Page 1 of 8

E34 525ix steisjon! - Gervifótur og skoðun

PostPosted: Sat 19. May 2012 22:08
by IvanAnders
:santa:

Það hringdi einhver dóni í mig um daginn og keypti E39 bílinn minn af mér :?

Mig var farið að langa í station bíl, og setti budgetið innan velsæmismarka!
Um leið og pappírsvinnan var afstaðin með söluna á E39 hringdi ég í Aron Andrew og vildi fá að prófa ix-inn sem hann hafði auglýst til sölu, hann var fyrstur á þokkalegum lista sem ég hafði útbúið mér.

Öðlingurinn/sölumaðurinn Aron Andrew ákvað að lána mér bílinn bara, leyfa mér bara að fara á honum heim og svona.
Daginn eftir var ég búinn að keyrann 90km og brosað allan tímann :oops:
Skellti bílnum á lyftu og sá að bíllinn er heill og góður. Hringdi þá í Aron og gekk frá kaupunum án þess að skoða nokkurn annan bíl :lol:

Nóg af blaðri, hér er gripurinn:
(Ristavélamyndir)

Image
Image
Innrétting: (Veit ekki hver tók þessar myndir, sennilega Andrew)
Image
Image

Fékk hann með míglekri stýrismaskínu, en önnur fylgdi með í kaupunum, búinn að henda henni í,
legg langt frá olíublettunum núna og þykist ekkert vita :lol: :oops:

Bíllinn er skemmtilega búinn, og ber þá helst að nefna innréttinguna, lúgurnar, gardínurnar! og ógleymdum toppgrindarbogunum, sem ég fæ mig ekki til að taka af :lol: 8)

Það er slatti af smáatriðum að bílnum sem ég mun dunda mér við bara, liggur ekkert á með nein þeirra, nema öxulhosuna sem er farin, ef einhver liggur á ónotaðri innri hosu að framan í svona bíl má sá hinn sami láta mig vita.

Það sem liggur helst fyrir er:
hækkann að aftan 8) og mögulega setja undir hann dálítið hærri dekk í leiðinni 8)
Finna tengdamömmuboxi á bogana 8)
Finna mér dráttarbeisli undir hann 8) (liggur reyndar ekki á)

Í lokaorðum:
Það er fáránlega gott að keyra þennan bíl!!!!! Svo gott í raun að ég sakna E39 530i eiginlega ekkert :? Nema þegar ég gef í :lol:
Fyllti hann, keyrði 99,2km og fyllti aftur á sömu dælu, 15,14ltr fóru á hann, ekki hægt að kvarta yfir því með tæp 1800kg ssk og 4wd í huga, ég er hins vegar nokkuð viss um að þessi bíll muni sýna mér 17-19 ltr þegar fram líða stundir :|

Svo fann ég 500kall, -->góð saga!

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sat 19. May 2012 22:13
by Axel Jóhann
Til lukku, þetta er fínn bíll! E34 Touring eru bestir. :thup: :)

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sat 19. May 2012 22:19
by IvanAnders
Þú ert með hvítt leður með armrests er það ekki Axel Jóhann?
Er það standard/comfort eða slíkt? Áttu myndir innan úr þínum?

Nevermind, fann mynd innan úr þínum :thup:
mind Ertu með rafmagn í sætum A.J.?

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sat 19. May 2012 22:36
by Axel Jóhann
Heyrdu ju, er med comfort hvitt, med armrests a ekki myndir i augnablikinu. :)

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sat 19. May 2012 22:36
by Axel Jóhann
neibb manual.

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sun 20. May 2012 00:39
by Bandit79
Æðislegir bílar 8)

Til lukku með þennann :thup:

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sun 20. May 2012 00:40
by Aron Andrew
Til hamingju með nýja bílinn!

Þetta er góður bíll, hefur aldrei svikið mig.

Ég er búinn að stunda miklar vistakstursæfingar nýlega og get klárlega kennt þér að halda honum á milli 13 og 14 lítrum í eyðslu :wink:

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Sun 20. May 2012 02:00
by Nonni325
Til hamingju með þennan, er að fíla þessa innréttingu :drool:

Re: BMW 5 línan, ssk steisjon, M50, vanos, 4wd bara nefndu þ

PostPosted: Wed 30. May 2012 22:10
by IvanAnders
"Going places-update #1"

Image

Image

8)

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Wed 30. May 2012 22:49
by maxel
Hvaða takmarki ertu að sækjast eftir með þennan bíl?

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Wed 30. May 2012 23:35
by Axel Jóhann
maxel wrote:Hvaða takmarki ertu að sækjast eftir með þennan bíl?



þægilegann fjölskyldubíl? 8)

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Wed 30. May 2012 23:41
by IvanAnders
maxel wrote:Hvaða takmarki ertu að sækjast eftir með þennan bíl?

:hmm:

Jaa...
Þetta er sjálfskipt, fjórhjóladrifið, steisjon og hátt í 1800kg...
Ég er augljóslega ekki að fara að drifta eða pikka upp smápíkur, það er nokkuð ljóst. :lol:

Þetta er bara fjölskyldubíllinn í ár, og það stendur til að mynda til að ferðast á honum. :)

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Wed 30. May 2012 23:50
by -Hjalti-
IvanAnders wrote:
maxel wrote:Hvaða takmarki ertu að sækjast eftir með þennan bíl?

:hmm:

Jaa...
Þetta er sjálfskipt, fjórhjóladrifið, steisjon og hátt í 1800kg...
Ég er augljóslega ekki að fara að drifta eða pikka upp smápíkur, það er nokkuð ljóst. :lol:

Þetta er bara fjölskyldubíllinn í ár, og það stendur til að mynda til að ferðast á honum. :)


Djöfull líst mér vel á þetta !
Mér finnst það hálfgerð fötlun að hafa ekki aðgang af bíl sem hægt er að keyra út fyrir hringveginn.

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Wed 30. May 2012 23:59
by IvanAnders
Já, Þetta er ekkert rosalega flókin formúla:

#Ég er með BMW dellu.
#Ég er með 2 börn.
#Ég á ekki mikla peninga
#Konan þarf ssk og að stoppa ekki í vetrarfærðinni.
#Ég elska að ferðast innanlands, og hef t.d. gaman að því að kíkja í bústað á veturna.

= E34 525ix Touring með tengdamömmuboxi til að geta tekið barnavagnin með, og annan farangur fyrir 4!! 8)

Re: E34 525ix -Going places update #1- Davíð Már special

PostPosted: Thu 31. May 2012 01:01
by maxel
ay, finnst tetta box ekki flott en function over form :) e34 eru æðislegir bilar, endalaust thaegilegir og gott ad eiga vid ta ad flestu leyti
en eg spurði aðalega ad tessu tvi eg var ekki viss um hvort tu vaerir ad paela i notagildi eda thu vaerir adalhipsterinn a skerinu