bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

[UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=69898
Page 2 of 3

Author:  Emil Örn [ Mon 06. Feb 2017 23:45 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

Aron123 wrote:
Emil langar þér ekki í 740iL í staðinn fyrir þennan :P


Nei takk. :lol:

Hann er núna kominn í varanlega geymslu fram á vor.

Image

...og ég keypti mér E46 til að nota í staðinn.

Image

Author:  gardara [ Fri 10. Feb 2017 09:19 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

Hvernig er það, er LSD í þessum?

Author:  Emil Örn [ Sat 11. Feb 2017 18:49 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

gardara wrote:
Hvernig er það, er LSD í þessum?


Hann spólar á báðum þegar ég skipti úr fyrsta í annan með spólvörnina slökkta, full throttle, ásamt því að hann stoppaði aldrei í snjónum í vetur. Meira veit ég ekki.

Author:  Hreiðar [ Sun 12. Feb 2017 21:05 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

Eigulegur E36 hjá þér, mjög smekklegur! :)

Author:  Emil Örn [ Thu 11. May 2017 20:26 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

Emil Örn wrote:
gardara wrote:
Hvernig er það, er LSD í þessum?


Hann spólar á báðum þegar ég skipti úr fyrsta í annan með spólvörnina slökkta, full throttle, ásamt því að hann stoppaði aldrei í snjónum í vetur. Meira veit ég ekki.


Það kom svo í ljós að það er opið 188mm drif, það er í kortunum að henda læsingu í hann ef ég sel hann ekki.
Finnst ég allt í einu vera "búinn" með bílinn þannig hann fæst keyptur í bili, en það gæti vel breyst. Það er voða auðvelt að hugsa um að selja bílinn ef ég keyri hann ekki, en um leið og ég keyri hann bara nokkra metra þá langar mig ekkert að selja hann. :lol:

Author:  Emil Örn [ Sun 28. May 2017 12:22 ]
Post subject:  Re: EMILK - E36 323i - NÝJAR FELGUR neðst á bls 1

Fékk læst drif í þennan á föstudagskvöld og henti því í núna um helgina.

Það var opið 188mm drif í honum sem brotnaði uppi á braut fyrir 1-2 mánuðum síðan og ég reddaði því með einhverju slátri frá honum Skúla,
en það sönglaði samt alltaf leiðinlega í því.

Þannig þá vildi ég bara hafa þetta almennilegt. :santa: 8)

Setti á það Kroon Racing 75W-140 olíu eftir meðmæli nokkurra.

188mm, líklega 25% læsing, hlutfall 1:2.93.

Image

Ef einhvern vantar 188mm opið drif sem hann ætlar að sjóða má sá hinn sami hafa samband við mig í síma 844-6373. Hef lítið við þetta gamla að gera.

Svo tók ég fallegar myndir af honum um daginn, á enn eftir að vinna þær, en pósta þeim hingað við tækifæri.

Image

Author:  nikolaos1962 [ Tue 30. May 2017 15:01 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i - Update: 188mm LSD á bls 2

:thup:

Author:  Emil Örn [ Sat 23. Sep 2017 11:03 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i - Update: 188mm LSD á bls 2

Seldi þennan í Ágúst. :bawl:
Sé mikið á eftir honum en hann fór líklegast í góðar hendur, strákurinn sem keypti hann af mér virtist allavega kunna að meta hvað hann væri að kaupa.

En það er nýtt project komið í hús sem fær sinn eigin þráð bráðlega.

Author:  Emil Örn [ Thu 14. Nov 2019 14:41 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i - Update: 188mm LSD á bls 2

Jæja - búinn að kaupa hann aftur. :lol:

Af þeim sem keypti hann af mér.

Svo sagan heldur áfram.

Author:  Emil Örn [ Thu 14. Nov 2019 17:09 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i - Update: 188mm LSD á bls 2

Þá er þessi kominn aftur til mín. Ég dauðsá eftir honum eftir að ég seldi hann í ágúst 2017, sem ég gerði m.a. til þess að borga fyrir flugnám og kaupa mér íbúð.

Nú bauðst mér hann aftur, ég gat með einhverju móti skrapað saman fyrir honum, svo ég sló til.

Í þetta sinn vantar á hann listann á vinstra frambrettið, litla ryðgatið undir rafgeyminum í skottinu orðið aðeins stærra, og Vanos sennilega farið að þurfa rebuild. Hann kokar í >50% gjöf.

Sá sem keypti hann af mér (og seldi mér hann svo núna) var búinn að gera ýmislegt:
- Fór í heddpakkningu og tilheyrandi
- Allt nýtt í kælikerfi
- Allt nýtt í bremsum
- Allt nýtt í hjólabúnaði að framan
- Nýtt BC coilover kerfi (stillanlegt)

Planið er bara að lappa uppá hann, hækka örlítið að aftan til að jafna út hæðina, finnst skrýtið stance á honum eins og er.
Svo bara keyra og njóta. Leika sér með dótið sitt. :santa:

Hann auglýsti bílinn seinnipart miðvikudags, ég var mættur hálftíma seinna og búinn að kaupa hann kl 21 um kvöldið.

Svona stóð hann þegar ég skoðaði hann hjá honum:

Image
Image

Ryðið í skottinu aðeins orðið verra, en þetta er þó eina ryðið til að tala um í öllum bílnum. Sílsar, gólf og subframe festingar er allt í góðu lagi.

Image

Kominn heim á ný, við hliðina á bróðir sínum. :loveit:

Image


Var ekki lengi að skrúfa staggered M3 felgurnar undir hann aftur, allt annað að sjá hann svona.

Image

Author:  Mazi! [ Tue 19. Nov 2019 09:11 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)

Snyrtilegur!


Orðið áberandi minna til af flottum/heilum E36 á götunni

Author:  Emil Örn [ Thu 21. Nov 2019 10:15 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)

Þessi var þrifinn, massaður og bónaður síðustu helgi.

Image

Image

Image

Author:  AFS [ Fri 22. Nov 2019 22:53 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)

:drool:

Author:  Emil Örn [ Fri 14. Feb 2020 17:47 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)

Þessi sefur bara rólega í geymslu, tek hann sennilega út í apríl-maí.

Author:  Kristofer [ Fri 14. Feb 2020 22:23 ]
Post subject:  Re: [UP-328] - E36 323i M-Tech Coupe - KOMINN AFTUR (bls 2)

Þessi er alveg geggjaður! :drool:

Leiðinlega lítið af svona snyrtilegum E36 á götunum

Page 2 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/