Page 1 of 3

E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 14:15
by JOGA
Sælir,

Keypti mér þennan skrjóð af arnab hér á spjallinu. Bíllinn er orðinn svolítið lúinn en keyrir ágætlega og margt gott við hann.
Ætla að nota þetta í vetur á meðan hinn er inni.

Bíllinn er '95 árgerð ek. 197þús og er ssk.
Snyrtileg svört innrétting sem er órifin og fín.
Komið ryð í afturbretti og hægri síls og einnig framan á húdd. Annars ágætur hvað það varðar. Ljót göt líka á skotti eftir RISA spoiler sem fylgdi með.

Keypti bílinn sem ógangfæran og óskoðaðan vegna mengunar og handbremsu.

Er búinn að gera eftirfarandi:
Bíllinn fór í gang með ný hlöðnum geymi. Hleður fínt.
Þjófavörn var að lama hann eitthvað en Árni S reddaði mér fjarstýringu frá fyrri eiganda svo því er reddað :thup:
Handbremsa var í ólagi en er búinn að laga það.
Gangurinn er enn mjög slæmur. Næst á dagskrá að finna út úr því.

Svo verður hann til sölu næsta vor svo þið getið farið að safna :mrgreen:

Stel myndum frá fyrri eigendum. Þið skammið mig og ég tek út ef þið viljið :wink:
Image
Hann er ekki á þessum felgum og kominn á hann stuðari. Ágæt mynd samt (betri hliðin :) )
Image

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 16:17
by gunnar
Ágætis winterbeater :thup:

Ég þarf svo að fara að koma á þig skrallinu þínu og toppunum sem ég er búinn að vera ætlandi með til þín síðan ég veit ekki hvunær. Tekur alveg daginn að fara heim til þín! :lol:

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Wed 01. Sep 2010 16:19
by gulli
Til hamingju með bílinn,,þetta er ekki eins slæmur bíll og menn voru að tala um þegar ég átti hann,, Og þú veist af draslinu sem ég til ef ú ætlar í bsk swapp.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 01:20
by agustingig
sakna hanns.. :( var svo gaman þegar eggert átti hann :D til hamingju með þennan ágæta winterbeater :thup:

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 15:52
by JOGA
gunnar wrote:Ágætis winterbeater :thup:

Ég þarf svo að fara að koma á þig skrallinu þínu og toppunum sem ég er búinn að vera ætlandi með til þín síðan ég veit ekki hvunær. Tekur alveg daginn að fara heim til þín! :lol:



Ekki málið, er voða rólegur. Þú kemur þessu á mig við tækifæri. Ætla einmitt að rífa úr sætin á Touring e-h tíman þegar hann er kominn inn.
Þú kannski gefur mér pointers í leiðinni.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:17
by JOGA
Jæja, náði að lesa villukóða með því að tengja díóðu ljós við pinna 8 í X20 tenginu og sækja 12v í Öryggi nr. 10.
Fékk villukóða 1222 sem er súrefniskynjari.

Var búinn að prófa annan MAF áður en ég fékk villuaflesturinn til að virka. Maf breytti engu. Mældi líka spennuna við ECT skynjarann (Coolant Temperature) fékk eðlilega tölu þar.

Þá er það bara að redda sér nýjum skynjara. Er þetta eitthvað sem pústverkstæði eru með?
Hvar er best að kaupa svona?

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:22
by gulli
JOGA wrote:Jæja, náði að lesa villukóða með því að tengja díóðu ljós við pinna 8 í X20 tenginu og sækja 12v í Öryggi nr. 10.
Fékk villukóða 1222 sem er súrefniskynjari.

Var búinn að prófa annan MAF áður en ég fékk villuaflesturinn til að virka. Maf breytti engu. Mældi líka spennuna við ECT skynjarann (Coolant Temperature) fékk eðlilega tölu þar.

Þá er það bara að redda sér nýjum skynjara. Er þetta eitthvað sem pústverkstæði eru með?
Hvar er best að kaupa svona?

Er þetta skynjarinn sem fer í pústið ? ef svo er ætli hann sé eins og er í 316i ?

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Thu 02. Sep 2010 20:27
by JOGA
Veit ekki með skynjarann Gulli, á eftir að sjékka á því.
Var að lesa betur, 1222 er víst ekki súrefniskynjari því miður. Er eiginlega kominn aftur á byrjunarreit. Segir ekki neitt:

1222 - Lambda control fault code is produced when Motronic system in Bosch control unit receives signal indicating that air/fuel mixture is either excessively rich or excessively lean for period of time loner then 10 seconds. Majority of the causes that affect drivability of the car can be responsible for DME flashing this error:

* air leak
* defective Air Flow Meter ( AFM)
* bad engine temperature sensor
* incorrect fuel pressure
* problem with injector(s)
* defective evaporation system
* empty gas tank
* issue with spark plugs
* problem with valves
* etc


Búinn að sjékka á bold. Nú er það spurning um rest...

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 13:04
by JOGA
Vantar súrefnisskynjara úr M40 eða M42. Megið endilega láta vita ef þið eigið.
Tými ekki að kaupa nýjan þar sem ég er ekki viss um að það sé málið.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 13:08
by gardara
Hvernig gengur hann með maf ótengdann?

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 13:36
by JOGA
gardara wrote:Hvernig gengur hann með maf ótengdann?


Var ekki búinn að prófa það en ég prófaði annan MAF sem á að vera í lagi og þá gekk hann alveg jafn illa.
Gæti nú samt prófað að kippa úr sambandi gamla upp á grínið til að heyra muninn. Aldrei að vita.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 15:31
by GunniT
Er ekki líka hægt að prufa að aftengja súrefnisskynjaran ? Það virkaði allavega á 325 hjá mér þegar hann var farinn.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 15:39
by JOGA
GunniT wrote:Er ekki líka hægt að prufa að aftengja súrefnisskynjaran ? Það virkaði allavega á 325 hjá mér þegar hann var farinn.


Var eitthvað að reyna að googla það í gær. Fann ekkert af viti.
Prófa það kannski í kvöld.

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 21:19
by JOGA
Prófaði að taka o2 úr sambandi. Það breytti engu bíllinn gengur rosalega illa með/án.
Tími engan veginn að kaupa skynjara á 16þús ef það er svo eitthvað allt annað sem er að.

Annars er voðalega undarlegt að þegar ég sótti bílinn gat ég keyrt hann heim án teljandi vandamála. Gekk alveg sæmilega á leiðinni.

En síðan ég setti hann í gang eftir handbremsuviðgerðina gengur hann ekki einu sinni hægagang...

Re: E36 318is Coupe - Vetrarbeater

PostPosted: Fri 03. Sep 2010 21:48
by gulli
Þetta var líka svona þegar ég átti bílinn,,suma daga var hann allt í lagi en svo aðra daga þá átti hann þetta til :| Þetta var svona seinustu vikurnar sem ég átti bíllinn. Ég hélt að árnib hefði lagað þetta, því suma daga var bíllinn nánast ókeyrandi útaf þessu hjá mér sídrepani á sér þegar maður var að setja úr "R" í "D" og þessháttar. Og mér fannst hann alltaf vera verri þegar það var mjög kalt úti eða búið að vera frost um nóttina,, Ef það hjálpar eitthvað.