Page 1 of 2

Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 17:59
by wortex80
Eignaðist þennan í vor setti hann svo eginlega beint í geymslu vegna prófleysis, fékk síðan prófið aftur fyrir 2 dögum og þá var rúllað beinustu leið í að sækja hann 8)

Um ræðir semsagt 98 árgerðina af BMW 750 ..

5,4 v12 skildist á fyrrverandi eiganda að í bílnum væru síur og tölvukubbur en sel það ekkert dýrara (kannski e-r sem þekkir til bílsins gæti frætt mig betur ?)
þrykkist allavega vel áfram á miðað við að hann sé um 2 tonn

Fluttur inn 2005

Ekinn samkvæmt mæli 17xxxx rest sést ekki :lol:


Hlaðinn aukabúnaði á eftir að fá fæðingarvottorðið :santa:

Keypti undir hann 20 '' nýjar alpina look a like felgur og ný falken low profile dekk er síðan búinn að fikta í rafkerfinu sem var í ruglinu samt ennþá e-ð sambandsleysi í ljósum.

Allavega hér koma nokkrar myndir

Image

Image

Image

Image

Á eins og sést eftir að splæsa í djúphreinsun :oops:

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 18:01
by Alpina
Flott lita combo

ps ég man ekki eftir að hafa séð þennann bíl áður

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 18:09
by Rafnars
Er þessi dökkgrænn eða ég í ruglinu :?: :)

Annars flottur bíll, djúphreinsun, lækkun og betri myndir er algjört must myndi ég segja :)

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 18:17
by wortex80
júbb dökkgrænn , þetta eru bara farsímamyndir ef einhver býður sig framm í alvöru myndatöku þá er ég til :thup:

og hvað lækkunina varðar þá ætla ég aðeins að melta það vill nú helst geta komist yfir kanta án þess að festa mig :alien:

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 18:22
by Rafnars
wortex80 wrote:júbb dökkgrænn , þetta eru bara farsímamyndir ef einhver býður sig framm í alvöru myndatöku þá er ég til :thup:

og hvað lækkunina varðar þá ætla ég aðeins að melta það vill nú helst geta komist yfir kanta án þess að festa mig :alien:


Mættu á BMWkraftssamkomuna á Sunnudaginn, skal smella nokkrum myndum af honum fyrir þig :wink: :)

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 19:50
by Axel Jóhann
Rásar hann svoldið mikið hjá þér? ég var var að keyra á eftir þér í gær og þú varst útum allt

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 19:52
by gardara
Góóóður!

Felgurnar alveg að looka :thup:

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 20:45
by wortex80
já hann virðist rása svoldið ennþá þótt það sé ekki í líkingu við það sem hann gerði á 18''
á eftir að láta hjólastilla
hvar var þetta annars ?

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Thu 26. Aug 2010 21:22
by íbbi_
sá þennan þegar hann var til sölu, geðveik innréting, fýla litacombo-ið

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 13:21
by sosupabbi
Mjög flottur, er einmitt að spá í svona litacombo á felgurnar mínar en er ekki viss um að ég þori því, annars mjög flottur, smá leðuráburð og þá er þessi :thup: :thup:

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 14:02
by Jónas
Image

flottur 8)

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 15:36
by wortex80
Jæja þétt skipuð dagskrá á þessum á næstunni :

* Smurning bæði á mótor og skiptingu

* Snýting að innan , er að spá hvort ég eigi að nenna þessu sjálfur eða láta einhvern annan um það :oops:

* Filmur 8)

* Skoðun fæ pottþétt endunskoðun því það á eftir að fara í bremsurnar á honum sem verður gert fljótlega semsagt skipt um klossa og diska að framan síðan á eftir að skipta um fóðringu við afturhjól + ljósin ennþá í e-rju fokki

* Hjólastilling :thup:

Síðan er á lengri tíma plönum að sprauta hann að framan orðinn frekar grjótbarinn annars virðist lakkið vera bara nokkuð þétt og bíllinn yfir höfuð 8)

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 03:58
by -Hjalti-
Alveg klárlega lækka hann, festist ekkert þó þú lækkir hann smá

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 22:42
by Sarot
Lækkun er möst, svo bara versla sér japanska dós fyrir veturinn 8)

Re: Bmw 750 e38 98''

PostPosted: Tue 31. Aug 2010 22:55
by sosupabbi
Sarot wrote:Lækkun er möst, svo bara versla sér japanska dós fyrir veturinn 8)

Allavega vetrardekk, minn dreif ekki út innkeyrsluna í vetur, festist hálfklaufalega í götunni og blokkaði hana fyrir umferð þangað til ég náði að losa mig :oops: :oops: