Takk fyrir

Já ég hafði hugsað mér að skella undir hann 18" felgum þá bara næsta vor og hafa það sem sumarfelgur, það væri geggjað að fá hugmyndir um flottar felgur sem gætu snarlúkkað undir honum.
Já það var líka meginástæðan fyrir því að ég valdi þennan að hann hafði fengið toppviðhald frá fyrri eigendum og með góða smurbók, nokkrir hlutir nýjir undir húddinu á honum, og nánast allt nýtt í bremsum og nýjir gormar að framan. Það myndi gera svo mikið fyrir hann að filma hann með 20% að ég er að spá í að gera þetta strax. Stærri plön eins og lækkanir eru kannski frekar neðarlega á listanum hjá mér eins og er vegna fjárskorts, ég er nefnilega ekki orðinn 17 ára og er í skóla, reyndar á ég afmæli þann 16. ágúst og fæ prófið á réttum tíma. Þessir tveir dagar eru búnir að líða eins og tvö ár og ég get ekki beðið um að komast út í umferðina á flottum BMW
Ég fór einmitt til keflavíkur í fyrradag til að söluskoða annan svona bíl sem leit mjög vel út, var rétt keyrður yfir 80 þúsund og var módel 2007, lét lesa af honum og viti minn, valvetronicið var í steik, bíllinn hafði mjög sjaldan verið smurður og ekkert í 20þús km, það var bilun í stöðugleikakerfi og svona 8 aðrir hlutir sem voru að honum, svo hljómaði vélin í honum í þokkabót eins og dísel!