bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 18. Apr 2024 09:25

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 
Author Message
 Post subject: E36 328 Skriðskutla
PostPosted: Thu 14. May 2015 01:59 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Apr 2014 22:32
Posts: 10
Jæja ætli það sé ekki kominn tími á að ég hendi inn þræði hingað um drusluna mína, þetta er semsagt e36 318is coupe með m52b28, ég kaupi bílinn seint 2014 af pál ágústi. Bíllinn lítur svona út þegar ég fæ hann
Image
ætlaði mér alltaf að nota þennan bíl í það að æfa mig að spóla og keppa í driftinu í sumar :P

Stuttu eftir að ég kaupi bílinn er ég sviftur ökuréttindum :thdown: og þá stendur bíllinn ósnertur í einhvern tíma en þegar prófið datt aftur í hús þá kom smá metnaður að byrja að græja fyrir sumarið, fyrsta sem ég gerði var að setja stærri öxla í bílinn, kaupi flangsa og öxla af 188mm drifi hjá skúla og set í bílinn, svo þurfti hann að víkja í einhvern tíma á meðan ég var að taka upp motorinn í jeppanum mínum :D

í maí byrjaði ég að leygja aðstöðu með nokkrum félögum og kem bílnum fyrir þar inni
Image
bíllinn hafði aldrei gengið almennilega hjá mér og mér fannst alltaf vanta einhvað uppá aflið í honum svo ég ríf soggreinina af til þess að gá hvað er að frétta þar undir og í kring og þá kemur í ljós að slangan sem tengist frá icv í stóru hosuna hjá throttle bodyinu vantar og ekki búið að blinda neitt svo bíllinn hefur verið að draga massa mikið af fölsku lofti inná sig og útskýrir líka afhverju bíllinn tók aldrei við maf skynjara.
Image
það var bara eingin slanga uppá icv
Image
hér var búið að loka á annan endann á stykkinu með kítti og mtn dew tappa :alien: en ekki hinn endann gaman af þessu. gangurinn á bílnum er allt annar núna og hann er örugglega svona 20-25hp kraftmeiri eftir að ég gerði þetta :mrgreen: ódýrasta power mod sem ég hef gert :P

þar sem ég ætla aðallega að nota þennan bíl sem brautarbíl og á annan bíl til að keyra dagsdaglega checkaði ég hvað ég gæti skafið mörg kíló í burtu, keypti djúpann sparco körfustól og fékk 5punkta belti í láni hjá pabba
Image
og reif ALLA innréttingu úr, þar á meðal teppið og hljóðeinangrun og allt dót sem var ekki bráðnauðsynlegt, útkoman var helvíti skemmtileg ég viktaði bílinn 1120kg með hálfann tank en hann er original 1320 og það með 4cyl motor
Image
Mega sáttur!!

fékk svo félaga minn með mér í það að smíða veltiboga í bílinn um daginn, aðallega svo ég hefði einhvern góðan stað til þess að festa beltið :thup: en annars er það bara töff að vera með veltiboga
Image
Safety first!!

Seinasta föstudag keyri ég bílinn upp á akstursbraut í fyrsta skipti og er ótrúlega sáttur með virknina í þessum bíl! ótrúlega gaman að keyra hann, allt annar bíll í akstri en þegar ég fæ hann í hendurnar hann tekur löngu beygjuna útí enda og framhjá pittinum í bullandi spóli í 3gír!! bara í lagi! eina sem ég hef útá bílinn að segja er að kúplingin var orðin frekar slöpp og aðeins of laus/mjúkur að aftan, ný kúpling og poly fóðringar og allir að dansa!
Image
tókst meiraðsegja að rífa afturstuðarann af með því að sprengja dekk! bara gaman :D

Verslaði mér nýja kúplingu og er að skipta um hana eins og er :)
Image

Image
Lúxuslíf í 328

Image
rosa fínn með mtech

Image
ekki eins fínn eftir að mtechið fauk af uppá braut :santa: en samt með bling flellur, style 5 sem hjalti litli á 8)

Næst á dagskrá er svo að fá skoðun, þarf líka að láta breytingaskoða hann 2manna, versla polyfóðringar og tengja vökvahandbremsu :thup: :thup:

_________________
E36 318is HÁKAGGL
Mazda rx7 FC3S turbo
Toyota hilux


Last edited by jokullthor on Thu 14. May 2015 03:19, edited 5 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: E36 328 Skriðskutla
PostPosted: Thu 14. May 2015 02:00 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Apr 2014 22:32
Posts: 10
Fyrsti pósturinn minn hérna inná, ég notaði imgur til að linka myndir en þær eru full stórar, er ekki hægt að fixa það eitthvað? :D

_________________
E36 318is HÁKAGGL
Mazda rx7 FC3S turbo
Toyota hilux


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: E36 328 Skriðskutla
PostPosted: Thu 14. May 2015 03:13 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Fri 16. Mar 2012 14:27
Posts: 1323
Frábær bíll, staðfesti það!

Skemmti mér helling á leiðinni út að sækja vélina og hér heima að spóla á þessu dóti, bara flott að þetta er all in :thup:

_________________
BMW e46 320d Touring - Winterbeater


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: E36 328 Skriðskutla
PostPosted: Thu 14. May 2015 03:23 
Offline
Búðarkerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 29. Apr 2014 22:32
Posts: 10
Páll Ágúst wrote:
Frábær bíll, staðfesti það!

Skemmti mér helling á leiðinni út að sækja vélina og hér heima að spóla á þessu dóti, bara flott að þetta er all in :thup:


Æðislegt að spólissu :D all in ballin

_________________
E36 318is HÁKAGGL
Mazda rx7 FC3S turbo
Toyota hilux


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: E36 328 Skriðskutla
PostPosted: Tue 19. May 2015 20:50 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Tue 22. Jan 2008 21:09
Posts: 990
JÁ ! ég þarf að cressida og spólisu !

_________________
VW Golf VR6 - í Notkun!
Subaru leone 1800 1986 - Seldur
Mazda 323f -seldur
Volvo 240&740 - Seldir
maxel wrote:
Nenniru að rífa enter takkan úr lyklaborðinu þínu.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 5 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 51 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group