Þennan kannast e'h kraftsverjar við...



Þetta mun semsagt vera 520i með BLÁU LEÐRI...

Hlaut þar af leiðandi nafngiftina Stjáni Blái hjá Sidda og Bartek, og ég kann bara ágætlega við nafnið...
Það sem að er að gerast hérna er að ég ætla að smíða mér track græju, E36 Diesel draumurinn dó þegar að ég braut motor-mount-ið og eftir að ég hafði ræst og keyrt smá hring og komist að því að öll smurolían gubbaðist út um túrbínuna reif ég túrbínuna af og allt í sundur komst ég að þeirri niðurstöðu að allt var í steik og E36 Compact var settur á hold... (LSx seinna ?)
Jæja en nóg um það, þessi þráður á að snúast um þennan E34...
Ég á 4 M30 mótora, M30B25, M30B35, M30B35 og M30B35....
Allir eru þeir af sitthvorri árgerðinni, 1970's - 1993, en verður sameinað í einn góðan kjallara... nota stimpikollana úr 1993 og læt renna aðeins ofan af til að lækka þjöppu...
Búið að tína til og gramsa saman og so far er þetta project búið að kosta sub 200k og ég ÆTLA að sanna og sýna það með þessum bíl að það þarf ekki að kosta MEGA $$$ að gera TURBO...
Sparaðist strax ~100þ þegar að CP stimplarnir komu óvart ekki frá USA

Það sem að ég er með so-far er:
Siemens Deka IV 80lb/hr 830cc spíssar
TiAL Sport Q Blow Off Valve
TiAL Sport 46mm Wastegate
ARP & RaceWare - Performance Head Stud Kit f/M30
VAC - M30 MLS Gasket .080 Cylinder Bore up to 93mm - verður sennilega ekki notuð
Holset HX35 & Holset H1E - á eftir að ákveða hvora ég mun nota

Intercoolerinn úr Compact, læt hann passa e'h veginn

Það sem að mér vantar ennþá er VEMS tölva, sem að verður græjað fyrir sumarið, ágætt að byrja bara á að púsla saman mótor og hafa klárt...
Svo á eftir að smíða pústgrein, en ég ætla að ráðast í það sjálfur í Feb/Mars...
Það vantar auðvitað líka intercooler pipes og eflaust eitthvað fleira smálegt sem að á eftir að tínast til, en base-ið er komið

Skítakomment eru vinsamlega afþökkuð og menn mega bara senda mér það í PM ef að þeim liggur það virkilega á hjarta
