bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=63128 |
Page 1 of 3 |
Author: | Bandit79 [ Thu 12. Sep 2013 19:58 ] |
Post subject: | BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Keypti þennann fyrir 2 mánuðum eða svo. Fæ lánaðar eldri myndir frá fyrri eiganda. Hann verður að láta mig vita ef það er ekki í lagi. En basic info ![]() BMW E34 Sedan 04/1991 M50B25 non vanos 192 HP 245 NM 25% sperr drif SSK .. en fékk BSK M50 kassa með. Ekinn 236.000 Skoðaður 2014 18" Staggered Artec felgur 8" framan og 10" aftan 16" vetrarfelgur á lala dekkjum Framleiddur án hvarfakúts Svört leður innrétting í mjög góðu ástandi Armpúðar Aftakanlegur krókur .. en krókinn vantar Hiti í sætum Stóra OBC CD/MP3/AUX headunit BMW Hi-fi system Rafmagn í öllum rúðum Samlæsingar Lækkaður .. veit þó ekki hversu mikið.. þarf að kanna það betur Tvískipt miðstöð Þegar ég kaupi bílinn er hann í alls ekki góðu ásigkomulagi. Fyrri eigandi bombaði á kant til að forðast árekstur og beyglaði eina Artec felguna en hún beyglaðist bara.. álið rifnaði ekki sem betur fer. Ég býst við að fara með hana í áliðjuna á næstu dögum þegar tími gefst. Stýrisbúnaður hafði ekki gott af þessum kannti. Það þurfti að skipt um stýrisupphengjufóðringu,balansstangarenda, aftari spyrnur að framan. Einnig eru allir demparar búnir en gormar eru í lagi. Mótstaðan í bensíntanki er nánast brotin í tvennt! hvernig það gerðist er góð spurning ![]() ![]() Frambrettin eru nánast horfin niðri við sílsana.. Skúli reddar ![]() Afturhjólalega v/m var alveg kapútt ABS-krans v/m aftan vantar tönn, þannig að ABS er alltaf að stríða á lágum hraða. Bremsurör v/m aftan voru kapútt. Sekskantur á nipplum var horfinn. Fyrri eigandi sagði að hann væri með einhverja vélarbilun. Bíllinn var að drepa á sér þegar vélin næði vinnsluhita. Það kom í ljós að ventlalokspakkningin var handónýt og 3 öftustu kertagangarnir voru fullir af olíu. Sjálfskiptingin var að haga sér undarlega með hörðum skiptum og eins og hún væri alltaf í "N" þegar ég t.d keyrði upp að hringtorgi og bremsaði og ætlaði að gefa inn aftur út úr torginu. Þá var revar hann bara og þurfti að bíða í 2-3 sek til að hún kæmi sér í þrep. Einnig var hún ekkert ánægð með að fara í efsta þrepið. Bremsur að framan þarf að skipta út. Diskar hafa verið rendir og eru þeir sléttir og fínir en orðnir vel þunnir. Klossar eru samt nýlegir handbremsuborðar að aftan eru orðnir of slitnir, ekkert nema nýtt þar kemur til greina Það þarf að skipta um bremsuþreifara að aftan Eithver ógeðsleg sveppasía var komin í húddið en orginal boxið fylgdi með. Svo var öryggið fyrir framljós v/m kapútt ![]() Svo það var bara ekkert annað í stöðunni en að gera greyið gott. Það sem ég er búinn að gera : Skipta um stýrisupphengjufóðringu h/m Skipta um aftari spyrnu v/m framan Skipta um balansstangarenda h/m framan Skipta um ventlalokspakkningu, þrífa kefli og tékka kerti Skipta um hjólalegu v/m aftan Skipta um báðar bremsuslöngur og rör v/m aftan Tékka á skiptingu, fylla á og láta skiptingu læra upp á nýtt. Smooth as a babies butt núna ![]() Skipta um öryggi fyrir framljós v/m Þvo allann vélarsalinn, orðinn ansi snyrtilegur núna. Var orðinn ógeðslegur útaf olíuleka. Hennti þessari sveppasíu og kom orginal boxinu fyrir Skipta um olíu og olíusíu, OEM auðvitað Skipta um bremsuvökva á öllu kerfinu Svo er bara að halda áfram... Ný mótstaða fer í tankinn núna um helgina Fæ brettin á morgun og verða þau græjuð fyrir sprautun Þarf að redda dempurum allann hringinn Býst við að panta allt í bremsur frá DK ásamt aftari spyrnu h/m framan, handbremsudóti og eithvað meira smádót Þarf að redda nýrri rúðuþurrku v/m Láta dökku afturljósin á aftur, þau voru tekin af vegna skoðunar gera Hella dark look á framljósin Kaupa smókuð stefnuljós að framan Kaupa eða græja shadowline nýru Henda framfelgu í réttingu og redda nýjum dekkjum Sjá hvort að ég geti fundið allt það sem vantar í BSK swappið. Er bara með kassann þannig að þetta er slatti sem vantar. Alþrif að innan og bera á leðrið Massa kvikindið og keyra.......... Annars er þessi bíll alveg lygilega þéttur! allar hurðar lokast eins og þær voru nýjar. Maður heyrir lítið vegarhljóð inn í bílnum og þrátt fyrir slappa spyrnu og ónýta dempara. Allt rafmagn í virkar og engin pixla vandræði. Vélin gengur rosalega ljúft og hljóðið er nákvæmlega eins og það á að vera ![]() en hann er vel þess virði að bjarga. Nokkrar myndir frá síðasta ári. Og þetta eru myndir frá fyrri eiganda. Hann er aðeins skítugari og á vetrarfelgum í dag. Kem bráðum með aðrar myndir og mynda uppfærslur ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Kv. Helgi |
Author: | ömmudriver [ Thu 12. Sep 2013 21:23 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Til hamingju með að vera kominn á E34 og plönin hljóma vel! Var vökvinn á skiptingunni orðinn gamall og/eða vantaði slatta á hana? |
Author: | Bandit79 [ Thu 12. Sep 2013 22:52 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
ömmudriver wrote: Til hamingju með að vera kominn á E34 og plönin hljóma vel! Var vökvinn á skiptingunni orðinn gamall og/eða vantaði slatta á hana? Vökvinn var nýlegur og sían líka. En það var ekki fyllt rétt á hana og svo hafði hún gott af því að "læra" upp á nýtt ![]() |
Author: | Bandit79 [ Sun 15. Sep 2013 12:09 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
jæja þessi skipting er ekki að virka þrátt fyrir allt saman. Ætlaði að skjótast í áliðjuna á föstudaginn og var á ljósunum við sprengisand. Gef bílnum smá inn og hann skellir sér allt í einu í trans-mode. Ég rúllaði honum varlega niður til áliðjunar og stoppaði þar. Svissaði af honum og tók lykilinn úr og beið í nokkrar sekúndur. Svissaði aftur á hann og þá virkaði hún rétt. Svo gerði hann þetta aftur í gær laugardag og byrjaði að láta skringilega eins og skiptingin fer í allt of há þrep miðað við hraða og snúninga. Nánast eins og að hún sé að kæfa bílinn. Ef það er eithvað sem ég hata þá er það SSK vesen í þessum bílum!! Þannig að núna ætla ég að sanka að mér hlutum í BSK swap. Ég á kassann en vantar allt hitt ![]() En ég náði þó að laga tankmótstöðuna um helgina ![]() á bílnum. |
Author: | Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 15:22 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Eithvað að gerast ![]() Var að panta nýja aftari spyrnu með fóðringu h/m nýjann stýrisenda (báða enda og nýja millistöng) Nýja loftsíu og nýja bremsudiska að framan Svo gat áliðjan bjargað 18" framfelguni.. hann var ekkert alltof bjartsýnn til að byrja á en hann gat á endanum rétt hana .. þá er þessum felgugangi bjargað ![]() Svo breytti ég mælaborði og borðtölvu yfir í ensku Hann lætur stundum leiðinlega. Eins og hann kokar við hæga inngjöf og alltaf í kringum 1500-1600 RPM Þarf að kanna vacuum leka eða þá að MAF´inn sé að gefa sig ![]() sýnir alltof mikla eyðslu. Any ideas ? |
Author: | Alpina [ Sun 29. Sep 2013 15:41 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa |
Author: | Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 18:09 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Alpina wrote: M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa já .. en hann er mjög fínn í hægagangi en svo stíg ég hægt og rólega á gjöfina og þegar hann kemur upp í þessa snúninga þá kokar hann. En ef ég held áfram að stíga á gjöfina þá fer hann í gegnum þetta leiðindar snúningssvið og vinnur eðlilega en eyðslumælirinn heldur áfram að vera í algjöru rugli s.s sýnir alls ekki eðlilega eyðslu. Hemmi verkstjóri var búinn að benda mér á að tékka slöngurnar hjá ICV. Held að það sé næsta skref að tékka þennann rofa eins og þú nefnir. |
Author: | GunniT [ Sun 29. Sep 2013 19:56 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
tékka allt vacum og kíkja niður í kertagötin. gætu verið full af olíu eða bleytu. |
Author: | Bandit79 [ Sun 29. Sep 2013 20:18 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
GunniT wrote: tékka allt vacum og kíkja niður í kertagötin. gætu verið full af olíu eða bleytu. Er nýbúinn að skipta um ventlalokspakkningu.. hin var alveg búin og 3 kertagangar voru fullir af olíu. En það er allt komið í lag núna. Skoða þetta samt snögglega ásamt vacuum slöngunum. |
Author: | Mazi! [ Mon 30. Sep 2013 13:00 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Finnst þessar felgur merkilega töff, til hamingju með bílinn annas, verður gaman að fylgjast með þessu verkefni ![]() |
Author: | maxel [ Mon 30. Sep 2013 16:05 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Bandit79 wrote: Alpina wrote: M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa já .. en hann er mjög fínn í hægagangi en svo stíg ég hægt og rólega á gjöfina og þegar hann kemur upp í þessa snúninga þá kokar hann. En ef ég held áfram að stíga á gjöfina þá fer hann í gegnum þetta leiðindar snúningssvið og vinnur eðlilega en eyðslumælirinn heldur áfram að vera í algjöru rugli s.s sýnir alls ekki eðlilega eyðslu. Hemmi verkstjóri var búinn að benda mér á að tékka slöngurnar hjá ICV. Held að það sé næsta skref að tékka þennann rofa eins og þú nefnir. ICV er hægagangsrofinn gamli |
Author: | Bandit79 [ Mon 30. Sep 2013 16:53 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
maxel wrote: Bandit79 wrote: Alpina wrote: M50 er víst tiltölulega þekktir fyrir leiðinlega hægagangs-rofa já .. en hann er mjög fínn í hægagangi en svo stíg ég hægt og rólega á gjöfina og þegar hann kemur upp í þessa snúninga þá kokar hann. En ef ég held áfram að stíga á gjöfina þá fer hann í gegnum þetta leiðindar snúningssvið og vinnur eðlilega en eyðslumælirinn heldur áfram að vera í algjöru rugli s.s sýnir alls ekki eðlilega eyðslu. Hemmi verkstjóri var búinn að benda mér á að tékka slöngurnar hjá ICV. Held að það sé næsta skref að tékka þennann rofa eins og þú nefnir. ICV er hægagangsrofinn gamli Það veit ég vel ![]() ![]() |
Author: | Danni [ Mon 30. Sep 2013 19:23 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Það lagast öll vandamál við BSK swap! |
Author: | Angelic0- [ Mon 30. Sep 2013 19:24 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Danni wrote: Það lagast öll vandamál við BSK swap! word... áttu gírkassa í E38 bílinn minn ![]() |
Author: | Danni [ Mon 30. Sep 2013 20:07 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i 1991 M50B25 Sperrdiff |
Angelic0- wrote: Danni wrote: Það lagast öll vandamál við BSK swap! word... áttu gírkassa í E38 bílinn minn ![]() Já, en ég er að nota hann ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |