á honum út fyrir oem xenon ljós með hvítum stefnuljósum ![]() ![]() Renndi honum svo í gegnum skoðun. Hann flaug í gegn og fékk þennan fínan 20miða ![]() ![]() ![]() |
Author: | AFS [ Sun 26. Jan 2020 10:15 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Var að verða geðveikur á bílstjórasætinu svo ég fór í vöku og sótti mér stóla úr facelift bíl. Hérna sést munurinn á þeim. ![]() Munurinn á þeim inní bíl ![]() Báðir komnir í! ![]() ![]() Datt svo inná fremur ódýran 18" staggered gang af style 32, þær hafa séð betri daga og voru á alltof stórum dekkjum Smellti þeim beint undir og þvílíkur munur á bílnum ![]() ![]() ![]() ![]() Spíssaprófun vegna startvesens ![]() Allt í toppmálum þar ![]() Bíllinn stóð hjá mér frá Nóvember þangað til núna í byrjun Janúar vegna skóla, tímaleysis og ég hafði aðgang að öðrum bíl en á endanum var sökudólgurinn startari svo það er kominn í hann glænýr Bosch startari og er ég nýbyrjaður að nota hann aftur og guð hvað ég saknaði hans ![]() ![]() Kominn aftur á kreik ![]() ![]() ![]() 2x530d ![]() |
Author: | Emil Örn [ Sun 26. Jan 2020 11:23 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Huggulegur og ljúfur! ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | bimmer [ Sun 26. Jan 2020 20:13 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Flott björgun ![]() |
Author: | Danni [ Tue 28. Jan 2020 01:35 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Þetta er topp bíll. Gaurinn sem þú keyptir hann af kom með hann til mín áður en hann auglýsti hann og ég græjaði fullt í honum. Sagði honum einmitt að þessi bíll hefur gríðarlegt potential ef réttur eigandi eignast hann! Hann er alveg stráheill undir! Ég eyddi mörgum klukkutímum í að græja hurðarnar í honum, það virkaði engin þeirra rétt! Annað hvort virkuðu ekki utanfrá, eða innanfrá, eða hreinlega ekki neitt. Feginn að hann endaði síðan í höndunum á einhverjum sem hélt áfram að koma honum á rétt ról, hann á ennþá mikið inni þessi bíll. |
Author: | JOGA [ Tue 28. Jan 2020 22:58 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Flott make over. Fáránlegt hvað númer og rammar geta gert mikið fyrir bíla. Sent from my SM-G955F using Tapatalk |
Author: | AFS [ Tue 28. Jan 2020 23:13 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Emil Örn wrote: Huggulegur og ljúfur! ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() bimmer wrote: Flott björgun ![]() Takk! Danni wrote: Þetta er topp bíll. Gaurinn sem þú keyptir hann af kom með hann til mín áður en hann auglýsti hann og ég græjaði fullt í honum. Sagði honum einmitt að þessi bíll hefur gríðarlegt potential ef réttur eigandi eignast hann! Hann er alveg stráheill undir! Ég eyddi mörgum klukkutímum í að græja hurðarnar í honum, það virkaði engin þeirra rétt! Annað hvort virkuðu ekki utanfrá, eða innanfrá, eða hreinlega ekki neitt. Feginn að hann endaði síðan í höndunum á einhverjum sem hélt áfram að koma honum á rétt ról, hann á ennþá mikið inni þessi bíll. Hann sagði mér einmitt frá því ![]() JOGA wrote: Flott make over. Fáránlegt hvað númer og rammar geta gert mikið fyrir bíla. Takk! ég er sammála, þetta gjörbreytir bílum! |
Author: | Frikki.Ele [ Wed 29. Jan 2020 17:12 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Mega snyrtilegur ![]() Sent from my SM-G973F using Tapatalk |
Author: | AFS [ Sat 01. Feb 2020 19:04 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Smá update Fékk þetta stýri gefins hjá góðum vini Smá sjúskað og það vantaði vírana inní það, fékk víra hjá skúla og tók svörtu málninguna af plastinu. ![]() ![]() ![]() Hérna er svo fyrir og eftir ![]() ![]() ![]() ![]() Þvílíkur munur ![]() Fékk mér þessa lista líka hjá Skúla Vavona viðarlistar Option S773A, fine wood trim ![]() Samanburðarmyndir ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Þessi mynd sýnir í raun rétta litinn, eins og Skúli sagði í sölupóstinum þá eru þeir mun fallegri í persónu. Eina sem er eftir núna er að mála listann á stýrinu aftur svartan og setja listann fyrir ofan útvarpið á. Mér þykir þetta geðveikt og er þvílíkt ánægður með þetta. Það væri snilld að geta fengið listann á stýrið í stíl en þetta er það eina sem ég hef fundið ![]() ![]() |
Author: | Danni [ Sun 02. Feb 2020 02:52 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Vá hvað þessir listar gerðu mikið! |
Author: | AFS [ Sun 02. Feb 2020 23:07 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Danni wrote: Vá hvað þessir listar gerðu mikið! Já, gjörbreyta bílnum! |
Author: | AFS [ Sun 02. Feb 2020 23:10 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Kláraði að setja miðjulistann í... Guð minn almáttugur hvað þetta var mikið bras ![]() ![]() |
Author: | Kristofer [ Tue 04. Feb 2020 16:22 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Flottur hjá þér! Alltaf gaman að sjá svona bíla fá nýtt líf |
Author: | JOGA [ Tue 04. Feb 2020 16:43 ] |
Post subject: | Re: (LD007) - BMW E39 530d |
Spurning hvort það væri ekki flottara að filma silfraða hlutan á stýrinu með matt svartri filmu þangað til þú finnur hana í viðaráferð? Sent from my SM-G955F using Tapatalk |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |