bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bmw E36 compact 94' https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=46860 |
Page 1 of 1 |
Author: | aronTT [ Tue 07. Sep 2010 23:26 ] |
Post subject: | Bmw E36 compact 94' |
Bmw 316i Compact - E36 Framleiðsluár - 1994 Nýskráður - 1995 Boddý keyrt - 226.xxx Km. Er búinn að eiga þennan núna í 1 og hálft ár. Þegar ég keypti hann var hann ekki í alveg í besta ásigkomulagi.. - Rúðan var brotin - toppurinn ryðgaður - Tjón á vinstra framhorni - öll ljós í klessu - Vatnskassinn var í mauki - Vélin hafði misst vatnið allt of oft - Stýris dælan frussaði út um allt - Bíllinn hafði lent í afturtjóni og afturendinn kíldur inn um nokkra cm - Aftur fjöðrunin var ekki í góðu standi - og ég ætla ekki að minnast á hversu ílla lakkið var farið. Ætla að fara gróflega yfir uppgerðina í myndum Byðst afsökunar ef að myndirnar eru lélegar eða of stórar ![]() Svona var hann fyrst þegar ég fékk hann ![]() Þarna er hann með bráðabyrða vatnskassa úr toyotu. ![]() Fékk að eyða góðum tíma í réttingarbekknum ![]() Svo var sparslað í þetta mesta og versta sem enþá var eftir eftir réttinguna ![]() Svo hófst undir vinnan af alvöru ![]() Svo var byrjað að sprauta,hér er grunnurinn kominn á Meira er ég ekki með af myndum af þessari endurhalningu á litlu dolluni. Ég keypti 1997' E36 sedan 316i partabíl af IceDev hérna á spjallinnu og reyf hann í tætlur. notaði af honum annað frambrettið, húddið, stuðarann og vélina þar sem hún var minna keyrð og í betra ástandi heldur en vélin úr þessu gamla greyji. Hér er svo listi yfir það sem er nýtt og breytt.. - Nýtt framstykki - Húdd af partabíl - Frambretti af partabíl - Nýr framstuðari - Framljós Angel eye - Xenon 8.000k Aðalljós - Heilsprautaður - Nýr vatnskassi - Önnur vél M43B16 Keyrð 172.xxx Km. - Nýtt kúplingssett - Nýjir skór - Nýjir mótorpúðar - Nýr 11 miði man ekki meir í augnablikinu en það er pott þétt einhvað meira svona lýtur hann nú út fyrr í sumar á gömlu fúnu dekkjunum enþá reyndar Sést ekki mikið enda hef ég ekki myndavél í að taka almennilegar myndir ![]() ![]() ![]() Þótt að hann hafi ekki stórt hjarta þá finnst mér hann alveg vera þess virði |
Author: | bubbim3 [ Tue 07. Sep 2010 23:36 ] |
Post subject: | Re: Bmw E36 compact 94' |
mér list vel á þetta hjá þér |
Author: | aronTT [ Tue 07. Sep 2010 23:45 ] |
Post subject: | Re: Bmw E36 compact 94' |
bubbim3 wrote: mér list vel á þetta hjá þér Takk fyrir kærlega fyrir það.. má kannski bæta því við að ég keypti hann fyrir 1 og hálfu ári en hann fór ekki á götuna fyrr en núna í lok maí.. þetta ferli tók aðeins lengri tíma en það átti að gera í fyrstu. |
Author: | gardara [ Tue 07. Sep 2010 23:46 ] |
Post subject: | Re: Bmw E36 compact 94' |
flottur litur ![]() en ég er reyndar ekki alveg að skynja samlitunina |
Author: | kalli* [ Wed 08. Sep 2010 00:35 ] |
Post subject: | Re: Bmw E36 compact 94' |
Alltaf jafn gaman að sjá fólk fara svona vel með Compact, mega flott hjá þér. ![]() Myndi skoða aðrar felgur samt ! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |