Page 1 of 1

Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 20:07
by Thossi9494
Þá er maður kominn á sinn fyrsta bimma, og djöfull er mikill munur á þessu og corolluni sem ég átti!

523i 9/1999 - Titansilber metallic

Kramið í þessum bíl virðist allt vera frekar solid, allt sem ég hef fundið að sé að eru smáhlutir, t.d að cruise control virkar ekki og að opna með fjarstýringunni opnar ekki bílstjórahurðina, og svo þarf að hjólastilla hann, vantar einn rúðupissstútinn og það mætti skipta um framstuðara.

Fékk hann á laugardaginn frá Birgi Sig, og er búinn að setja hátt í 700 KM á hann á laugardagsnóttinni og sunnudeginum!

Langaði bara að henda þessu inn hérna, megið kommenta eða whatever ef ykkur langar. :)


Tók smá photoshoot eftir að hafa bónað hann frekar illa;

http://i.imgur.com/FeAo7w2.jpg

http://i.imgur.com/EcJ0nLz.jpg

http://i.imgur.com/sB4Nqgj.jpg

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 21:03
by sosupabbi
Ég ástandsskoðaði þennan fyrir einn sem var í kauphugleiðingum við birgir sig og listinn sem ég tók út var tööööluvert lengri hjólastilling og cruise control, en kramið virkaði mjög solid, ágætis bíll sem þarf smá TLC, til hamingju með bílinn :thup:

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 21:23
by Thossi9494
sosupabbi wrote:Ég ástandsskoðaði þennan fyrir einn sem var í kauphugleiðingum við birgir sig og listinn sem ég tók út var tööööluvert lengri hjólastilling og cruise control, en kramið virkaði mjög solid, ágætis bíll sem þarf smá TLC, til hamingju með bílinn :thup:

Þá kemur það bara í ljós :thup:

Planið er að dunda sér við að koma honum í sem best stand og gera hann flottann, það og að keyra hann :mrgreen:

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 21:40
by IcelandicPsycho
Flottur þessi hjá þér, er hann sjálfskiptur?

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 21:43
by Thossi9494
IcelandicPsycho wrote:Flottur þessi hjá þér, er hann sjálfskiptur?

Takk, og já, hann er ssk.

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 21:55
by Hjalti123
Flottur þessi :thup: Sá hann minnir mig á Grandanum í laugardagsnóttinni, leit vel út :)

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 21. Jan 2014 22:07
by Thossi9494
Hjalti123 wrote:Flottur þessi :thup: Sá hann minnir mig á Grandanum í laugardagsnóttinni, leit vel út :)

Takk fyrir það, fór með 10.000 kall í bensín þá nótt :)

Og smá update - Var að skipta út þokuljósinu sem var brotið, get núna rúllað með þokuljós og angel eyes :thup:

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Wed 22. Jan 2014 00:30
by bErio
Getur séð eh myndir af bilnum í gömlum bílar meðlima þræði :)
Svo á eg einhverjar á fb hjá mér

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Wed 22. Jan 2014 03:51
by Daði
Mjög smekklegur bíll bara :)

Mæli með að þú hendir slóðinni að myndunum í [img] kóðann, þá birtast þær hér á spjallinu;

[img]slóð[/img]

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Wed 22. Jan 2014 10:20
by Ámi
þessi er flottur :) virkaði fínt þarna á laugardaginn :thup:

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Wed 22. Jan 2014 10:27
by Thossi9494
Daði wrote:Mjög smekklegur bíll bara :)

Mæli með að þú hendir slóðinni að myndunum í [img] kóðann, þá birtast þær hér á spjallinu;

[img]slóð[/img]

Ég gerði það fyrst, en þær eru 4000x3000 og fylltu þannig upp allt, kann ekki að resizea þær bara í gegnum linkinn. :oops:

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Sun 02. Feb 2014 18:11
by Bjaddnis
Rakst utan í þennan fyrir utan pizzuna í hfj á föstud. kvöld, reif himnuna af lakkinu á hurðinni, skildi eftir beyglu og tvær djúpar rispur

Hvað ætlaru að gera

Re: Fyrsti Bimminn. E39 523i

PostPosted: Tue 11. Feb 2014 22:43
by Thossi9494
Bjaddnis wrote:Rakst utan í þennan fyrir utan pizzuna í hfj á föstud. kvöld, reif himnuna af lakkinu á hurðinni, skildi eftir beyglu og tvær djúpar rispur

Hvað ætlaru að gera

Gráta.