bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E39 540iA '98, "The Beater"
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=56418
Page 1 of 1

Author:  Zed III [ Fri 04. May 2012 21:43 ]
Post subject:  BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Ég keypti mér þennan sem winterbeater eftir að ég seldi E46. Bíllin var í slöppu ástandi, brotnir stuðarar, vantaði hurðahandfang á bílstjórahurðina, var reykt í honum, ógeðslegar felgur á ónýtum dekkjum, vatnsleki, bilað abs, bilaður bremsusensor og dælduð topplúga svo ég nefni bara nokkra kostina við bílinn.

Það sem var gert fyrir þessa myndatöku var nýtt hurðahandfang, sprautun á stuðurum og svört nýru.

Image

Image

Image

Image

Og þessi mynd var tekinn eftir að það var splæsti í OEM m5 felgur.
Image

Dam, hvað það munar um felgur.

Plönin eru:

Nýar númeraplötur sem ég er búinn að kaupa
Kannski m-tech stýri sem ég á til
Kannski M5 bremsur sem ég á til
Glertopplúga sem ég fæ hjá Ellapjakk
Kannski M5 fjöðrun sem ég á
Kannski m-tech framstuðari sem ég á en þarf að gera við
Ný fram og afturljós, eitthvað smekklegt aftermarket sem kostar ekki hálft nýra.
Lip spoiler sem er búið að panta

og örugglega einhver hellingur í viðbót.

Author:  Dagurrafn [ Fri 04. May 2012 22:20 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Allls ekki slæmt plön, hlakka til að sjá hann tilbúinn :thup:

Author:  Nonni325 [ Fri 04. May 2012 23:59 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Flottur hjá þér, og þessar felgur gerðu helling :thup:

Author:  Zed III [ Wed 09. May 2012 14:21 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Fyrsta moddið komið,

Glertopplúga - tékk.

Author:  Zed III [ Fri 15. Jun 2012 10:30 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Fyrsta moddið, glertopplúga:

Image

Annað moddið, hvít afturljós sem reyndar fara aftur af bílnum:

Image

Þriðja moddið, nýjar númeraplötur:

Image

Author:  Zed III [ Fri 15. Jun 2012 10:40 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

og svo stóra moddið, DIY svartur toppur:

Þetta er efnið, ég þurfti 5 brúsa (4k stykkið). Verslað hjá Litum og föndri:
http://ja.is/u/handlist-heildverslun-litir-og-fondur/

Image

Fyrir:
Image

Notaði svamp til að bera efnið á:
Image

Hellt yfir og svampurinn notaður til að dreyfa úr þessu:
Image

Þegar þetta er þurrt er farið yfir með hitabyssu til að liturinn taki sig betur.

Eftir:
Image

Sprautaði plastið með plastspreyi frá Málningarvörum. Má sprauta beint á plastið án grunns.
Image

Þessi var aðeins trikkí þar sem glæra plastið fer yfir það sem þarf að lita, en því var bjargað með límbandi:
Image

Og svo sprautað:
Image

Útkoman á ljósinu:

Image

Og svo útkoman á toppinum:

Image

Image

Image

Image

Mesta painið er að mála toppin sjálfan og sólskyggnin. Í þeim er svampur sem drekkur mjög mikinn lit í sig. Ég var reyndar svo heppinn að finna svört sólskyggni sem ég skellti í en þau eru lang leiðinlegasti hlutinn sem þarf að lita (sambland af fatalit og plasti sem þarf að mála og svo drekkur þetta endalaust í sig af lit).

All inn er ég mjög sáttur við útkomuna.

Author:  bimmer [ Fri 15. Jun 2012 10:46 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Lookar flott miðað við þessar myndir.

Author:  Zed III [ Fri 15. Jun 2012 10:56 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

Miðað við hvað þetta var unpleasant að sitja í þessu þá er þetta þvílíkur munur.

Þetta var skítugt, vond lykt eftir reykingar og lookaði auðvitað ekki vel miðað við svart. Ekki lengur þó.

Author:  Dagurrafn [ Fri 15. Jun 2012 11:45 ]
Post subject:  Re: BMW E39 540iA '98, "The Beater"

þessi er á góðri uppleið í þinni eigu, haltu áfram að gera þennan flottan :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/