Sælir.
Ég eignaðist þennan fyrir að verða 2 mánuðum síðan og get ekki annað sagt en að ég sé hæst ánægður með hann. Eyðslugrannur bíll með helling af afli. Eyðsla undir 7/100 í innanbæjar akstri.
Sá að einn af fyrri eigendum Daníel Már var búin að gera þráð hér um þennan bíl þannig ég held bara áfram.
Aðeins um bílinn. 2.0L Diesel Turbo +163hp/400nm Beinskiptur 6 gíra Tölvukubbur og mappaður af Mr.X Schmiedmann lækkunargormar Filmur DSC stöðugleikavörn DTC stöðugleikakerfi Professional hljómtæki Bluetooth og sími með raddstýringu Kælir/hitari á milli sæta Armpúðar frammí og afturí Rafmagn í speglum og öllum gluggum //M leðursæti með stillanlegum hliðarstuðningi Hiti í sætum Dimmer í speglum Regnskynjari fyrir rúðuþurrkur Aftengjanlegt dráttarbeisli Þokuljós Tvívirk stafræn miðstöð með loftkælingu (miðstöð aftur í líka) Non smoking pakki Aux fyrir ipod/mp3 spilara Style 159 felgur
Svo var auðvitað þrifið og bónað, fékk félaga minn með mér að taka myndir.






Er búin að vera að taka í gegn það sem þarf, sá í þræðinum hjá Daniel að hann hafi tekið hjólabúnaðin í gegn að framan ss. diska, klossa og hjólalegu.
Ég gerði slíkt hið sama nema bara að aftan. skipti um Diska, Klossa, Borða, Hjólalegu.
Tók fáeinar myndir af því.
 svona tók legan á móti mér.




Síðan var púst stúturinn brotinn þannig ég keypti nýjan.
Gamli stúturinn, sprunginn.
 Nýji stúturinn
 Breyttum svo inlet-inu á nýja stútnum því það var grennra.
 Fyrir.
 Eftir.

Hef verið mikið að pæla í öðrum felgum undir hann helst djúpar felgur með stóru lippi, eða M3 style felgur, hvað fynnst ykkur?
|