bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW e36 323
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=63522
Page 1 of 2

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 19:50 ]
Post subject:  BMW e36 323

Var að splæsa í minn fyrsta bmw, þetta er original 320 bíll, og var swappað í hann m52b25 vanos mótor. bíllinn er góður gírkassa og vélarlega séð, en restin er eiginlega í mauk, ég var að laga subframe-ið, skipti um öxul og setti opið drif í hann þar sem soðna drifið á eftir að sjúga lim í vetur. svo reyndi ég að púsla honum saman og gera allt snyrtilega að innann, en það er einsog innréttingin sé úr 4 mismunandi bílum, það á eftir að gera helling, þessi bíll hefur ekki fengið mikla ást í gegnum tíðina það er nokkuð ljóst, planið er að gera hann fullkominn fyrir bíladaga 2014

hérna er ein léleg mynd af honum, hendi fleiri inn við tækifæri
Image

Author:  Alpina [ Sat 12. Oct 2013 19:51 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Til lukku með þetta,,, mikið verk framundan heyrist mér

Author:  srr [ Sat 12. Oct 2013 20:02 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

HA-868 ?

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 20:07 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Alpina wrote:
Til lukku með þetta,,, mikið verk framundan heyrist mér
þakka þér, og já það er slatti framundan, og þetta er HA-868 já

Author:  srr [ Sat 12. Oct 2013 20:11 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

IcelandicPsycho wrote:
Alpina wrote:
Til lukku með þetta,,, mikið verk framundan heyrist mér
þakka þér, og já það er slatti framundan, og þetta er HA-868 já

Jóhann sem átti hann var búinn að tala um að honum vantaði bílstjórahurðina í þessum lit.
Ég geymdi hana alltaf fyrir hann en aldrei varð af því að hann kom.
Svo þú veist af því að ég á hana til í bæði cosmos schwarz og schwarz II :thup:

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 20:16 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

srr wrote:
IcelandicPsycho wrote:
Alpina wrote:
Til lukku með þetta,,, mikið verk framundan heyrist mér
þakka þér, og já það er slatti framundan, og þetta er HA-868 já

Jóhann sem átti hann var búinn að tala um að honum vantaði bílstjórahurðina í þessum lit.
Ég geymdi hana alltaf fyrir hann en aldrei varð af því að hann kom.
Svo þú veist af því að ég á hana til í bæði cosmos schwarz og schwarz II :thup:


Snilld, mér vantar einmitt bílstjórahurð, það er margt og mikið sem er ótrúlega sjúskað á þessum bíl, get hent inn myndum af því á morgun, þá sérðu hvað ég er að tala um.

Author:  srr [ Sat 12. Oct 2013 20:19 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Á líka til hurðarcylindrana og skottcylinderinn sem matcha við sviss lykilinn sem þú ert með.

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 21:21 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

srr wrote:
Á líka til hurðarcylindrana og skottcylinderinn sem matcha við sviss lykilinn sem þú ert með.

Tær snilld! Ég kíki á þetta við tækifæri!

Author:  thorsteinarg [ Sat 12. Oct 2013 21:27 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Ef að lakkið á þessum bíl væri ekki eins ljótt og það er, greinilega verið sprautaður af eitthverjum amatúr, og gríðanlega illa, þá væri þessi bíll mergjaður ! OEM mtech framstuðari, afturstuðari með diffuser og e39 hálfleðruð sportsæti svo eitthvað sé nefnt.
Fínasti efniviður í geggjaðan bíl !
Til hamingju með kaupinn og ég hef fulla trú á að þú gerir þennann mjög flottann :thup:

Author:  bErio [ Sat 12. Oct 2013 22:20 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

biddu haaa? Eru e39 sæti i þessum e36?

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 23:54 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

bErio wrote:
biddu haaa? Eru e39 sæti i þessum e36?
e46 hálfleðruð framsæti, en það eru hinsvegar einhver svaka spes e39 framljós eða eitthvað, hann hlýtur að vera að ruglast

Author:  IcelandicPsycho [ Sat 12. Oct 2013 23:55 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Hérna er ein mynd af honum í öllu sínu veldi Image

Author:  ömmudriver [ Sun 13. Oct 2013 00:13 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Aha, þessi tók þátt í driftinu á Bíladögum í sumar og já massa sílsar btw :lol:

Author:  thorsteinarg [ Sun 13. Oct 2013 01:02 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Hræðilegir sílsar :( Já þessi var ekki alveg að standa sig í driftinnu á bíladögum haha !

Author:  Páll Ágúst [ Sun 13. Oct 2013 04:38 ]
Post subject:  Re: BMW e36 323

Svo þessi e39 ljós :bawl:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/