Page 1 of 2

BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 03:53
by AronT1
Jæja, kom að því að ég gerði þráð um þennan bíl.

Þetta byrjaði allt þannig að eitt gott kvöld vorum við Danni og Palli á N1 í Hfj að fá okkur í svanginn, að við byrjuðum að spjalla um hvað það væri awesome að fara út og sækja hitt og þetta og koma með heim. Svo áður en ég veit af er búið að panta miðana, finna píl og við á leiðini út!

Byrjum ferðina bara á flugvellinum, flogið út um kl 3 að degi til, til Berlínar.

Image

Svo þegar við vorum lenntir um 3 tímum síðar var farið og náð í bílaleigubílinn sem var búið að panta. Við héldum að við fengum einhver A class Benz en urðum að sætta okkur við Seat.

Image

Síðan var keyrt í einhverja 600km að sækja touringinn.

Image
Image
Image
Image

Eftir einhvern akstur vorum við að spá í að fá okkur að borða, og jú það var farið í GPS-ið og stillt á næsta Burger King stað, sem var staðsettur aðeins af hraðbrautinni í litlum bæ.
Svo vorum við komnir þángað kl 22:50 ca, og staðurinn lokaði kl 23:00 sem við áttuðum okkur ekki á fyrr en seinna. Þar tók á móti okkur tvær konur sem kunnu ekki stakt orð í ensku, en þrátt fyrir það náðum við að panta okkur það sem við vildum, réttum henni kredit kort og hún steinlág allveg, eins og hún hafði aldrei séð kredda áður. En hvað um það..

Image

Síðan þegar búið var að fylla "tankinn" var haldið aftur út á hraðbrautina. Einhverstaðar þarna sofnaði ég í smástund :)
Svo eftir langa keyrslu vorum við komnir á áfangastað. En það var ekki stoppað svo lengi, við vorum í smá tímaflækju að komast til Schmiedmann í Nordborg áður en þeir lokuðu daginn eftir þannig... tank up og aftur á hraðbrautina..

Image
Image
Image

Við komum við í Dortmund og skiluðum bílaleigubílnum, klukkan var þá að verða 7 gíska ég á og urðum við að vera komnir til Schmiedmann í Nordborg fyrir kl 17:00.

Image
Image

Svolítið þreyttir allir 3 eins og sjá má.

Image
Image

Fundum Íslenska fánann og hikuðum ekki við að stoppa og taka mynd :D

Image

Svo loksins i kringum 15:00 vorum við komnir í Nordborg til Schmiedmann, tókum smá hring um gaveyardinn og þar var tekið smá af dóti, M-Tech afturstuðari og projector framjlós svo eitthvað sé nefnt, en aðalástæða afhverju við vorum þarna er að versla M52B28 mótor, og hann settum við bara í skottið :D

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Svo eftir þetta var farið að fá sér að borða, fundum glataðann Pizza stað niðrí miðbæ, svo beint á hótelið að sofa og við allir steinrotuðumst.
Svo daginn eftir ætluðum við að hendast til köben en sáum flottan gokartbækling í lobbýinu og ákváðum að skella okkur í Gokart. Á því miður engan myndir af því.
Eftir geðveikt race var haldið til köben,

Image
Image

Eftir langa ferð vorum við komnir til Copenhagen City, sem er hreint út sagt mögnuð borg. Fórum beint og checkuðum okkur inná hótelherbergið sem var bara mjög ástættanlegt, nema það að það var svolítið langt í burtu frá inngangnum.

Já það er úti á enda...

Image
Image

Skruppum líka aðeins í tívolíið og fundum þar auðvitað klessubílana, klikkað stuð!

Image

Skruppum í svona túrista bátsferð :)

Image

Og sáum þessa rosalega ófögru bifreið..

Image

Rölltum uppað konungshöllini þar sem Palli heilsaði uppá vin sinn.

Image

Afþví að klukkan er orðum 03:51 þegar ég skrifað þetta og orðinn geðveikt þreyttur, þá ætla ég að gera langa sögu stutta. Við vorum í ca 4 daga í köben áður en við þurftum að henda bílnum til Hirtshals í Norrænu, það var líka geðveikt langt að keyra en náðum þessu á ágætum tíma svosem, græjuðum það og tókum síðan lest til baka sem tók um 5 tíma og nei ég mun ekki gera það aftur. Svo var komið aftur á hótelið eftir lestarferðina, sofið og svo lagt í hannn heim til Íslands.

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 09:23
by Alpina
BARA töff touring 8)

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 10:24
by rockstone
Loaded touring miðað við þrist! 8)

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 11:18
by Páll Ágúst
Þetta var fín ferð

Keyrt c.a 2100km overall

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 11:34
by rockstone
Image

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 12:52
by Kristjan
Skemmtilegur póstur, en hvers vegna völduð þið þennan touring?

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 14:26
by Strøm#1
bara gaman að lesa svona pósta :thup:

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 15:30
by arnorerling
Kristjan wrote:Skemmtilegur póstur, en hvers vegna völduð þið þennan touring?


Mér skilst það hafa verið til að koma m52b28 í skottið.

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 15:48
by Páll Ágúst
arnorerling wrote:
Kristjan wrote:Skemmtilegur póstur, en hvers vegna völduð þið þennan touring?


Mér skilst það hafa verið til að koma m52b28 í skottið.


Jebs.

Planið upphaflega var semsagt að flytja inn 2x m52b28 mótora.

Þannig keyptur var touring til að setja hinn í skottið :thup:

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 17:58
by einarivars
pff ég þekki nú einn eðal mann sem kom m50 í skottið á sedan ! haha

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 19:28
by gylfithor
virkilega gaman að lesa þetta og efast um að þessi ferð hafi verið leiðinleg :)
en afhverju hentu þið ekki eitthverjum spennandi felgum undir þennan touring ?

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sat 17. May 2014 20:16
by AronT1
Páll Ágúst wrote:
arnorerling wrote:
Kristjan wrote:Skemmtilegur póstur, en hvers vegna völduð þið þennan touring?


Mér skilst það hafa verið til að koma m52b28 í skottið.


Jebs.

Planið upphaflega var semsagt að flytja inn 2x m52b28 mótora.

Þannig keyptur var touring til að setja hinn í skottið :thup:



Verð samt að seigja það þótt það hefði verið beilað á þennan mótor, þá hefði ég aldrei beilað á þennan touring, þetta er GEÐVEIKT eintak!

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sun 18. May 2014 21:20
by Þorri
Af hverju er hann allt í einu kominn með svartan afturstuðara í staðinn fyrir bláan þarna í lokinn?

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Sun 18. May 2014 21:37
by halli7
Þorri wrote:Af hverju er hann allt í einu kominn með svartan afturstuðara í staðinn fyrir bláan þarna í lokinn?


AronT1 wrote:Svo loksins i kringum 15:00 vorum við komnir í Nordborg til Schmiedmann, tókum smá hring um gaveyardinn og þar var tekið smá af dóti, M-Tech afturstuðari og projector framjlós svo eitthvað sé nefnt, en aðalástæða afhverju við vorum þarna er að versla M52B28 mótor, og hann settum við bara í skottið :D

Re: BMW E36 328i Touring!

PostPosted: Mon 19. May 2014 12:13
by srr
AronT1 wrote:Verð samt að seigja það þótt það hefði verið beilað á þennan mótor, þá hefði ég aldrei beilað á þennan touring, þetta er GEÐVEIKT eintak!


Af hverju þá að selja ?