bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E34 535i https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=69050 |
Page 1 of 2 |
Author: | KrissiP [ Mon 03. Aug 2015 23:03 ] |
Post subject: | E34 535i |
Eftir að hafa langað í BMW síðan ég fór að spá í bílum lét það loksins rætast. Gripurinn sem varð fyrir valinu varð E34 535i. ![]() Þarna sést líka glitta í framljósið á daily'inum mínum ![]() Hann rúllaði af verksmiðjunni í Dingolfing sem 518, en er búið að swappa í hann M30B35 og soðið drifið einnig. Hann er alveg voðalega aukahlutalaus greyið, samt er búið að setja alpine græjur og leðursæti. Ekkert að væla yfir því. Model description: 518I Market: Europa Type: HA11 E-Code: E34 Chassis: Limousine Steering: links Doors: 4 Engine: M40 - 1,80l (83kW) Drive: Heckantrieb Transmission: manuell Body Color: Islandgruen Metallic (273) Upholstery: (0273) Production date: 10.05.1990 Assembled in: Dingolfing Code Sonderausstattung Optional Equipment S199A Entfall Katalysator without catalytic converter S314A Aussenspiegel / Fahrerschloss beheizt Door mirror / driver's lock, heated S320A Entfall Modellschriftzug Deleted, model lettering S354A Frontscheibe grün Grünkeil Green windscreen, green shade band S428A Warndreieck und Verbandstasche Warning triangle and first aid kit S500A Scheinw.Rein.Anl./Intensivreinig. Headlight wipe/wash/Intensive cleaning S520A Nebelscheinwerfer Fog lights S687A Radiovorbereitung Radio preparation L827A Länderausführung Skandinavien NATIONAL VERSION SCANDINAVIA S850A Zusätzl. Tankfüllung Export Additional Export tank filling S860A Zusatzblinkleuchte Additional turn indicator lamp S925A Versandschutzpaket Transport protection package En bíllinn er ekki alveg í sínu besta standi, margt sem mætti fara betur og verður lagað þegar tími og peningar gefast til. Skröltir í svinghjóli, eitthvað dual-mass dót. Engin loftsía er á vélinni, hún verður sett þegar rafgeymirinn er farinn aftur í. Setja rafgeyminn aftur í. Bensíntankurinn lekur ef það eru settir meira en 20 L á hann. Frambrettin eru ónýt af riði og framparturinn af sílsum einnig. Setja annað drif undir hann, kannski ekki alveg í forgangslistanum hjá mér fyrst LSD í þessa bíla eru dýr. Lakkið er ágætt úr fjarlægð ![]() Það var planið hjá mér að skipta um lit (hata grænann). Er mikið að hugsa um að gera hann Calypso rauðann. Ætla að reyna að setja inn fleirri myndir af bílnum og viðgerðunum þegar nær dregur. |
Author: | Alpina [ Mon 03. Aug 2015 23:17 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Til lukku með bílinn,,,,, en skrölt i dualmass swinghjóli hef ég ekki heyrt áður |
Author: | Þorri [ Tue 04. Aug 2015 14:44 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Keyrði þennan bíl þegar hann var ennþá með 1800 vélinni og var alveg ótrúlega gott að keyra hann! Annars þorði ég ekki í þetta ryð... |
Author: | Tóti [ Tue 04. Aug 2015 18:25 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() |
Author: | D.Árna [ Tue 04. Aug 2015 19:13 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Tóti wrote: Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() Hversu mikið lengur? ![]() |
Author: | Tóti [ Tue 04. Aug 2015 20:11 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
D.Árna wrote: Tóti wrote: Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() Hversu mikið lengur? ![]() Að eilífu? Sá ekkert á neinu þegar ég opnaði hann og svo er hann ekki búinn að vera í þinni eigu ![]() |
Author: | D.Árna [ Tue 04. Aug 2015 21:24 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Tóti wrote: D.Árna wrote: Tóti wrote: Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() Hversu mikið lengur? ![]() Að eilífu? Sá ekkert á neinu þegar ég opnaði hann og svo er hann ekki búinn að vera í þinni eigu ![]() Hvað er að dóti sem hefur verið í minni eigu?? Ekkert verra en eitthvað annað. Ég spurði bara um þennan mótor, Ekki gera þetta persónulegt Þórir ![]() |
Author: | KrissiP [ Wed 05. Aug 2015 00:00 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Þorri wrote: Keyrði þennan bíl þegar hann var ennþá með 1800 vélinni og var alveg ótrúlega gott að keyra hann! Annars þorði ég ekki í þetta ryð... Það er ennþá rosalega gott að keyra hann! Hehe, það krefst bara vinnu og þolinmæði ![]() Alpina wrote: Til lukku með bílinn,,,,, en skrölt i dualmass swinghjóli hef ég ekki heyrt áður Takk fyrir það. Ég skal taka myndband af þessu við tækifæri ef þú hefur áhuga á því að heyra það. Tóti wrote: Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() Það þarf ekkert að vera í útslátt til að spóla á þessu ![]() D.Árna wrote: Tóti wrote: D.Árna wrote: Tóti wrote: Þessi mótor elskar að vera í útslátt ![]() Hversu mikið lengur? ![]() Að eilífu? Sá ekkert á neinu þegar ég opnaði hann og svo er hann ekki búinn að vera í þinni eigu ![]() Hvað er að dóti sem hefur verið í minni eigu?? Ekkert verra en eitthvað annað. Ég spurði bara um þennan mótor, Ekki gera þetta persónulegt Þórir ![]() Haldiði þessu fyrir utan eigandaþráðinn minn drengir mínir. Þetta er um bílinn minn en ekki hvernig Daníel Ágúst fer með bílana sína. |
Author: | KrissiP [ Sun 09. Aug 2015 17:19 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Alpina wrote: Til lukku með bílinn,,,,, en skrölt i dualmass swinghjóli hef ég ekki heyrt áður Hérna er skröltið, það hættir alveg þegar að ég kúpla um 10 sek. |
Author: | Alpina [ Sun 09. Aug 2015 18:30 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Þetta er BARA slæmt ![]() |
Author: | 300+ [ Sun 09. Aug 2015 23:55 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Vil ekki hræða þig, en það gæti einnig verið að endaslagslega á sveifarásnum sé farin til helvítis. Fáðu einhvern til að fylgjast með trissuhjólinu framan á sveifarásnum(neðsta trissuhjólið) á meðan þú gerir það sama og þú gerðir í vídeóinu.. ef trissuhjólið gengur inn/út meira en 0,5mm við að kúpla sundur saman þá er endaslagið orðið of mikið og það gæti skýrt þessi læti. |
Author: | Steini B [ Mon 10. Aug 2015 01:47 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Ég man að minn fyrsti bmw var algjör haugur, en það skipti samt engu máli, það er alltaf gott að keyra þessa bíla ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 10. Aug 2015 04:50 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Er ekki frekar að legan sjálf,, þeas kúpplingslegan sem ýtir á pressuna sé orðinn slöpp |
Author: | 300+ [ Mon 10. Aug 2015 14:29 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
Alpina wrote: Er ekki frekar að legan sjálf,, þeas kúpplingslegan sem ýtir á pressuna sé orðinn slöpp Þá kæmi leguniður, jafnt stöðugt surg, ekki taktföst högg. |
Author: | Danni [ Tue 11. Aug 2015 04:22 ] |
Post subject: | Re: E34 535i |
300+ wrote: Alpina wrote: Er ekki frekar að legan sjálf,, þeas kúpplingslegan sem ýtir á pressuna sé orðinn slöpp Þá kæmi leguniður, jafnt stöðugt surg, ekki taktföst högg. það var nú skipt um swinghjól í 2 ára gömlum bíl eknum um 50þús km í vinnunni hjá mér útaf því að það voru svona taktföst högg í því í lausagangi. Hljómaði reyndar mjög svipað þessu. En það er engin leið að vita það 100% nema taka kassann úr og skoða. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |