bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bmw e32 730i 1993
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=65570
Page 1 of 1

Author:  nocf6 [ Sat 22. Mar 2014 11:57 ]
Post subject:  Bmw e32 730i 1993

Image
Sælir
Ætla að gera smá þráð um dailyinn minn.
Þetta er semsagt 1993 e32 730i
sjálfskiptur með m60b30
ekkert svakalega loaded bíll, t.d ekki með topplúgu, ekki hita í sætum og ekki með obc
en það sem þarf er til staðar eins:
Hvít comfortsæti með rafmagni, líka í hauspúðum
Rafmagn í öllum rúðum
cruise controll
svo eru komnir í hann alpine hátalarar hringinn og alpine keila og magnari í skottinu sem ég gæti ekki lifað án

Mér skilst að bíllinn hafi verið í eigu íslendings útí sviss frá því að hann var nýr þangað til 1999 þegar hann var fluttur heim, svo á að hafa verið skipt um mótor í honum í kringum 150þús og fenginn í hann ókeyrður mótor frá borgarholltsskóla. veit svosem ekkert með það en hann er allavega mjög þéttur og góður

Ég keypti þennan bíl af Skúla srr í febrúar 2013, þá keyrðann slétt 200þús, hann hefur síðan þá gegnt hlutverki daily drivers og hefur staðið sig þokkalega í því verkefni og stendur nú í 225þús. Ég hafði upphaflega verið að leita mér að e34 og fann einn sem mér leyst vel á og keypti hann. Fór svo nokkrum dögum seinna til keflavíkur að sækja varahluti í hann til skúla og sá þá þennan, hann uppfyllti allar óskir um það sem ég vildi í gömlum bmw: m60 mótor, hvítt leður, orientblau og allveg heilir sílsar. þannig að ég samdi við skúla um að kaupa hann felgulausann, fór aftur heim á Hvolsvöll, stal felgunum undan e34 og keyrði aftur til keflavíkur daginn eftir til að sækja hann.

Því næst fann ég draumafelgurnar til sölu hérna á kraftinum 17" style 32, smellti þeim undir, fékk óbrotna kasstara og nýlegann vatnskassa hjá skúla, keypti nýja löm á bensínlokið, tók upp startarann, skipti um háspennukefli, bensínsíu og lét smíða nýtt púst undir hann.

Keyrði hann svoleiðis seinasta sumar og allan veturinn. Núna um daginn var ég farinn að finna fyrir því að afturdempararnir eru orðnir slappir og fendergapið að framan var farið að fara í taugarnar á mér, þannig að ég keypti notaða bilstein afturdempara og ac schnitzer lækkunargorma, (reyndar úr e34 en whatever). er búinn að setja gormana í að framan og hann er svo gott sem í góðri hæð núna, er hræddur um að hann verði of lágr að aftan ef ég set lækkunargormana í þar, set sennilega original gormana bara á bilstein demparana til að bryja með og fæ síðan eh klossa til að setja undir lækkunargormana til að fá hann í fullkomna hæð

Plönin eru bara að halda áfram að keyra hann, þrífa, skipta um olíur og það sem bilar....en nóg af tali...hér eru myndir:

Svona var hann þegar ég fékk hann, á ljótum felgum, með brotna kasstara, hálf brotið bensínlok og beyglaða afturhurð
Image

Svo fékk hann felgur
Image

Svo fórum við á honum á bíladaga...Tvisvar. tvær ferðir fram og til baka frá Hvolsvelli
Vel flugubarinn í seinna skiptið á akureyri...
Image
Image
Image
Image

Fór (næstum) allt í snjónum í vetur...
Image
Image
Image

Image
Image
Image

Image
Image
Image
Image
Image

Herna er hann síðan kominn með lækkunargormana að framan
Image
Image

Author:  sosupabbi [ Sat 22. Mar 2014 12:28 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

E32 er best í heimi, sá hann einmitt hjá skúla, mjög flottur bíll :thup:

Author:  Yellow [ Sat 22. Mar 2014 12:40 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

Flottur hjá þér :)


Hvað var að hann eyða í þessum ferðum milli Akureyrar og Hvolsvallar ?

Author:  nocf6 [ Sat 22. Mar 2014 12:56 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

sosupabbi wrote:
E32 er best í heimi, sá hann einmitt hjá skúla, mjög flottur bíll :thup:

Svo sammála, snildar bílar :)

Yellow wrote:
Flottur hjá þér :)


Hvað var að hann eyða í þessum ferðum milli Akureyrar og Hvolsvallar ?

Takk fyrir, hann var í kringum 10-11 lítra fullur af farangri og fólki án þess að vera í neinum sérstökum sprakstri sem ég held að sé bara nokkuð gott fyrir svona stórann bíl

Author:  srr [ Sat 22. Mar 2014 13:03 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

Vélin var ekin 50-60 þúsund km þegar þú fékkst hann frá mér. Svo hún er núna í 75-85 þúsund km :)

Þetta er snilldar bíll. Saknaði hans meira segja pínulítið þegar hann fór......en djö er ég ánægður með að hann fór í góðar hendur :thup:

Author:  BMW_Owner [ Sat 22. Mar 2014 14:02 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

ég og markús erum nátturulega Team E32 og já þetta fær mitt approval. mjög flottur bíll :thup:

Author:  Danni [ Sat 22. Mar 2014 15:04 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

V8 E32 klikkar ekki!

Flottur bíll ;)

Author:  GPE [ Sat 22. Mar 2014 16:02 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

Þessi er bara eigulegur!

Author:  Páll Ágúst [ Sat 22. Mar 2014 16:04 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

Flottur bíll hjá þér, ég á mér markmið að eignast e32 í framtíðinni. Virðast virkilega solid og þæginlegir bílar :drool:

Author:  tolliii [ Sat 22. Mar 2014 17:54 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

Bæði flottur og fallegur, greinilega í góðum höndum og flottar felgur, væri gaman að sjá myndir af innréttinguni :thup:

Author:  jonar [ Sat 22. Mar 2014 18:16 ]
Post subject:  Re: Bmw e32 730i 1993

þessi er bara þéttur og flottur, enda fagmaður sem á hann :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/