Page 1 of 2

E60 530i Black Sapphire Metallic *update 27.07*

PostPosted: Sun 06. Jul 2014 18:04
by ///Maggi
Festi kaup á þessum um daginn. Þetta er sem sagt 530i fluttur inn frá Þýskalandi notaður, þá ekinn 145 þús. km. Það var verkfræðingur hjá Airbus sem átti hann úti og keyrði hann bílinn alltaf 2 tíma á dag í vinnu, mikil langkeyrsla, það var t.d. skipt um upphaflegu bremsudiskana í 200 þús. km. Hér heima átti svo svo sami maðurinn hann í 8 ár þangað til ég kaupi hann. Bíllinn er með þjónustubók og smurbók frá upphafi og alltaf fengið topp viðhald þannig þótt hann sé ekinn tæpa 250 þús. km í dag þá er það ekkert svakalegt.

Ég myndi telja þetta frekar loaded bíl og get ég nefnt það helsta:
Active steering
Dynamic drive
Sport fjöðrun
Gráir comfort leður stólar með rafmagn í öllu og minni
Fjarlægðarskynjarar
Xenon
Niðurfellanleg aftursæti
6 diska cd magasín
Bluetooth
Hiti í sætum
Glertopplúga
Style 124 18" felgur

Svo er búið að setja á hann ACS framsvuntu og M-tech skottlip

Væri fínt að fá fæðingarvottorðið til að sjá rest.

Plön

Skipta um spyrnufóðringar að aftan (brakfóðringar) [x]
Kaupa ný merki [x]
Cree LED í angel eyes [x]
LED númaraljós [x]
Filmur, spurning að taka 50% eða 35% styrk allan hringinn
Veit ekki með shadowline... myndi þá allavega halda nýrunum chrome
Var síðan eitthvað að pæla í einkanúmeri því fastanúmerið er frekar skondið

Þarf að taka fleiri myndir af honum, hérna eru tvær næstum því eins myndir.

Image

Image

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Sun 06. Jul 2014 19:02
by Alpina
///Maggi wrote: fluttur inn frá Þýskalandi notaður, þá ekinn 145 þús. km. Það var verkfræðingur hjá Airbus sem átti hann úti og keyrði hann bílinn alltaf 2 tíma á dag



:shock: Hvar fékkstu þessa sögu

en til lukku með bílinn

530 er án vafa besti kosturinn i E6x seríunni er mér tjáð af þeim sem gera við BMW

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Sun 06. Jul 2014 21:12
by ///Maggi
Takk fyrir það, ég fékk þetta frá fyrri eiganda. Hann fór út og sótti bílinn sjálfur og hann ætlar að fara núna í júlí að kaupa F10 523i. Ég er mjög sáttur með þennan mótor, það má ekki gleyma því að þetta er bara sjálfskipt á opnu drifi og engin græja þannig, væri auðvitað skemmtilegra að vera með V8. Eyðslan á 530d er síðan stór kostur en svo hefur maður heyrt sögur af háum viðgerðarkostnaði sem er ekki eins spennandi.

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Mon 07. Jul 2014 04:00
by Danni
Þræl flottur bíll! Sé hann af og til hérna í Keflavík :D

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Mon 07. Jul 2014 09:34
by Raggi M5
Var hann ekki með einkanúmerið R-xxxx ? Mjög flottur 8)

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Mon 07. Jul 2014 14:57
by ///Maggi
Takk strákar :) þessi hefur alltaf verið í kef og svo við höfum það rétt þá er fyrri eigandi að kaupa f11 520d

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Wed 09. Jul 2014 08:43
by tolliii
Algjör looker! Til hamingju með flottan bíl!

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Wed 09. Jul 2014 20:00
by antongunnars
Virkilega fallegur bíll, og ekki skemmir mótorinn fyrir :D

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Wed 09. Jul 2014 21:04
by Bartek
flottur bill,,, :thup: ennnnnn þessi front lip er rosalega ósmeklegur :lol:

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Sat 12. Jul 2014 02:17
by Stefan325i
Gamli hans Flosa, mjög flottur til hamingju með bílinn.

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Sun 13. Jul 2014 01:37
by ///Maggi
Takk allir :)
Bartek wrote:flottur bill,,, :thup: ennnnnn þessi front lip er rosalega ósmeklegur :lol:

Ég skil það alveg að sumir fíli það ekki en mér finnst það breyta bílnum helling og svo er hann ekki eins og allir hinir!

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Sun 13. Jul 2014 22:55
by Angelic0-
Gamli hans Flosa frænda, það passar Stefán...

Þetta front lip gæti gengið með eitthvað spikfeitum felgum ;)

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic

PostPosted: Mon 14. Jul 2014 22:05
by tolliii
Þetta frontlip er að gera þennan bíl! :thup:

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic *update 27.07*

PostPosted: Sun 27. Jul 2014 17:16
by ///Maggi
tolliii wrote:Þetta frontlip er að gera þennan bíl! :thup:
Ég er sammála! :D

En smá update setti cree led perur í angel eyes, ný carbon look merki og felgumiðjur.

Image
20W LED

Image
gamla merkið helvíti sjúskað

Image

Image

Image
Þjóðverji að skoða Íslending :lol:

Image

Re: E60 530i Black Sapphire Metallic *update 27.07*

PostPosted: Sun 27. Jul 2014 21:02
by Angelic0-
Hef trú á að þessi verði mjög flottur í höndunum á Magga ;)