Jæja, ákvað að splæsa í þráð fyrir bimman, þetta er semsagt e36 325i 93 árgerð og er fyrsti bíllinn minn.
Ég kaupi bílinn í byrjun maí og er búinn að nota hann í skólann og vinnuna síðan þá.
Bíllinn var fluttur inn í september 2012 en ekki settur á númer fyrr en í febrúar 2013.
Hann er ekinn 275 þúsund km en er merkilega þéttur og gott að keyra hann.
Bíllinn er með mtech framstuðara og diffuser og það væri gaman að redda mtech sílsum og aftursvuntu.
það komu style 24 felgur með honum og ég er að vinna í því að mála þær og koma þeim undir bílinn.
Ég keypti líka glæný 225/45 r17 dekk sem geta ekki beðið eftir að komast undir bílinn og út að spóla
Næst á dagskrá er svo að skipta um miðstöðvarmótor og fara aðeins yfir bílinn og gera hann sætari
En nóg af kjaftæði, hérna eru nokkrar myndir sem ég tók af bílnum þegar ég kom með hann heim eftir að ég keypti hann.





M50B25




Kv. Ámi