Ég er búinn að eiga þennan núna í eitt ár.
Átti áður 530D (sjá
hér) .... og langaði alltaf í diesel bmw aftur og lét drauminn rætast í desember fyrir ári.
Árgerð 2005
218 hestöfl
Einn eigandi á undan mér (var á Akureyri).
keyrður um 84.000 í dag ... 60.000 þegar ég fékk hann.
Eyðslan í excel skjalinu síðasta árið er 10.1 líter á þessum 24.000 km.
Minnst hef ég séð hann í 9,0 og mest hefur hann farið í 12,7 (eina skiptið yfir 11) en þá var ég með fellihýsi í eftirdragi á móti vindi.
Hann er með öllu þessu helsta sem maður þarf ... á eftir að fá nákvæmlega útlistun á því.
Svart leður, spólvörn, bluetooth , regnskynjari, xenon ofl.
Annars tala myndirnar sínu máli (teknar fyrir ári)










