Page 1 of 1

BMW e46 316 '00

PostPosted: Fri 06. Aug 2010 21:27
by sigridurma
Keypti mér annan bíl fyrir nokkrum vikum og e46 316 '00 varð fyrir valinu :) hann er smá tjónaður, sprunga í öðru afturljósinu og beygla þar undir. Bíllinn er hinn fínasti bíll en samt ekki eins og gamli bimminn :( , hann er eyðslugrannur og mjög mjúkur í akstri en hann mætti vera kraftmeiri og það kom móða í vinstra ljóskerið stuttu eftir að ég keypti hann :?

Planið í bili er að setja one piece angel eyes í hann og facelift afturljós, redda flautunni og láta báða kastarana virka.

Það koma betri myndir af honum þegar hann er búinn í mega þrifum sem verður á næstunni, á bara myndir af honum semi skítugum uppí bústað.

Image

neðsti parturinn á stuðaranum beyglast ekki lengur yfir svarta dótið

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Re: BMW e46 316 '00

PostPosted: Sat 07. Aug 2010 02:14
by BOKIEM
Flottur e46 til hamingju með hann 8)

Re: BMW e46 316 '00

PostPosted: Sat 14. Aug 2010 02:56
by Vlad
Bíddu, var ekki hinn bmw-inn sem þú áttir líka með móðu í ljósinu bílstjóramegin?

Re: BMW e46 316 '00

PostPosted: Sun 15. Aug 2010 16:39
by sigridurma
Júb.. hún virðist ofsækja mig

Re: BMW e46 316 '00

PostPosted: Fri 01. Oct 2010 21:52
by sigridurma
Nú er kominn voðalega ljót og stór beygla á bílstjórahurðina eftir að nágranninn bakkaði á mig :( :cry: og til að toppa það þá er ekki hægt að opna hurðina.

Re: BMW e46 316 '00

PostPosted: Sat 02. Oct 2010 03:51
by ppp
Glatað að heyra, en gott að það var amk ekki stungið af.

Annars er þetta bara sætur bíll.