Page 1 of 3

BMW E46 320IA Shadowline 2003 [18" felgur]

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 00:34
by GunniClaessen
Sælir félagar.

Þá er maður búinn að festa kaup á fyrsta Bimmanum sínum.
Hef haldið mér aðallega í Benzunum hingað til, þá sérstaklega í þeim eldri,
en ákvað að slá til þegar ég sá þennan fallega E46. Búinn að fylgjast með
kraftinum lengi en núna kýldi maður loksins á það.

BMW E46 320IA Shadowline 2003.

Leðurinnrétting.
Topplúga.
Aðgerðarstýri.
Aksturstölva.
Cruise Control.
Digital Miðstöð.
Dökk BMW merki.
Filmur.
Lip á skotti.
16" álfelgur.
Sjálfskiptur.
Spólvörn.
Shadowline (al-surtaður).

og það sem mér fannst heillandi að honum hefur verið viðhaldið af TB minnir mig
og hefur aldrei fengið athugasemd í skoðun. Hann er þrátt fyrir það nýdottinn
í 190þúskm en maður finnur ekki fyrir því í akstri. Ég er alveg Meeega sáttur.

Plön:

[X] Xenon.
[X] Mössun og djúphreinsun.
[ ] Efri Spoiler og Shark tail.
[X] 17"-18" felgur.
[ ] Lækkun.
[ ] Angel Eyes með LED.
[ ] M-Tech framstuðari.


Er mjög sáttur með eyðsluna en hann er alveg nokkuð snarpur líka,
ekkert eins og gamli 320CE benzinn en samt góður. Markmiðið er bara
að gera hann að lúkker og krúser og keyra hann vel og mikið.

Nokkrar myndir sem verða að duga í bili annars endilega deilið skoðunum ykkar.

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Kv. Gunnar Smári.

Re: BMW E46 320 Shadowline 2003

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 00:38
by EggertD
glæsilegur, þetta mun vera 320iA þar sem hann er sjalfskiptur

Re: BMW E46 320 Shadowline 2003

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 00:42
by GunniClaessen
já auðvitað, gleymdi því.

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 10:46
by Karlsson
Mega flottur bíll 8)

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Wed 13. Jul 2011 16:29
by Hreiðar
Virkilega smekklegur! :)

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Thu 14. Jul 2011 00:06
by GunniClaessen
Þakka ykkur :)

Vitiði hvernig það gæti orðið að redda sér M-tech framstuðara?

Ps. Búinn að kaupa Xenon, skelli því í á morgun.

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Sat 16. Jul 2011 03:29
by ppp
Ég er einmitt að fara í það að kaupa mér stuðara líka. Þú hefur kannski áhuga á að byrja group buy með mér?

Ég er búinn að skoða þetta þónokkuð og sýnist þeir á khoalty.com vera lang, lang ódýrastir. Ég er bara að bíða eftir afturstuðara líka hjá þeim, en hann er víst að detta inn hjá þeim. Þeir sitja í tolli eins og er.

Alveg hlægilegt verð hjá þeim. $175 fyrir framstuðarann og eitthvað aðeins meira fyrir aftur. En svo er náttla sendingarkostnaðurinn einhver smá slatti, en þar gætum við sparað ef við kaupum saman. Tala nú ekki um ef við fáum fleiri.

http://www.khoalty.com/bmw-e46/exterior ... umper.html

Og hér er þráðurinn þar sem þeir eru að bíða eftir afturstuðaranum: http://forum.e46fanatics.com/showthread ... 193&page=5

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Sun 17. Jul 2011 23:48
by Hreiðar
Ég myndi sleppa "shark tail" og fá mér frekar bara roof spoiler, lítur betur út imo.
http://img526.imageshack.us/img526/5210/photo2gn.jpg

Stal myndinni hérna af kraftinum.

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Mon 18. Jul 2011 00:43
by GunniClaessen
ppp wrote:Ég er einmitt að fara í það að kaupa mér stuðara líka. Þú hefur kannski áhuga á að byrja group buy með mér?

Ég er búinn að skoða þetta þónokkuð og sýnist þeir á khoalty.com vera lang, lang ódýrastir. Ég er bara að bíða eftir afturstuðara líka hjá þeim, en hann er víst að detta inn hjá þeim. Þeir sitja í tolli eins og er.

Alveg hlægilegt verð hjá þeim. $175 fyrir framstuðarann og eitthvað aðeins meira fyrir aftur. En svo er náttla sendingarkostnaðurinn einhver smá slatti, en þar gætum við sparað ef við kaupum saman. Tala nú ekki um ef við fáum fleiri.

http://www.khoalty.com/bmw-e46/exterior ... umper.html

Og hér er þráðurinn þar sem þeir eru að bíða eftir afturstuðaranum: http://forum.e46fanatics.com/showthread ... 193&page=5



Já, ég er til í það ef verðið er í lagi!
Hvað er afturstuðarinn að kosta þig heim kominn?


Hreiðar, held ég láti sharkið bíða, er að fýla þetta look eins og á myndinni þinni.

Annars er Xenon 8000k komið í og virkar eins og vera ber. Plastið á framljósunum er þó orðið ansi matt og ég er búinn að slípa með 1800 og 2000 sandpappír og massa en mér fannst það ekki koma alveg nógu vel út. Er ekki hægt að kaupa svona plast eða þarf að splæsa í allt ljósið?

kv.

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Tue 19. Jul 2011 07:09
by Sarot
Obbobbob, hvað er að sjá hér. Fannstu ekki fleiri CE benza til að kaupa? :wink: :mrgreen:

Velkominn (officially) :thup:

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 23:20
by GunniClaessen
Sarot wrote:Obbobbob, hvað er að sjá hér. Fannstu ekki fleiri CE benza til að kaupa? :wink: :mrgreen:

Velkominn (officially) :thup:


Hahah, neei ég ákvað að breyta aðeins til.
Enda örugglega aftur á svoleiðis aftur seinna en um að gera að prófa sem flest ;)

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 23:34
by GunniClaessen
Jæja, smá update.
Brasaðist aðeins í bílnum í dag.

Slípaði framljósaplastið og massaði (var orðið veeel matt).
Litaði stefniljósaperurnar silfurlitaðar.
Xenon 8000k HID komið í.
Massaði allan bílinn og bónaði.
Setti 18" Style 95 (E65 felgur) undir að aftan til að máta.

Offsettið á þeim er ekki alveg fyrir þennan bíl eins og myndirnar sýna:

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Síðan Xenonið 8000k:

Image
Image


Finnst mönnum felgurnar standa of utarlega?
Aðrar felgur eða bara skella skella mjórri dekkjum á felgurnar?

Langar að gera felgurnar upp ef ég ætla að eiga þær.
Ef þetta er of ansalegt þá ætla ég bara að losa mig við þær og fá eitthvað annað.
Lækkun kemur með tímanum!

Discuss !


Kv.

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 23:40
by JOGA
Þessar felgur væru mjög flottar með nettari dekkjum. T.d. 215/40 eða álíka. Hvað er þetta breytt annars?
En low offset felgur eins og þessar virka eiginlega bara með góðri lækkun.

Ótrúlegt hvað það gjörbreytti mínum t.d.

P.s. gætir þurft að rúlla brettin til að koma þessu fyrir...

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003 [Felgur, Xenon og spurning

PostPosted: Thu 21. Jul 2011 23:43
by GunniClaessen
Já, var að pæla í 225/40R18 og rúlla.
Spurning hvort maður ætti þá bara að fara í aðrar felgur?

Re: BMW E46 320IA Shadowline 2003 [Felgur, Xenon og spurning

PostPosted: Fri 22. Jul 2011 00:10
by Vlad
Ef þú ákveður að losa þig við þær þá væri vel þegið ef ég fengi að máta þetta undir e34... :)

Annars er bíllinn þinn geðveikur.