bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 10. May 2025 03:13

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 70 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
PostPosted: Sun 13. Jan 2013 04:00 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Jæja það hlaut að koma að því að maður gerði loksins þráð um þennan bíl sem ég flutti inn í lok Júní 2012.

En eftir að hafa tekið þá skyndiákvörðun um að fara útí M60 swap í E30 blæjunni minni þá ákvað ég að flytja inn annaðhvort E34 530i V8 eða E32 730i V8 til þess að verða mér út um gírkassa, brakebooster og nokkra aðra hluti ásamt því að læra og hafa gaman að því að flytja inn bíl til landsins en ástæðan fyrir því að ég ákvað að leita mér að þessum tveimur BMW tegundum er sú að þeir eru ódýrir í evrópunni og geta kostað álíka mikið og aðeins gírkassinn einn og sér.

Fyrir valinu varð þessi fjarskafallegi E34 530i Touring árg. 1994 sem er tvílitur þar sem að fyrri eigandi keyrði á grjót að mér skilst og setti hann því grænan framenda á hann en bíllinn var einmitt svona grænn áður en hann var málaður hvítur.
M60B30 - Ekinn 211.000km.
Beinskiptur fimm gíra
Litur: Hvítur, grænn og svartur
Svart leður
Topplúga
Tvískptur afturhleri; hægt að opna gler eitt og sér
AC
Aftermarket loftpúðastýri
Læst drif
15" BMW álfelgur sem eru lýta út eins og nýjar
Bíllinn er lækkaður en óvitað hversu mikið
LAD í afturfjöðrun
Rafmagn í öllum rúðum
OEM fjarstýrðar samlæsingar


Við, Skúli og Danni ásamt Gunna flugum að norðan frá Bíladögum á sunnudeginum og rétt höfðum tíma til þess að koma við heima, skipta um föt og hendast svo uppá flugvöll til þess að ná fluginu til London en á flugvellinum borðuðum við morgunmatinn með miklu hraði þar sem að það var byrjað að hleypa um borð í vélina þegar við loksins komumst í það að borða. Þegar út var komið gistum við hjá Gunna í um viku og fórum meðal annars í útskriftina hans úr Oxford Brooks University :thup:

Mynd af Reynisson brothers í útskriftinn hans Gunnars í geggjuðu veðri(undirritaður var að berjast við hitan :lol: )
Image

Skúli keypti sér líka bíl og var það E36 328ia Touring og hér er mynd frá því að við sóttum hann:
Image

Svo var kvatt Gunna og keyrt í einum rykk frá Cottenham í Bretlandi til Bitterfeld-Wolfen í Austurhluta Þýskalands að sækja Touringinn minn.

Í lestinni á leiðinni til Frakklands frá U.K:
Image

Eftir að hafa keyrt í gegnum Frakkland, Belgíu og Holland vorum við loksins komnir til Þýskalands og menn að sjálfsögðu MEGA sáttir með það! En hér vorum við að tanka á bensínstöð í DE um nóttina:
Image

Þegar við loksins komum á áfangastað var að líða undir morgun og við alveg búnir á því og gistum því á fyrsta hótelinu sem við sáum sem var Hotel Ambassador en við náðum að hvíla okkur þar í alveg heila fjóra tíma og vöknuðum svo í alveg brakandi blíðu, sól og hita 8)
Image

Síminn var rifinn upp og seljandinn ræstur út til að afhenda bílinn en hér var verið að ræða málin og færa dót úr E36 yfir í E34:
Image

Sem betur fer virkaði AC'ið alveg glimrandi vel því ég var að farast úr hita en eftir að bíllinn hafði staðið í ár var skellt á hann númeraplötum og beint út á Autobahn og stefnan tekin í suðvestur að ná í eitt stykki leður innréttingu í bílinn sem var hent í hann á mettíma og stefnan loks tekin norður til Billund flugvallar í Danmörku en Danni átti flug heim til Íslands morguninn eftir. Bíllinn stóð sig með prýði og M60B30 fór sjaldan niður fyrir 3.500rpm. en keyrt var á rúmlega 140km/h. mest allan tíman upp til DK. og var eyðslan uppá 10,8l/100km:
Image

Á ferð um Norður Þýskaland í rigningunni:
Image

Komnir á flugvöllinn í Billund eldsnemma um morguninn eftir tæplega þúsund kílómetra keyrslu frá Bitterfeld-Werfen alveg grútþreyttir, svangir og já peningalitlir en ég hafði komist að því stuttu áður á bensínstöðvarstoppi í DK. að ég hafði gleymt kortinu á bensínstöð í Þýskalandi mér til mikillar ánægju :bawl: Sem þýddi að ég þurfti að bíða til hádegis eftir því að bankinn opnaði á Íslandi til þess að geta millifært peninginn á hitt kortið mitt en í millitíðinni átt ég ekki squad og lifði á Skúla :lol: :oops:
Image

Tekið bensín í Horsens í Danmörku:
Image

Aðfram komnir af þreytu komum við loksins í kuldan í Hirtshals og þurftum að bíða í sex tíma eftir hótelherbergi en á meðan sváfum við eins og ungabörn í E36. Komnir á hótelið sem var rétt fyrir utan Hirtshals, skellt sér í heita sturtu(síðast farið í sturtu í U.K. :mrgreen: ), opnað einn kaldan rölt á veitingastað fengið sér að borða og svo var farið í koju að ná sér í góðan nætursefn enda þurftum við að vakna eldsnemma daginn eftir til að ná Norrænu.
Image

Við Skúli mættir í röðina í Norrænu:
Image

Komnir um borð í dallinn:
Image

Ekki var mikið hægt að gera um borð annað en að sofa, borða og drekka bjór en hér var Skúli að gæða sér á Færeyískum bjór og danskri pulsu:
Image

Komnir á Klakan og verið að tolla bílana en hér var verið að gegnumlýsa kvikindið:
Image

Loksins komnir úr Tollinum og verið að fylla bílana af bensíni:
Image

Eftir að hafa keyrt heila 79 kílómetra á Íslandi sprakk hjá mér annað afturdekkið uppá Breiðdalsheiði en hér var verið að skipta um bæði afturdekkin hjá mér:
Image

Pósa við Jökulsárlón:
Image

Nokkrum dögum eftir að ég kom heim kom ég að bílnum með olíupoll undir vélinni en þá hafði skítamix fyrri eiganda gefið sig en olíupannan hafði brotnað hjá honum og var haldið saman með sílikoni. Bíllinn stóð því í tvo mánuði vegna aðstöðuleysis og var svo loks skellt inn og uppá búkka þar sem að hann stóð næstu fjóra mánuðina en það var brotist inn í aðstöðuna hjá okkur strákunum og stolið nánast öllum mínum verkfærum ásamt græjunum úr bílnum mínum og það tafði aðeins verkið ásamt því að ég var að sanka að mér varahlutum og nenni í að klára verkið :angel:
Image

Svon leit efri pannan út eftir að ég hafði tekið hana úr en hún hafði brotnað í kringum olíukvarðan:
Image

Neðri pannan var kengbogin og snúinn og búið að sjóða í hana áður en hér er hún við hlið pönnunar sem fór í bílinn en hún var úr 96 árg. af bíl og búið að uppfæra hana, s.s. búið að færa aftöppunargatið á betri stað og styrkja hana:
Image

Gamla brotna panna við hlið pönnnar sem fór í bílinn en hún kom einnig úr sama bíl og neðri pannan og líka búið að uppfæra hana en búið er að styrkja hana og það stendur ekki lengur rör fyrir kvarðan niður úr gatinu og alla leið niður í neðri pönnu þannig að ef neðri pannan fær högg á sig neðanfrá þá er hún ekki að fara að brjóta efri pönnuna í kringum kvarðagatið:
Image

Olíupannan tilbúin að fara í bílinn ásamt nýju olíupönnupakkningunni:
Image

Til þess að ná efri pönnunni undan bílnum þurfti að taka neðri olíupönnuna, olíudæluna og slaka mótorbitanum niður:
Image

Image

Startarinn var á síðasta snúning og komið í hann ljótt hljóð þannig að honum var hent í klössun og er hann nú sem nýr:
Image

Eftir hellings vinnu þá er bíllinn loksins kominn í gagnið en ég ákvað að rífa hann ekki strax þar sem að ég ætla að nota hann sem vetrarbarning í vetur á meðan Sjöan er í smá aðhaldi og leika mér á honum næsta sumar enda eðal trampdrifter hér á ferð :thup:

Over & out.

EDIT: Ég gleymdi að taka það fram að þegar ég púslaði dótinu saman þá setti ég nýja OEM olíudælubolta og nýja viftureim framan á vélina þar sem að sú sem að var á henni var orðin veeel þreytt.

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Last edited by ömmudriver on Sun 22. Sep 2013 03:43, edited 7 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 13. Jan 2013 10:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 04. Feb 2004 16:29
Posts: 2466
Location: Playboy Mansion, Hafnarfjörður
þú endar á að sprauta á þessu framendann og hætta við að rífa hann alveg... :lol:

Gaman að þessu..

_________________
Rúnar P
662 5272

Druslusafnið núna:
BMW e46
Suzuki Baleno
Honda CRF250R
Pocket Bike og fleira misgáfulegt dót...


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 13. Jan 2013 12:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Jebb 530 er alveg fínasta millibil 525-540

Átti svona bíl 4d.. og þetta var ALLT fyrir peningin..E34 540 var þá ((2002)) MIKLU dýrari

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 13. Jan 2013 18:33 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Uss Rúnar ekki segja þetta :lol:

En það eru nú samt mjög takmarkaðar líkur á því að ég haldi honum heilum þar sem að boddðýið á honum er ekki upp á sitt besta og ég þarf að öllum líkendum að nota varahluti úr vélinni á honum í M60B40 vélina mína.

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 16. Jan 2013 19:33 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Ahhh djöfull elska ég að vera laus við villuboðaflóðið úr mælaborðinu :D

Þegar ég keypti bílinn þá virkuðu bara nokkur ljós á honum en ég skipti um LKM þegar ég kom til landsins og fékk öll ljósin í lag en fékk þess í stað flóð af villuboðum um að hin og þessi pera væri sprungin og að bremsuljósin væri alveg óvirk sem er verulega þreytandi. Í dag skipti ég svo aftur um LKM í honum og setti í hann LKM-L úr E32 og VOILA!! ljósin virka og engin villuboð.

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 16. Jan 2013 21:05 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Posts: 10993
Location: Keflavík, BMW hverfinu
Alveg magnað hvað LKMið getur búið til mikil leiðindi. Reyndar GM (General Module) líka,,,,,

En þótt það séu 6 mánuði síðan og ég margoft búinn að segja það við þig, þá er víst eftir að óska þér til hamingju í þessum þræði.

Til lukku með Duplicolor! :alien:


Til gamans má geta að þangað til í júní 2012 var bara einn E34 V8 touring á landinu.
Núna eru þeir 3 :thup:

_________________
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 16. Jan 2013 21:08 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
530 touring E34.... sá eini á landinu







:thup:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 17. Jan 2013 09:31 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Nú er þessi kominn með fjarstýrðar samlæsingar en það fylgdi með honum fjarstýring og þurfti bara að henda nýjum batteríum í hana :D

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Last edited by ömmudriver on Sun 21. Apr 2013 20:07, edited 1 time in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 17. Jan 2013 10:12 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Tue 11. May 2010 18:35
Posts: 524
E34 530 :thup:
Touring :thup:
V8 :thup:
BEINSKIPTUR :thup: :thup:

mjog flottur bill hja ter ;)

_________________
Í notkun:
03' BMW E39 ///M5 - 19" BBS LM
04' BMW E65 730D ALPINA
03' BMW E65 740D
04' RANGE ROVER HSE
01' BMW E46 318d TOURING
99' SEAT Cordoba 1.9 TDi
Seldir:
- 214 bílar seldir


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Jan 2013 04:48 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Ég kom við hjá þeim í Neyðarþjónustunni í dag og lét þá skera út lykilinn sem fygldi með bílnum en það fylgdi með honum Ebay fjarastýring með flip out lykli eins og VW eru t.d. með en hann var óskorinn, skurðurinn kostaði 4.500kr.

Image


Svo verslaði ég nýja Mann olíusíu af Automatic á Smiðjuveginum og kostaði hún 3.3xx kr. sem er það ódýrasta sem ég fann miðað við gæði en það var hægt að fá hjá þeim síu frá Pólskum framleiðanda fyrir um þúsund krónur minna. Sían kostar 4.7xx kr. hjá BL ehf. og N1 selur Fram síur sem kosta tæpar sex þúsund krónur. Ástæðan fyrir því að ég skipti um síu var sú að á meðan vélin stóð pönnulaus þá var meðal annars sagað timbur inni þar sem bíllinn stóð og Ivan Anders og Axel Jóhann mæla gegn Fram síum þar sem að þær eru víst of þéttar hafa verið að valda því að vélar erfiði við að halda smurþrýstingi en ég var einmitt með Fram síu frá N1 og vildi ekki vera að taka neinn séns.

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 22. Jan 2013 23:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
og reddaðist vandamálið? :)

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 23. Jan 2013 08:03 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Axel Jóhann wrote:
og reddaðist vandamálið? :)


Olíuþrýstings vandamálið?

Ef svo er þá var ég búinn að redda því en plastpinninn í botninum á olíusíuhúsinu sem á að ganga niður þegar sían er sett á sinn stað var brotinn og setti ég 6mm. stálbolta í hans stað :)

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 21. Apr 2013 20:24 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Ég lá undir þessum búðing í nánast alla nótt að basla við það að skipta um mótorpúða en þeir voru báðir rifnir í tvennt sem í bílnum voru. Ég átti til alveg heilan hægri mótorpúða úr KM-911 og keypti nýjan vinstri púða frá Pelican parts en til þess að komast að vinstri púðanum þá þurfti ég að taka vökvastýrisdæluna, alternatorinn og olíusíuhúsið frá vélinni ásamt því að taka bremsuvökvaforðabúrið til hliðar og nota svo tvær langar framlengingar og tvo liði til þess að losa rónna ofan á púðanum :alien:
Hægra megin var barnaleikur að skipta um púðan miðað við vinstra megin en ég þurfti einungis að taka loftsíuboxið frá til að komast að honum hehe.

Núna get ég svo loksins botnstaðið bílinn í fyrsta og öðrum gír án þess að vélin fari á ferðalag í vélarrúminu en ég hef einmitt ekki gert það í um þrjá mánuði til þess að forðast það að brjóta mótorarm.

Svo skipti ég um loftsíu og varð MANN sía fyrir valinu sem var framleidd í Mexíkó annað en MANN sían sem var í bílnum en hún var framleidd í Þýskalandi og alveg smekkfull af ryki og drullu. Og síðast en ekki síst þá var skipt um gúmmí á vinstra þurrkublaði :mrgreen:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 21. Apr 2013 21:06 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Posts: 2837
Location: Reykjavík
ömmudriver wrote:
Ég lá undir þessum búðing í nánast alla nótt að basla við það að skipta um mótorpúða en þeir voru báðir rifnir í tvennt sem í bílnum voru. Ég átti til alveg heilan hægri mótorpúða úr KM-911 og keypti nýjan vinstri púða frá Pelican parts en til þess að komast að vinstri púðanum þá þurfti ég að taka vökvastýrisdæluna, alternatorinn og olíusíuhúsið frá vélinni ásamt því að taka bremsuvökvaforðabúrið til hliðar og nota svo tvær langar framlengingar og tvo liði til þess að losa rónna ofan á púðanum :alien:
Hægra megin var barnaleikur að skipta um púðan miðað við vinstra megin en ég þurfti einungis að taka loftsíuboxið frá til að komast að honum hehe.

Núna get ég svo loksins botnstaðið bílinn í fyrsta og öðrum gír án þess að vélin fari á ferðalag í vélarrúminu en ég hef einmitt ekki gert það í um þrjá mánuði til þess að forðast það að brjóta mótorarm.

Svo skipti ég um loftsíu og varð MANN sía fyrir valinu sem var framleidd í Mexíkó annað en MANN sían sem var í bílnum en hún var framleidd í Þýskalandi og alveg smekkfull af ryki og drullu. Og síðast en ekki síst þá var skipt um gúmmí á vinstra þurrkublaði :mrgreen:


:shock: :shock: What???? Ég skipti um báða hjá mér í 740i og eina sem ég þurfti að gera var að færa bremsuforðabúrið til hliðar og púðinn tekinn úr neðan frá og ekkert svo svakalega mikið vesen, bara smá möndl svona

_________________
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sun 21. Apr 2013 21:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
sh4rk wrote:
ömmudriver wrote:
Ég lá undir þessum búðing í nánast alla nótt að basla við það að skipta um mótorpúða :


:shock: :shock: What???? Ég skipti um báða hjá mér í 740i ekkert svo svakalega mikið vesen, bara smá möndl svona




:biggrin: :biggrin: :biggrin: :biggrin: :biggrin:

Image

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 70 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group