bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E23 735i/745i 1984 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=62703 |
Page 1 of 2 |
Author: | srr [ Sun 11. Aug 2013 00:52 ] |
Post subject: | E23 735i/745i 1984 |
Skil ekkert í mér af hverju ég var ekki löngu búinn að setja þráð um bíl sem ég er búinn að eiga núna í 18 mánuði ![]() E23 745ia Framleiddur 30. nóvember 1984. Sjálfskiptur, fjögurra þrepa 4hp22 ZOBELBRAUN METALLIC (196) að lit. Executive Buffaló leður innrétting, nutria 0181 að lit (Allt leðrað nema stóra mælaborðið.) Gardína í afturglugga. Læst 210mm drif. Fæðingarvottorð: ![]() Er því miður núna aðeins með 3.5 na mótor. Sæmi á heiðurinn af því að hafa downgrade'að þennan bíl niður í venjulegan 3.5 mótor í stað túrbó mótorsins ![]() Upprunalega vélin úr þessum bíl er núna í E24 sexunni hans. Fyrsta sem ég þurfti að gera var að redda mér nýju pústi undir bílinn. Það var löngu horfið undan honum hjá fyrri eiganda. Fékk fremstu kútana nýja OEM BMW. Aftasti kúturinn var svo til nýr Eberspacher frá BJB. Hér er sonur minn að klappa oem dótinu ![]() ![]() ![]() Þegar ég eignast bílinn hafði hann ekki verið gangfær í að verða 6 ár. Eftir mikla leit komst ég að vandamálinu og hann varð gangfær á ný. Skipti einnig um sjálfskiptinguna í leiðinni þar sem bíllinn hafði verið dreginn frá Reykjavík til Selfoss og til baka á árunum sem hann var ógangfær. Tók engan séns með gömlu skiptinguna þar sem það þurfti hvort sem er að taka hana af til að skipta um startkransinn (flexplötuna). Ástæðan fyrir því að bíllinn hafði ekki farið í gang var brotin tönn á flexplötunni,,,,,sem annar motronic skynjarinn á að skynja TDC merkið frá. Orsökin þýddi að hann neistaði aldrei. Hér sést hvar tönnin hafði brotnað af. ![]() Einnig var brotin ein tönn á startkransinum sjálfum ![]() Donor 3HP22 platan Það þurfti að taka TDC tönnina af þessu hjóli og setja á annað 4HP22 motronic hjól sem ég átti. ![]() Tönnin komin á rétt hjól (3 boltar á converter vs 4) ![]() ![]() Og svo lagerinn sem þurfti í þetta,,, Lagað 4hp22, skemmt 4hp22 og donor 3hp22. ![]() Fékk fulla skoðun á bílinn í fyrra 2012 og svo aftur í ár 2013 og fékk hann núna 2015 skoðun. Í vetur/vor sem leið var hann 60% málaður og að þessu sinni var málað: Hægri hlið eins og hún leggur sig, nefpanel, húdd, skottlok og topp. Þegar ég er búinn að verða mér úti um aðrar betri hurðar vinstra megin er hægt að mála þá hlið ásamt báðum stuðurum. Svona leit bíllinn út þegar ég sótti hann í febrúar 2012 (afsakið myndaflóðið): ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Fékk mér einstaklega heppilegt steðjaplötu númer á bílinn ![]() ![]() Í fyrra 2012 fékk bíllinn fulla skoðun eftir langa fjarveru frá skoðunarstöðum, hafði farið síðast 2006 í skoðun. ![]() En eftir smá yfirhalningu frá 2012-2013 þá leit bíllinn svona út í vor,,,, Fyrst fornbílaskoðun hjá Fornbílaklúbbnum: Sem auðvitað gaf 15 skoðun ![]() ![]() Og á bíladögum 2013: ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Sun 11. Aug 2013 01:35 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
745 voru MIGHTY bílar þess tíma ![]() ansi margir af late model sem voru með þessu brúna leðri til lukku,, stendur þig vel sem ceo retro BMW |
Author: | kristjan535 [ Sun 11. Aug 2013 02:56 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
hörkubíl og mjög gott að gista í þessum ![]() |
Author: | srr [ Sun 11. Aug 2013 03:00 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
kristjan535 wrote: hörkubíl og mjög gott að gista í þessum ![]() Hehe já það var það ![]() |
Author: | srr [ Wed 14. Aug 2013 23:46 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
![]() |
Author: | ingo_GT [ Thu 15. Aug 2013 00:40 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Þessi er bara flottur hef sjeð hann stundum hérna í götunni hjá mér ![]() |
Author: | srr [ Sun 13. Oct 2013 18:37 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Góða nótt og hafið það gott í vetur. Farinn að sofa,,,,ZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz........... ![]() ![]() ![]() |
Author: | Yellow [ Sun 13. Oct 2013 19:10 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Mjög flottur hjá þér. Hvernig bíll er þetta fyrir ofan þinn? |
Author: | srr [ Sun 13. Oct 2013 19:16 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Yellow wrote: Mjög flottur hjá þér. Hvernig bíll er þetta fyrir ofan þinn? Þakka,,,, En ég veit hreinlega ekki hvaða gripur það er. Kíkti ekkert á það,,,, |
Author: | íbbi_ [ Wed 16. Oct 2013 20:57 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Mercury Cyclone synist mer |
Author: | Angelic0- [ Thu 17. Oct 2013 07:00 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Truflaður hjá þér Skúli... Settiru 3hp22 í hann aftur eða uppfærðiru í 4hp22 ![]() |
Author: | srr [ Thu 17. Oct 2013 07:26 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Angelic0- wrote: Truflaður hjá þér Skúli... Settiru 3hp22 í hann aftur eða uppfærðiru í 4hp22 ![]() 745 fengu 4hp,,,en ég setti aðra 4hp í hann já,, |
Author: | Angelic0- [ Thu 17. Oct 2013 18:52 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
nú, ok ![]() |
Author: | srr [ Sun 03. Nov 2013 12:24 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
Fékk þetta eðal OEM dót í vöruskiptum í gær ![]() Verður gaman að setja þetta á bílinn þegar hann kemur úr geymslu næsta vor ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | sosupabbi [ Sun 03. Nov 2013 15:15 ] |
Post subject: | Re: E23 735i/745i 1984 |
srr wrote: Fékk þetta eðal OEM dót í vöruskiptum í gær ![]() Verður gaman að setja þetta á bílinn þegar hann kemur úr geymslu næsta vor ![]() ![]() ![]() ![]() Bíllinn verður flottur með nýja dótinu, dauðlangar í svona nýtt á minn. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |