bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

bmw e30 316///felgur:D
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=60757
Page 1 of 13

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 04:30 ]
Post subject:  bmw e30 316///felgur:D

Ég varð víst bmw eigandi í september 2012 er bara búin að vera latur að búa til þráð um bilinn en hérna er hann víst :D:D



um er að ræða e30 316 1984 módel bsk 4gíra,, ekinn 116,xxxkm,,,,,, sem ég keypti af aroni emil hann setti bílinn saman því hann var bara skel þegar að hann keypti
hann af manni á dalvík en hann var búin að vera að gera upp bílinn í 19 ár og bíllin var sprautaður 1995 og búin að standa ósamansettur svoleiðis þangað til að aron kaupir hann
í januar, 2012 , en boddyið er mjög heilt bíllinn er 99 % óriðgaður og innrétting alveg heil engin göt í sætum enda reif kallinn sem átti bílinn 2 bila og tók allt það besta og lét það
í 1 bíl og það er útkoman af þessu eintaki og síðan var keypt innrétting úr 3 bilnum en hún er úr 1988 bíl , hann pantaði líka notaðar hurðar einhverstaðar að utan sem voru alveg strá heilar
og ný aftur ljós og ný innrabretti úr umboði svo var það eitthvað meira er mjög sáttur með hann,, ég ætla að hafa kramið sem er í honum áfram þótt þetta sé m10b16 finnst það
bara fyndið ,, og já svona lítur kaggin út í dag :D :D
Image
Image

Author:  Aron123 [ Mon 01. Apr 2013 04:36 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

flottur :thup: get ekki beðið eftir að sjá hann á rúntinum 8)

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 04:48 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Aron123 wrote:
flottur :thup: get ekki beðið eftir að sjá hann á rúntinum 8)

vonandi er ekki langt í það er bara að bíða eftir soggreinarpakkningum svo er hægt að fara skoða restina :D :D

Author:  PeturW [ Mon 01. Apr 2013 04:52 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Geðveikur E30, verður gaman þegar þessi verður tilbúinn!

Author:  Páll Ágúst [ Mon 01. Apr 2013 04:52 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Bara sexý bíll

Author:  odinn88 [ Mon 01. Apr 2013 04:53 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

mjög flottur hjá þér og til hamingju með þennan

væri gaman að setja turbo á hann 8)

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 05:00 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

odinn88 wrote:
mjög flottur hjá þér og til hamingju með þennan

væri gaman að setja turbo á hann 8)



sé engan tilgang með því allavegana mjög lítinn haha en takk annars :D

Author:  BMW_Owner [ Mon 01. Apr 2013 11:48 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

flottur þessi, en ég segi alltaf ef þú getur hent þessu á hlið í hringtorgi þá þarftu ekkert stærri vél :thup:

Author:  SteiniDJ [ Mon 01. Apr 2013 13:37 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Sendu Dr. Stock PM, hann er með alveg eins bíl (aðeins nýrri) með blöndung og fór í gegnum viðgerð á honum (með hjálp Eðalbíla) og þekkir eitt og annað í þessu. :)

Til hamingju með bílinn!

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 15:15 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

SteiniDJ wrote:
Sendu Dr. Stock PM, hann er með alveg eins bíl (aðeins nýrri) með blöndung og fór í gegnum viðgerð á honum (með hjálp Eðalbíla) og þekkir eitt og annað í þessu. :)

Til hamingju með bílinn!



ég sendi honum í pm en takk annars :D

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 15:16 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

BMW_Owner wrote:
flottur þessi, en ég segi alltaf ef þú getur hent þessu á hlið í hringtorgi þá þarftu ekkert stærri vél :thup:



takk :D en góður þessi haha :thup:

Author:  gunnar695 [ Mon 01. Apr 2013 15:24 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

flottur hjá þér frændi .

ég mundi samt fara í m50 swap :D

Author:  Angelic0- [ Mon 01. Apr 2013 16:56 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Þessi er bara flottur hjá þér frændi,

Halldór (bróðir Gunnar695) frændi þinn ætti að geta skoðað þennan blöndung eitthvað, hann var allavega með 2 ef ekki 3 svona bíla sem að hann fiffaði blöndungsvesen á...

Sá bílinn um daginn fyrir utan hjá Mömmu þinni, virðist vera AFAR heill...

Author:  Saevartorri2412 [ Mon 01. Apr 2013 22:24 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Angelic0- wrote:
Þessi er bara flottur hjá þér frændi,

Halldór (bróðir Gunnar695) frændi þinn ætti að geta skoðað þennan blöndung eitthvað, hann var allavega með 2 ef ekki 3 svona bíla sem að hann fiffaði blöndungsvesen á...

Sá bílinn um daginn fyrir utan hjá Mömmu þinni, virðist vera AFAR heill...



hann man ekkert eftir því að hafa átt e30 nema 1 og hann man bara eftir að hafa átt hann í smá tima haha

Author:  Yellow [ Mon 01. Apr 2013 23:10 ]
Post subject:  Re: bmw e30 316///!!

Þessi er BARA flottur hjá þér Gannli 8)


Hlakka til að sjá þennan sleikja skólaplanið :thup:

Page 1 of 13 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/