bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E36 328i '96 - update: flækjur og shortshift! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=5895 |
Page 1 of 13 |
Author: | iar [ Sat 08. May 2004 00:49 ] |
Post subject: | E36 328i '96 - update: flækjur og shortshift! |
Jæja, þá er maður loksins kominn á nýjan vagn! Nú er ég semsagt stoltur eigandi Bostongræns E36 328i '96. ![]() Bílinn kannast líklega nokkrir hér við en hann er beinskiptur með M sportpaket (sílsar, listar, stuðarar, svart áklæði í toppi, sportfahrwerk o.fl.), topplúga, hálfleðruð sportsæti, armpúði (seinni tíma viðbót) ofl. nammi, sjá breytingar hér fyrir neðan. Alveg ótrúlega skemmtilegur bíll, vélin er alger snilld bæði afl og hljóð (útvarpið hefur ekki verið mikið notað ![]() ![]() ![]() Hér eru nokkrar myndir af bílnum. Ein af fyrstu myndunum: ![]() Kominn með gráu hliðarstefnuljósin og silfurspreyaða stefnuljósaperu: ![]() Kominn með einn M-look spegil: ![]() Nokkur skot innan úr bílnum: ![]() ![]() ![]() Vélin nýþrifin og fín: ![]() (update júní 2005) Kominn á nýjar felgur, 17" M3 (Style 67) replica felgur: ![]() (update ágúst 2005) KW 40/40 fjöðrunarkerfi komið undir: ![]() Helstu breytingar síðan ég keypti hann: - Spreyjaði perurnar í stefnuljósunum silfurlitaðar(lýsing og myndir) - Grá stefnuljós á brettin - M-look speglar (lýsing og myndir) - Armpúði á milli framsæta - Og ýmislegt smálegt s.s. skipt um perur, blettað í steinkast og svona... - M50 manifold (maí 2005) - BBTB (big bore throttle bodies) (maí 2005) - CAI, loftsía og hitahlíf (maí 2005) - Mældur á dynobekk hjá Tb í byrjun júní 2005 og gaf 211hö@5660sn/mín (186hö út í hjól) --> Dynograph <-- - 17" M3 replicur (júní 2005) - KW 40/40 fjöðrunarkerfi (ágúst 2005) - 3.23 Læst drif úr E36 M3 US ![]() - "Nýr" gírhnúður, notaður en lítið sem ekkert slitinn. ![]() - Orginal BMW slökkvitæki undir bílstjórasæti (ágúst 2006) - Ný afturljós, þ.e. rauð/hvít "kristal" (desember 2006) - Framendi sprautaður og 2-3 ryðbólur (maí 2007) - UUC Swaybars (maí 2007) - Flækjur (sumar 2009) - Z3M ShortShifter (sumar 2009) (eða í stuttu máli: E36 328i '96+M50 mani+BBTB+CAI+17"+KW+3.23LSD ![]() ToDo og maybeDo listinn: (styttist óðum ![]() - Framljós mögulega með angel eyes, hvernig nákvæmlega verður erfitt val. ![]() - Strutbar |
Author: | Svezel [ Sat 08. May 2004 00:51 ] |
Post subject: | |
Glæsilegt, til hamingju með bílinn. Þetta er alveg stórglæsilegur bíll og ég veit að þú heldur honum þannig ![]() |
Author: | Bjarkih [ Sat 08. May 2004 00:52 ] |
Post subject: | |
Til hamingju ![]() ![]() |
Author: | oskard [ Sat 08. May 2004 00:58 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Twincam [ Sat 08. May 2004 00:59 ] |
Post subject: | |
Þessi er vel svalur. Til hamingju með gaurinn. ![]() |
Author: | hlynurst [ Sat 08. May 2004 01:25 ] |
Post subject: | |
Fínn bíll. ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 08. May 2004 01:58 ] |
Post subject: | |
Alveg hreint magnaður bíll, liturinn, felgurnar og ekki skemmir liturinn !! Til hamingju með hann !! ![]() |
Author: | Haffi [ Sat 08. May 2004 03:52 ] |
Post subject: | |
Til hamingju meistari! ![]() |
Author: | jonthor [ Sat 08. May 2004 09:02 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með bílinn og að vera kominn með fleiri hesta undir húddið ![]() |
Author: | bebecar [ Sat 08. May 2004 09:43 ] |
Post subject: | |
Ég segi bara NICE MOVE! ELdri bíll, fleiri hestar - mjög góð taktík og ekku ertu að fá neinn slor bíl, þetta er einn af þeim fallegustu! EN hvað skyldi Hlynur fá sér? ![]() |
Author: | arnib [ Sat 08. May 2004 12:37 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | ta [ Sat 08. May 2004 12:47 ] |
Post subject: | |
glæsilegt , til lukku með þetta. mikil framför frá 318ia, eða hvað? ![]() |
Author: | Jss [ Sat 08. May 2004 13:53 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með þetta, þetta eru mjööög skemmtilegir bílar. ![]() ![]() |
Author: | Jonni s [ Sat 08. May 2004 14:13 ] |
Post subject: | |
Hamingjuóskir með nýja Bimmann, þetta er alveg gullfallegur bíll og ekki skemmir aflið fyrir. Og mundu það bara að úti á þjóðvegum máttu vera eins snöggur og þú vilt frá 0 - 90 kmh. ![]() |
Author: | Bjarki [ Sat 08. May 2004 15:18 ] |
Post subject: | Re: E36 328i '96 |
Til hamingju þetta er mjög fallegur vagn ![]() iar wrote: Ég set svo fleiri inn þegar ég er búinn að taka bílinn í gegn og þrífa hátt og lágt.
![]() Er Hlynur svona mikill sóði? ![]() |
Page 1 of 13 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |