bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 27. Apr 2024 11:07

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 
Author Message
 Post subject: BMW e90 320i 2005
PostPosted: Thu 14. Aug 2014 23:08 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 14. Oct 2013 15:34
Posts: 2
Góðan daginn, ég keypti mér minn fyrsta bíl, AUÐVITAÐ BMW 8) í gær og er bara nokkuð sáttur með hann, langaði bara að deila bílnum með ykkur bmw mönnum, sjá hvað menn myndu betrumbæta við hann o.s.frv. Það sem er komið á dagskrá hjá mér er að kaupa á hann nýja númeraramma og plötur því þeir sem eru eru verulega skjúskaðir, ljótir og beyglaðar plötur. Svo ætla ég sennilega að skella filmum í bílinn sem fyrst þegar fjármagn leyfir :D Kannski ætla ég að kaupa að utan á hann lip spoiler nema að einhver lumi á svoleiðis hér á klakanum fyrir mig :)

Bíllinn er keyptur ekinn 121.700km

Image

Image

Image

Endilega commentið og segið hvað ykkur finnst ég geta gert til að gera hann flottari!

_________________
BMW e90 320i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW e90 320i 2005
PostPosted: Fri 15. Aug 2014 00:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Posts: 5217
Location: HérogÞarogAllstaðar
Flottur, til hamingju :thup:

Hugmyndir um breytingar frá mér væri, felgur 18-19", lækkun, mtech, filmur, hvít/rauð afturljós smoked. Ýmsilegt í boði ;)

Annars er mjög mikilvægt að sinna réttu viðhaldi og fara með bílinn á smurningu á réttum tíma, nota orginal síur og svona, því þessir 4cyl mótorar sem eru í facelift e46 og svo í e90/e92 eru með viðkvæman búnað sem kallast Valvetronic ;)

http://cdn.taken.photos/images/www.wall ... r-pics.jpg

_________________
BMW E30 316i 1988

ROCKSTONE DAY PROJECTS ON YOUTUBE


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: BMW e90 320i 2005
PostPosted: Fri 15. Aug 2014 08:46 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Mon 14. Oct 2013 15:34
Posts: 2
Takk fyrir :) Já ég hafði hugsað mér að skella undir hann 18" felgum þá bara næsta vor og hafa það sem sumarfelgur, það væri geggjað að fá hugmyndir um flottar felgur sem gætu snarlúkkað undir honum.

Já það var líka meginástæðan fyrir því að ég valdi þennan að hann hafði fengið toppviðhald frá fyrri eigendum og með góða smurbók, nokkrir hlutir nýjir undir húddinu á honum, og nánast allt nýtt í bremsum og nýjir gormar að framan. Það myndi gera svo mikið fyrir hann að filma hann með 20% að ég er að spá í að gera þetta strax. Stærri plön eins og lækkanir eru kannski frekar neðarlega á listanum hjá mér eins og er vegna fjárskorts, ég er nefnilega ekki orðinn 17 ára og er í skóla, reyndar á ég afmæli þann 16. ágúst og fæ prófið á réttum tíma. Þessir tveir dagar eru búnir að líða eins og tvö ár og ég get ekki beðið um að komast út í umferðina á flottum BMW 8) 8)

Ég fór einmitt til keflavíkur í fyrradag til að söluskoða annan svona bíl sem leit mjög vel út, var rétt keyrður yfir 80 þúsund og var módel 2007, lét lesa af honum og viti minn, valvetronicið var í steik, bíllinn hafði mjög sjaldan verið smurður og ekkert í 20þús km, það var bilun í stöðugleikakerfi og svona 8 aðrir hlutir sem voru að honum, svo hljómaði vélin í honum í þokkabót eins og dísel!

_________________
BMW e90 320i


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 240 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group