Eignaðist þennan fyrir umþb 3 mánuðum ef ég man rétt.
Númerið á honum er RO503 og er original 318IS sjálfskiptur
1994 árgerð og er keyrður 136þ MÍLUR. Enn akstur á mótor er óvitaður.
Svo er hann með þokkalega sjúskaðri hvítri sport leður innréttingu, sem ég hefði hugsað mér að láta laga þegar peningarnir verða til.
Ég byrjaði á því að setja TAtechnix coilovers í bílinn

Leið ekki á löngu að ég eignaðist m52b20 og þrátt fyrir að með þessu swappi væri ég ekki að fá mikið meira afl heldur enn með m42b18 þá ákvað ég samt að swappa og gera hann beinskiptan í leiðinni.
Þannig að ég og Danni fórum í það að swappa og tók það ekki nema 2 daga, og þakka ég danna fyrir alla aðstoðina sem ég fékk frá honum!

Hérna er m42b18 komin úr bílnum, og til gamans má geta að þessi mótor er kominn ofan í hvíta bílinn hjá Danna
Svo þurftum við að rífa m52b20 úr öðrum bíl sem er vinstra megin á þessari mynd sem sést ekki

Svo bara ofan í með mótorinn!
Keypti mér síðan 168mm læst drif og setti í kaggann, fékk síðan lánaðar BBS style 5 hjá AronT1 hérna á kraftinum

Jeppi að aftan!
Svo var ákveðið að skreppa til þýskalands/DK og fór ég þá í það að finna mér annan og stærri mótor í þennan úti og datt ég á m52b28 úr e36 keyrðan ekki meira né minna enn 177.xxxKM, sem að mér finnst alveg geðveikt! Mótorinn er eins og er á seyðisfirði
Keypti mér líka glær stefnuljós úti enn mig vantar svo önnur projector ljós á bílinn því mín eru brotin og mig langar að deleta US ljósakerfinu, semsagt stöðuljós í stefnuljósum.
Þannig að bráðum verður þessi 328 og sá eini coupe á landinu þannig

Á ekki fleiri myndir enn þegar kemur að swappi eða eitthverskonar breytingum þá koma þær hingað
