bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA +dráttarkrókur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=51406
Page 1 of 4

Author:  srr [ Thu 02. Jun 2011 17:53 ]
Post subject:  BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA +dráttarkrókur

Jæja, margir hafa verið að spyrja mig út í þetta sjöuverkefni mitt, svo ég ætla láta
verða af því að búa til þráð um hann.

Ég sótti semsagt þennan bíl austur fyrir fjall á Hvolsvöll, nánar tiltekið í Landeyjasveit.

Þessi bíll hafði verið auglýstur hér á kraftinum í einhvern tíma og var ég lengi að ákveða
mig hvort ég ætti að stökkva á enn eitt verkefnið.
Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að demba mér út í þetta og eignast nýlegan bíl :lol:

Bíllinn var með ónýtan mótor og var nánast búið að tæta allt úr honum sem hægt var að tæta.
Svo það þurfti töluverða vinnu til að koma honum heim og saman.
En þegar maður á góða vini,,,,,Daníel (Danni) og Arnar Már (ömmudriver),,,,,ásamt töluverðri þolinmæði, þá er víst allt hægt.

Þetta eru spekkarnir um bílinn:

VIN long WBAGA81030DA15559
Type code GA81
Type 730I (EUR)
Dev. series E32 ()
Line 7
Body type LIM
Steering LL
Door count 4
Engine M30
Cubical capacity 3.00
Power 138
Transmision HECK
Gearbox AUT
Colour ISLANDGRUEN METALLIC (273)
Upholstery SILBER LEDER (0227)
Prod. date 1990-08-27

Ásamt aukahlutalista:
Order options
No. Description
216 SERVOTRONIC
219 SPORT LEATHER STEERING WHEEL
291 BMW LM SCHMIEDERAD/KREUZSPEICH
320 MODEL DESIGNATION, DELETION
401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC
423 FLOOR MATS, VELOUR
428 WARNING TRIANGLE
494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER
510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM
534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING
556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY
562 MAP READING LIGHT
655 BMW BAVARIA C BUSINESS
676 HIFI LOUDSPEAKER SYSTEM
801 GERMANY VERSION

Bíllinn kemur til landsins í Maí 1997, semsagt 7 ára gamall.

Hérna eru myndir eins og hann var í sveitinni áður en við sóttum hann:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image


Tvær frá því við sóttum hann:
Image

Image

Komnir heim í Keflavík:
Image

Image

Image

Image

Og strax nokkrum tímum seinna vorum við búnir að raða innréttingunni saman:
Image

Image

Image


Svo liðu nokkrar vikur þangað til við gátum hafist handa við að skipta um vélina í bílnum.
Ég átti til mótor inn í skúr sem var í lagi, sem ég flutti inn fyrir nokkrum árum frá USA.

Hérna er bíllinn sem mótorinn kom úr:

E24 635Csi Usa módel, framleiddur í janúar 1988, serial á bílnum: 3267084
Image

Myndir frá því við rifum mótorinn upp úr sjöunni:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

M30B30 komin á stand til að rífa af henni það sem átti að færa yfir á M30B35 mótorinn.
Image

Undir á olíupönnunni var skráð símanúmer hjá konu út á landi,,,,,af hverju veit enginn :lol:
Image

Leit skemmtilega vel út heddið eftir að hafa staðið opið lengi úti.
Image

Dauðadómur á m30b30 heddinu,,,,bláu línurnar sýna sprungur.
Image


Svo var hafist handa við að breyta M30B35 mótornum úr sexunni fyrir E32 bílinn.
Það þurfti að færa á milli olíudælu, olíupönnu, mótorarma, olíusíuhús, alternator, rafkerfi o.fl. o.fl.


Hér er donor mótorinn, M30B35 USA spec úr E24.
Image

Danni að græja og gera.
Image

Image

Image

E23/E24/E28 olíudælan sem þurfti að fara af.
Image

Image

Mótorinn tilbúinn.
Image

Image

Image

Image

Marriage lokið.
Image

Image

Image

Bingó,,,,,kominn á sinn stað.
Image

Image


Til gamans má geta að hérna er hægt að sjá myndband af fyrstu gangsetningu,,,,,
http://www.youtube.com/watch?v=VElb-XYl1rk

Og hér fyrsta skipti sem hann rúllar undir eigin vélarafli,,,,,
http://www.youtube.com/watch?v=LXK8CrAoBg8


Svo tók ég nokkrar myndir eftir að hann var kominn heim til mín,,,,og á númer.
Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Svo eftir fyrstu gangsetningu tókum við eftir því að vatnsdælan lak, þannig að núna er
komin í hann ný vatnsdæla.
Bíllinn þarf smá ást í viðbót og svo verður hann 100%,,,,,,en það er ótrúlega
mikil vinna, blóð, sviti og tár búið að fara í þetta verkefni á siðustu vikum :alien:

Author:  Benzari [ Thu 02. Jun 2011 18:23 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Góð björgun. :D

Author:  Stefan325i [ Thu 02. Jun 2011 18:28 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Flott hjá þér skúli, alveg ótrúlegt að þetta sé sami bíllinn miða við fyrstu myndirnar.

Author:  maggib [ Thu 02. Jun 2011 18:45 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Stefan325i wrote:
Flott hjá þér skúli, alveg ótrúlegt að þetta sé sami bíllinn miða við fyrstu myndirnar.


akkúrat það sem ég hugsaði!

sá þennan einmitt um daginn og þetta er eins og svart og hvítt miðað við fyrstu myndirnar! :thup:

Author:  ömmudriver [ Thu 02. Jun 2011 19:24 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Loksins kominn þráður um tækið og enn annar E32 þráðurinn :cheers:


Já þetta er búið að vera stórskemmtilegt verkefni og sé ég ekki eftir neinum tíma sem ég hef eytt í þetta verkefni :thup:

Við þurfum svo að skella bóni á sjöuna við tækifæri.

Author:  Danni [ Thu 02. Jun 2011 20:30 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Þetta er búið að vera mikið bras að koma þessum í nothæft stand aftur en það er svo sannarlega búið að vera þess virði. Búið að vera mjög gamant að taka þátt í þessu verkefni með þér ;)

Author:  Einarsss [ Thu 02. Jun 2011 21:39 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

glæsilegt 8) þið hafið ekki spáð í að mála blokkina og þrífa vélarsalinn á meðan þið voruð að þessu?

Author:  srr [ Thu 02. Jun 2011 21:40 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Einarsss wrote:
glæsilegt 8) þið hafið ekki spáð í að mála blokkina og þrífa vélarsalinn á meðan þið voruð að þessu?

Tími var smá vandamál.

Author:  elli [ Thu 02. Jun 2011 22:38 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

þetta er þrusu flott hjá þér drengur!

Author:  Axel Jóhann [ Thu 02. Jun 2011 23:40 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Hvernig var það skúli, varst þú með frammljósin mín? :mrgreen:

Author:  srr [ Fri 03. Jun 2011 02:34 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Axel Jóhann wrote:
Hvernig var það skúli, varst þú með frammljósin mín? :mrgreen:

Nei
Ég fékk afturljósin.

Author:  srr [ Fri 10. Jun 2011 14:28 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Jæja,,,, Skoðun 12 komin á drekann.

Það var fundið að,,,,

1. Vantaði felgubolta (það vantaði 1 í hverja felgu því ég hafði ákveðið að setja EKKI aftur þjófaboltana í,,,, á bara eftir að skella oem í)
2. Rúðuþurrka bílstjóramegin slöpp (Blaðið sjálft lélegt)
3. Ballanstangarendi brotinn h/m aftan
4. Handbremsa döpur hægra h/m

Þessu verður öllu kippt í liðinn innan skamms,,,,,,er núna að fara jómfrúarferðina á bílnum utan stórhöfuðborgarsvæðisins.
Nánar tiltekið í ferðalag með alla fjölskylduna á Ólafsvík :thup:
Verður gaman að sjá hvernig er að krúsa um á þessu og hvernig hann stendur sig á leiðinni.

Ég er að verða hrifnari og hrifnari af E32 með hverjum hlutnum sem hefur verið lagað í þessum,,,,,og vá hvað þurfti að gera mikið fyrir þennan bíl :shock:

En,,,,hard work hjá mér, Danna og Arnari Má,,,,er búið að skila sér, sbr þessa mynd :
Image

Author:  Danni [ Fri 10. Jun 2011 14:34 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Bara ánægður með þetta!

Author:  tolliii [ Fri 10. Jun 2011 14:45 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Þvílíkur munur á þessum, vel gert :D

Author:  ömmudriver [ Fri 10. Jun 2011 15:02 ]
Post subject:  Re: BMW E32 730iA 1990 -> nú 735iA

Þetta er bara WIN WIN dæmi og gaman að sjá aðra sjöu rúlla um göturnar :thup:

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/