bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E36 328i Touring https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=50068 |
Page 1 of 9 |
Author: | gunnar [ Thu 17. Mar 2011 23:16 ] |
Post subject: | BMW E36 328i Touring |
Þá er maður kominn á alvöru fjölskylduvagn. Það mátti svo sem alveg við því líka þar sem það fjölgaði í familíunni í desember þannig mig langaði orðið mikið í góðan bíl með stóru skotti. Ég keypti þennan bíl af honum JOGA á spjallinu. Ég hafði reynt að eignast þennan bíl nokkrum sinnum áður í gegnum árin en aldrei tekist. En þetta er sem sagt E36 328i Touring árgerð 1995. Bíllinn er sjálfskiptur og með ljósa leðurinnréttingu. Fæ að stela aukahlutalistanum úr þræðinum hjá honum JOGA Quote: 0037 - Finn ekkert um þetta. Líklegast leðurinnréttingin í bílnum (ljós) 0209 - 25% Limited Slip Differential 0302 - Theft Alarm with Remote Control 0320 - Script Name Plate 0411 - Electric Window Regulator Front/Rear 0423 - Velour Floor Mats 0428 - Warning Triangle/First Aid Kit 0438 - Precious (real) Wood Equipment 0441 - Smoker's Package 0498 - Mechanical Rear Headrest 0534 - Automatic Air Conditioning 0651 - Radio, BMW Reverse RDS Bíllinn er sem sagt ágætlega búinn. Mesti kostur hans er þó án efa læsta drifið sem kemur sér afar vel í snjónum. Búinn að keyra bílinn í færðinni núna grimmt og þetta er alveg að virka sem skyldi ![]() ![]() Bíllinn er þó ekki laus við nokkra vel valda galla og hef ég verið að vinna í þeim undanfarna daga. Helsta vandamálið var tengt tjóni sem bíllinn lenti í fyrir átta árum síðan. Bíllinn lenti þá í árekstri á bílstjórahliðinni á fremri enda bílsins. Það var skipt um bitann að framan og allt gert mjög vel og engin ummerki um tjón á bílnum. Nema vandamálið er að það var notaður biti úr 1992 árgerð af bíl og er bitinn greinilega örlítið öðruvísi að því leitinu að festingin fyrir ballansstöngina er ekki alveg á sama stað. Þetta gerði það að verkum að það var undið upp á ballansstöngina og sleit hún alltaf endan úr spyrnunni. NonniBras færði þessa festingu fyrir mig og núna er þetta allt orðið eins og þetta á að vera. Nýir endar komnir á stöngina og allir sáttir. Set myndir af ferlinu hér að neðan. Ég lét einnig hreinsa hvarfana undan bílnum og setja túbur í staðinn. Hljóðið breyttist reyndar sáralítið. En vonandi að eyðslan og virknin verði betri fyrir vikið. Læt nokkrar myndir fylgja af bílnum. Þetta eru reyndar svona týpiskar before myndir þar sem bíllinn á eftir að breytast talsvert í útliti. Bjahja felgurnar eru vetrarsett og munu E90 felgurnar sem ég á fara undir hann fljótlega. Einnig verða sett DEPO projector ljós sem fylgdu með honum nema botninn í þeim málaður svartur. ![]() Myndir frá Nonnabras er hann færði festinguna fyrir mig. ![]() Festingin bílstjóramegin, ef lengdin á milli mótorbita og festingar er skoðuð beggja megin þá sést klárlega lengdarmismunurinn. ![]() Farþegamegin ![]() ![]() ![]() ![]() Ég kem með svo frekari myndir af bílnum fljótlega. Margt sem þarf að horfa til núna fljótlega. Það er ein pústgrein brotin sem ég þarf að skipta um, vantar nýjan ABS skynjara, bremsuskynjara og sitthvað fleira. Svo verður M50 manifold skellt á þennan og E30 á sama tíma. Þetta verður ansi flott combo til að eiga saman ![]() ![]() ![]() ![]() Team M52B28 ![]() |
Author: | JOGA [ Thu 17. Mar 2011 23:24 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
![]() Elska þennan bíl. Virkilega gaman að sjá hann fara á gott heimili. Ekkert smá fljótur að græja hluti sem ég er búinn að vera að væflast með í óratíma. Innilega til hamingju með vagninn ![]() Vertu svo duglegur að smella inn myndum og update. |
Author: | ingo_GT [ Thu 17. Mar 2011 23:31 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Hef lengi lángað í svona e36 touring, Annars flottur e36 og til hamingju með hann ![]() |
Author: | ömmudriver [ Thu 17. Mar 2011 23:32 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Einn af fáum E36 sem ég væri til í að eiga ![]() ![]() |
Author: | tinni77 [ Thu 17. Mar 2011 23:37 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Klikkað eintak, til hamingju Gunni ![]() |
Author: | kalli* [ Thu 17. Mar 2011 23:39 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Flottur á þessum felgum ![]() ![]() Til hamingju annars með bílinn ![]() |
Author: | rockstone [ Fri 18. Mar 2011 00:22 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
kalli* wrote: Flottur á þessum felgum ![]() ![]() Til hamingju annars með bílinn ![]() x2 og svo m framstuðara, annars flottur ![]() |
Author: | ellipjakkur [ Fri 18. Mar 2011 01:42 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Til hamingju með bílinn,, mér hefur alltaf fundist þessi geggjaður,, plöggaðu myndum af innréttingunni ![]() |
Author: | Vlad [ Fri 18. Mar 2011 01:55 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
kalli* wrote: Flottur á þessum felgum ![]() ![]() Til hamingju annars með bílinn ![]() Held það hafi fylgt style 32 felgur með... eða miðað við myndina hjá JOGA þa er hann á þannig felgum. En annars hinn smekklegasti Touring. |
Author: | JOGA [ Fri 18. Mar 2011 08:44 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Vlad wrote: kalli* wrote: Flottur á þessum felgum ![]() ![]() Til hamingju annars með bílinn ![]() Held það hafi fylgt style 32 felgur með... eða miðað við myndina hjá JOGA þa er hann á þannig felgum. En annars hinn smekklegasti Touring. Ég hélt eftir Style 32. Gunnar á E90 felgur sem hann ætlar að nota á þessum. ![]() Svo fær maður sér eitthvað skemmtilegt í haust eða næsta ári til að plugga felgunum undir. |
Author: | bjahja [ Fri 18. Mar 2011 09:06 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Til hamingju bæði með bílinn og krílið ![]() Djöfull langar mig í þennan bíl ![]() |
Author: | gunnar [ Fri 18. Mar 2011 09:39 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Style 32 var afar flott undir þessum en þar sem ég átti flottar felgur fyrir og Jón Garðar vildi helst halda sínum að þá ákváðum við að fara þá leið. Ég vill ekki setja fleiri myndir af bílnum inn fyrr en ég er búinn að klára þessa hluti sem ég er með á listanum hjá mér. Tek svo flott photoshoot af öllum bílnum. |
Author: | kalli* [ Fri 18. Mar 2011 10:03 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
Hverning e90 felgur eru þetta ![]() |
Author: | gunnar [ Fri 18. Mar 2011 10:05 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
![]() |
Author: | Mazi! [ Fri 18. Mar 2011 10:08 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 328i Touring |
hmm, hvað varð um style 32 ? ![]() |
Page 1 of 9 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |