bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Var að setja Alpinurnar undir- Þetta er s.s 323i E21 '82
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=4979
Page 1 of 1

Author:  Djofullinn [ Sun 14. Mar 2004 19:50 ]
Post subject:  Var að setja Alpinurnar undir- Þetta er s.s 323i E21 '82

Image

Image

Author:  fart [ Sun 14. Mar 2004 19:58 ]
Post subject: 

Djöfull man ég eftir þeim tíma þegar þessar plastgardínur voru "the shit".. þessi bíll minnir mann á gamla og góða tíma.

Pabbi kom einu sinni heim á 323 E21 (þetta hefur sennilega verið árið 1985) og þá var sá bíll nánast nýr. Ég man eftir því hvað ég varð strax hrifin af mælaborðinu í honum og hljóðinu í sexunni.

Author:  fart [ Sun 14. Mar 2004 19:58 ]
Post subject: 

Btw sá bíll var ljósblár sanseraður.

Author:  Djofullinn [ Sun 14. Mar 2004 20:07 ]
Post subject: 

Heheh hom*agardínan mín :D Þetta er bara eighties fýlingur! ;)
Hef reyndar ekki tekið ákvörðun um hvort hún verði þarna áfram eða ekki...

Author:  fart [ Sun 14. Mar 2004 20:16 ]
Post subject: 

ég var að vinna á bílasölu sem polli.. frá svona 1985. Þá var þetta alveg málið, menn fóru í röðum niður í bílanaust eða hvað það hét þá til að versla sér svona fyrir stórfé.

Svo man ég líka eftir þeim tíma þegar þetta datta alveg úr tísku.

Hafðu þetta samt á.

Munið þið eftir þegar alllir voru að setja "strípur" á bílana.

Author:  bebecar [ Sun 14. Mar 2004 21:18 ]
Post subject: 

Gaman að sjá bílinn - en það væri betra að skoða myndirnar ef þær væru aðeins minni.

Þú getur minnkað myndirnar með þessu hér, afskaplega þægilegt (meira að segja ég get notað þetta).

http://www.irfanview.com/main_download_engl.htm

Hvernig er ástandið á felgunum, allar góðar?

Þetta er nú sennilega efst á dagskrá hjá mér, en það þarf aðeins að hafa fyrir því að finna svona felgur til að fá ekta og góðar.

Author:  Bjarkih [ Sun 14. Mar 2004 21:41 ]
Post subject: 

Gardínunar eru bara töff, en hver var aftur tilgangurinn með þeim? Var þetta bara upp á lookið eða var einhver praktískur tilgangur með þessu?

Author:  Djofullinn [ Mon 15. Mar 2004 00:24 ]
Post subject: 

Jæja búinn að minnka myndirnar ;)

Author:  Djofullinn [ Mon 15. Mar 2004 00:47 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
Gaman að sjá bílinn - en það væri betra að skoða myndirnar ef þær væru aðeins minni.

Þú getur minnkað myndirnar með þessu hér, afskaplega þægilegt (meira að segja ég get notað þetta).

http://www.irfanview.com/main_download_engl.htm

Hvernig er ástandið á felgunum, allar góðar?

Þetta er nú sennilega efst á dagskrá hjá mér, en það þarf aðeins að hafa fyrir því að finna svona felgur til að fá ekta og góðar.

Það sér nú soldið á þeim. Náttúrulega gamlar felgur :)

Author:  Heizzi [ Mon 15. Mar 2004 01:21 ]
Post subject: 

hann er ekkert smá flottur með þessa gardínu, hann er bara miklu sportlegri fyrir vikið 8)
Hún er kannski svolítið 80s en hey bíllinn er líka 80s :)

Author:  jens [ Mon 15. Mar 2004 07:45 ]
Post subject: 

Gaman að sjá myndir af bílnum hjá þér. Eru þetta 7x15" og hvaða stærð af dekkjum ertu með.

Author:  bebecar [ Mon 15. Mar 2004 09:00 ]
Post subject: 

Ég sé líka að þú ert með aukamælasettið - NICE... virka allir mælarnir?

Author:  Djofullinn [ Mon 15. Mar 2004 19:24 ]
Post subject: 

jens wrote:
Gaman að sjá myndir af bílnum hjá þér. Eru þetta 7x15" og hvaða stærð af dekkjum ertu með.

Þetta eru 6" að framan með 185/55 dekkjum og 7" að aftan með 205/50 dekkjum :)

Bebecar wrote:
Ég sé líka að þú ert með aukamælasettið - NICE... virka allir mælarnir?

Já nokkuð svalt :) Það er reyndar brotið eins og er, á eftir að græja það. Það er baar einn mælir í því núna, hleðslumælir og hann virkar fínt. Set væntanlega olíuþrýstingsmæli og eitthvað annað.

Ég kem nú væntanlega með fleiri myndir og Góða lýsingu á bílnum þegar ég er búinn að mála og setja spoilerkittið undir hann, framstuðarann, skipta um spegla og setja spjaldið á milli ljósanna á :)

Author:  Alpina [ Mon 15. Mar 2004 19:36 ]
Post subject: 

Frábært,,,,,,,,,, ég var með 195/60 og 205/55

Skemmtilegt verkefni hjá þér

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/