fart wrote:
Þessi hefur lítið farið útaf malbiki.
EN.... það sem mestu skiptir er að hann er á 19" felgunum og því belgmeiri dekkjum.
Grunar að M-Sport fjöðrun í bland við 20-21" felgur og dekk sé ekki að gera gott mót á íslensku þvottabretti.
Það sem ég er ekki að fíla við bílinn er eftirfarandi:
1. sport sætin eru of hörð fyrir lengri bíltúra, myndi alltaf velja comfort sæti ef ég færi í annan
2. Það er alveg ömurlegt brak sem kemur þegar maður er með olnbogann á boxinu milli sætana, algjör hönnunar galli.
3. Þéttigúmíin á hurðarfalsinu að frama eiga það til að breytast út þegar maður er að smeygja sér út úr bílnum í þröngu bílastæði.
4. Þessir stælar á fram brettunum (ristarnar) safna ofboðslega mikilli drullu í sig...
Annars er þetta hörku fínn bíll,
Takk takk! Er nú ekki að pæla í getu utan malbiks í sjálfu sér, en malbikið hérna heima er nú ekki upp á sérlega marga fiska og ég vil vera sæmilega úthvíldur eftir lengri túra (keyri töluvert norður á land). Góður punktur með sætin, hafði ekkert pælt í þeim vinkli. Er með comfort sæti í F10 í dag og mjög sáttur með þau. Sýnist allt stefna í að maður verði að sleppa M Sport útgáfunni og reyna að finna eitthvað vel búið "venjulegt" eintak. Já eða punga út fyrir nýjum bíl og spekka sjálfur. Telur bara svo hrikalega hratt þegar maður fer að hlaða aukabúnaði í þessar elskur í umboðinu.