bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E46 316 M52TUB28
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=67519
Page 1 of 6

Author:  Kristjan [ Fri 17. Oct 2014 11:29 ]
Post subject:  BMW E46 316 M52TUB28

Jæja þá kom að því að ég eignaðist BMW aftur.

Eftir miklar pælingar þá ákvað ég að skella mér á 2001 árgerð af 316. Mig langaði í þægilegan bíl sem væri ódýrt að reka.

Mér bauðst þessi á góðu verði enda er hann ekki gallalaus, yfirborðsryðblettir í kringum handfang á bílstjórahurð og á húddi.

En að öðru leiti þá er hann mjög þéttur og góður. Áður en ég verslaði hann þá komst ég að því að fyrri eigandi hefur eytt töluverðum fjárhæðum í að sinna viðhaldi og til dæmis á síðasta ári var skipt um heddpakkningu, vatnsdælu, tímareim og fleira.

Plönin með hann eru að kaupa ný ljós allan hringinn og ný nýru, BMW merkin og voða lítið annað. Kannski felgur með tíð og tíma.

Image
Image

Author:  rockstone [ Fri 17. Oct 2014 12:16 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Til hamingju :thup: Gerir hann flottann

Author:  Mazi! [ Fri 17. Oct 2014 12:28 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Þessi er snyrtilegur að sjá!

verður gaman að fylgjast með þessu 8)

Author:  Kristjan [ Fri 17. Oct 2014 13:42 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Mig langar í svona afturljós, JRK M3 og fleiri eru með mjög svipað útlítandi original en originalinn fæst held ég bara á coupe, ég verð því að fara í aftermarket.

Þessi líta imo best út, ef einhver veit um svipuð ljós á góðu verði má hann láta mig vita.
Image

Author:  rockstone [ Fri 17. Oct 2014 13:47 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

http://www.ebay.com/itm/99-01-BMW-E46-3 ... c0&vxp=mtr

Ég myndi líka fá mér svona ljós á e46

Author:  Kristjan [ Fri 17. Oct 2014 13:56 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Smoked eru töff og minn er þannig á litinn að hann myndi sennilega alveg pulla það. En ég er beggja blands með þetta vegna þess að mig langar að það verði örlítið bjartara yfir honum.

Author:  Mazi! [ Fri 17. Oct 2014 15:02 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Langar einmitt í svona LED afturljós á minn, fann um daginn samt facelift lookalike svona LED ljós sem mér finnst flottari en þessi preface look ljós


http://www.ebay.co.uk/itm/BMW-E46-4-doo ... 3a98eb4eee

Author:  rockstone [ Fri 17. Oct 2014 15:38 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Kristjan wrote:
Smoked eru töff og minn er þannig á litinn að hann myndi sennilega alveg pulla það. En ég er beggja blands með þetta vegna þess að mig langar að það verði örlítið bjartara yfir honum.


póstaði nú bara linknum uppá verð, en já held að þínum færi betur ánsmokuðu.

Author:  D.Árna [ Fri 17. Oct 2014 16:22 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Til hamingju með bílinn :)

Svört nýru og glær stefnuljós væri mega á þessum!

Author:  Emil Örn [ Sun 19. Oct 2014 16:57 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Hérna geturðu fundið allt sem þú talar um, á góðu verði og góð gæði.

http://www.khoalty.com/bmw-e46/lights.html

Author:  Alpina [ Sun 19. Oct 2014 20:38 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Smekklegur litur 8)

Author:  Angelic0- [ Mon 20. Oct 2014 12:39 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Elska E46.... svo kósý bílar e'h.... eins og að keyra lítinn E39 :)

Author:  Mazi! [ Mon 20. Oct 2014 14:23 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Angelic0- wrote:
Elska E46.... svo kósý bílar e'h.... eins og að keyra lítinn E39 :)



E46 eru hrikalega góðir og kósý bílar!

Author:  Angelic0- [ Mon 20. Oct 2014 23:36 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Solid feel... mikið BETRI bíll en E36... alveg á sama máta og E36 er BETRI bíll en E30...

E36 fannst manni aldrei vera neitt líkur E39... þó að hann væri svona "sama era" eitthvað...

En E46 er bara eins og að vera á litlum E39... góður og rigid bíll... og maður hefur öryggistilfinningu undir stýri...

Author:  rockstone [ Mon 20. Oct 2014 23:44 ]
Post subject:  Re: BMW E46 316 - Stahlblau Metallic

Angelic0- wrote:
Solid feel... mikið BETRI bíll en E36... alveg á sama máta og E36 er BETRI bíll en E30...

E36 fannst manni aldrei vera neitt líkur E39... þó að hann væri svona "sama era" eitthvað...

En E46 er bara eins og að vera á litlum E39... góður og rigid bíll... og maður hefur öryggistilfinningu undir stýri...


Bara ef það væri meira úrval af lsd í e46, allt rándýrt miðað við e30/e36

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/